Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Síða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Síða 39
4.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 U ppáhaldstíminn minn er að fara í hönd – síðsumarið. Í rökkrinu ríkir ákveðin stemning. Eftir tíma bjartra sumarnótta tekur dulúðin völd- in og þá getur allt gerst. Síðsumrið og haustið framkallar ógleymanleg augnablik og ævintýri sem húðflúra sálina með góðum minningum. Eftir mikið neon og bera fótleggi er alltaf eitthvað svo hressandi að hluss- ast aftur í sokkabuxurnar og leður- stígvélin og vefja hlýrri peysu utan um axlirnar. Í ágúst setjum við á okkur ör- lítið dekkri varalit (jafnvel í berjalit) og auðvitað þykkari maskara (fyrir þær sem eru ekki háðar augnháraleng- ingum). Dökki varaliturinn og meira farðaða andlitið fer betur við síðsumarið en hásumarið. Ef við værum í síðsumarsskrúðanum um hásumar gætu menn (og konur) haldið að við værum vaktstjórar í kampavínsklúbbi. Þegar síðsumrið gengur í garð skiptum við um ham og breytum um áherslur. En hvernig er best að bera sig að til að geta tekið á móti síð- sumrinu á viðeigandi hátt? Helstu tískupæjur Bretlands segja að við verðum að eiga klofhá stígvél, helst úr rúskinni. Það getur vel verið að það sé rétt, það „lúkkar vel“ á þeim sem eru sirka 179 á hæð og 57 kíló, en ekki alveg jafnvel á okkur smáhestunum. Ég mæli því með rúskinnsstígvélum sem ná upp að hnésbót nú eða slönguskinnsstíg- vélum. Í hausttískunni eru stríðsáraleg pils áberandi sem ná niður fyrir hné. Við pilsin er fallegt að vera í stígvélum sem ná upp undir pilsin. Það er svolítill Dallas-fílingur í þessu sem undirrituð fær aldrei nóg af. Þegar ég var í Kaliforníu síðast mátaði ég grá rúskinnsstígvél frá hinni ítölsku Prödu sem ég dauðsé núna eftir að hafa ekki keypt (þau voru á útsölu). Þau voru reyndar ekki klofhá, en náðu alveg upp að hnésbót og voru með fylltum hæl. Vandamálið er að ég var svo sveitt eitthvað þarna í hitanum að það skapaðist glundroði í hausnum á mér sem gerði það að verkum að hann fúnkeraði ekki eðlilega. Það gæti líka verið að hagsýna húsmóðirin hafi talað í gegnum mig – get ekki greint þar á milli. Núna er ég með nagandi eftirsjá að hafa ekki keypt þau því þessi stígvél hefðu aldeilis gert góða hluti í lífi mínu á síðsumarkvöldum. Ég þekki þessa nagandi eftirsjá vel en hún tengist ávallt dauðum hlutum – ekki tilfinningum (sem ég veit ekki hvort er gott eða slæmt). Nagandi eftirsjáin heltekur mig yfirleitt nokkrum mánuðum eftir að ég kem heim úr ferðalögum án þess að hafa keypt það sem mig dauðlang- aði í. Ég gæti talið upp langan lista af fíneríi sem ég keypti ekki en langaði í en tvennt stendur þó upp úr og það eru silf- urglimmerskórnir frá Miu Miu sem ég keypti ekki og Gucci-rúmteppið sem ég hnaut um í Outletti á Ítalíu en keypti ekki. Ég á það til að spyrja mig hvort líf mitt hefði orðið öðruvísi ef ég hefði látið þetta eftir mér … og hvort það hefði orðið meira stuð. Beittustu hnífarnir í skúffunni segja að þetta séu hreinræktaðar gerviþarfir og stuðið hefði ekki orðið meira. Ég er þó ekki viss. Mér finnst líklegra að kona í glimmerskóm lendi í fleiri ævintýrum en kannski er það bara misskilningur. Því miður mun ég líklega aldrei komast að því þar sem skórnir eru löngu upp- seldir enda úr sumarlínunni 2011… martamaria@mbl.is Settu á þig dekkri varalit. Slöngustígvél frá Gucci. Nagandi eftirsjá Dragt frá Gucci. Miu Miu glimm- erskórnir sem ég dauðsé allt- af eftir að hafa ekki keypt. Litur no. 27 frá YSL. GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Frá okkur færðu skyrturnar þínar tandurhreinar og nýstraujaðar Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380 ÞVOTTAHÚS EFNALAUG DÚKALEIGA Góð brauð – betri heilsa Opið: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00 laugardaga frá 6:00 til 17:00 sunnudaga frá 7:00 til 17:00 Lengri opnunartími á Dalveginum Dalvegi 4 - 201 Kópavogur Hamraborg 14 - 200 Kópavogur Esjubrauð Hollustubrauð sem inniheldur m.a. íslenska repjuolíu, repjuhrat sem og íslenskt bygg - enginn sykur Ríkt af Omega 3

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.