Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Blaðsíða 19
4.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Dúðar sig fyrir morgungönguna Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvernig hefðbundinn dagur sé á þessu kalda og norðlæga svæði. ,,Hann byrjar með sturtu og morg- unverði áður en ég dúða mig upp fyrir gönguna í skólann sem tekur u.þ.b. 30 mínútur. Þegar fyrirlestr- um er lokið í skólanum göngum við heim með stoppi í búðinni til að kaupa í matinn. Við erum dugleg að hafa sameiginlega kvöldverði í bröggunum. Í frítímum erum við dugleg að fara í fjallgöngur, skíða- og vélsleðaferðir. Á hverjum föstu- degi eftir skóla er svo samkoma þar sem nemendur og kennarar safnast saman við arineldinn í matsalnum á háskólasetrinu og eiga notalega stund saman.“ Ísbirnir og jöklabjörgun Hvernig metur Linda þá reynslu að búa á svona afskekktum stað? ,,Það er mikil upplifun,“ segir hún. „Fyrstu vikuna tóku allir nemend- urnir björgunar- og öryggis- námskeið. Þar lærðum við um hætt- urnar sem við gætum lent í á Svalbarða og hvernig á að bregðast við ef eitthvað kemur upp á. Við lærðum meðal annars að nota riffil og blysbyssu ef svo óheppilega vildi til að ísbjörn yrði á vegi okkar. Við lærðum líka jöklabjörgun og hvern- ig við gætum komið okkur upp úr ísköldum sjónum ef ísinn brygðist. Þá lærðum við fyrstu hjálp, rötun og snjóflóðaleit.“ Það þarf því greinilega að fara í gegnum heljarinnar aðlögun þegar flust er til svo norðlægra slóða. Linda segir að það hafi verið sér- stök reynsla að koma þangað fyrst um miðjan janúar í kolniðamyrkri. Allan daginn hafi hún þurft að nota höfuðljós þegar farið var út fyrir bæjarmörkin. Einnig hafi verið sér- stakt að sjá ekki fjöllin handan fjarðarins eða hvernig húsin væru á litinn. Núna sé hinsvegar miðnæt- ursól. Síðasta sólarlagið hafi verið fyrir stuttu og nú sé bjart allan sól- arhringinn og þá megi gleðjast yfir því að vera með góðar gardínur. Með riffil út fyrir bæjarmörkin En það er ekki fyrir alla að búa á Svalbarða. „Ætli það sé nokkuð fyr- ir kuldaskræfur að búa hér,“ segir hún glaðhlakkalega. „Síðan ég kom hingað hefur verið 15 til 20 stiga frost og vindkæling að auki. Það er samt ótrúlegt hvað það kemst fljótt upp í vana að klæða sig eftir veðri, troða sér í ullarföt undir öll hin lög- in af fötum.“ Linda segist vera umkringd fal- legu landslagi og flestir nemend- urnir séu útivistarfólk svo þau séu dugleg að ferðast á nálægar slóðir við Longyearbyen eða í lengri ferð- ir. Nemendurnir komi hvaðanæva úr heiminum og tveir bestu vinir hennar alla leið frá Ástralíu. ,,Stúd- entabraggarnir eru á milli tveggja jökla og stutt er að komast í góðar skíða- og fjallgönguaðstæður. Ef farið er út fyrir bæinn þarf þó að skipuleggja sig vel eins og nærri má geta og vera með réttan útbún- að. Það þurfi meðal annars að hafa riffil og blysbyssu í farteskinu í fjall- göngum ef svo óheppilega vilji til að ísbjörn verði á vegi manns. „Sjálf hef ég bara séð einn ísbjörn með tvo húna í mýflugumynd. Ég sá þá með kíki í órafjarlægð. Ég get allavega sagst hafa verið í sama firði og ís- björn. Ég myndi heldur ekki vilja mæta ísbirni,“ segir Linda og kímir. Það er þó ekkert alltof fjarlægt, enda kom ísbjörn í bæinn fyrir nokkrum árum og var beint fyrir ut- an braggana. Bátsferð og vélsleðaferð Linda hefur farið í tvær feltferðir með skólanum. Önnur ferðin var bátsferð í 20 stiga frosti til að taka sýni og hin ferðin var tveggja daga vélsleðaferð til Barentsburg sem er rússneskur námuverkabær. Þar gistu þau á eina hótelinu í bænum og segir Linda að það hafa verið eins og að koma til Rússlands. Bar- entsburg er næstfjölmennasti bær- inn á eftir Longyearbyen. Í Bar- tentsburg búa um 500 manns, aðallega frá Rússlandi og Úkraínu. Leið Lindu liggur svo aftur heim til Íslands í sumar eftir ævintýralega dvöl á Svalbarða. Það hafi verið gríðarmikil reynsla að búa þarna og ómetanlegt að kynnast fólki víðs vegar að úr heiminum á einum nyrsta byggða hjara veraldar. Tveggja daga sleðaferð til Coalsbay var farin með skólanum. * Á Svalbarðastarfar senni-lega minnsta og nyrsta Íslendinga- félagið. Svalbarði * 1596: Willem Barentsz uppgötvar Svalbarða. * 1600-1750: Alþjóðlegar hvalveiðar á Svalbarða. * 1800-1900: Norsk vetrar-veiði. * 1906: John M. Longyear hefur fyrstu námuvinnsluna. * 1920: Svalbarðasamningurinnundirritaður. * 1925: Noregur fær yfirráðyfir Svalbarða. Heimild: www.visitnorway.com Það er nauðsynlegt að klæða sig vel. Linda gengur í hálftíma til að komast í skólann. Miðnætursólin á Svalbarða er tilkomumikil sjón. A81 Hönnuðir: Atli Jensen og Kristinn Guðmundsson Verð frá: 27.800,- Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Íslensk hönnun og framleiðsla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.