Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Blaðsíða 57
4.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Í bókinni Í spor Jóns lærða sem Hjörleifur Guttormsson rit- stýrir skrifar hópur sérfróðra og leikmanna um þennan merka Íslending. Bókin er prýdd fjölda mynda og upp- drátta meðal annars af hand- ritum og teikningum eftir Jón og útskurði sem honum er eignaður. Hljómdiskur er hluti af verk- inu. Þar er meðal annars sung- ið og leikið á forn hljóðfæri, lesin ljóð, flutt brot úr leikrit- inu Sönn frásögn eftir Ásdísi Thoroddsen, auk þess sem Berglind Häsler á viðtöl um ævi Jóns og Sjón flytur kafla úr erindi. Hér er komið hið veglegasta verk og afar fróðlegt. Veglegt verk um Jón lærða Ástin, fyrsta bókin í sannsögulegum og margverðlaunuðum þríleik Þerraðu aldrei tár án hanska, eftir Jonas Gardell kemur út hjá Draumsýn í næstu viku, nánar tiltekið 7. ágúst. Hér er á ferð átakanleg saga um líf og baráttu samkyn- hneigðra í Stokkhólmi. Jonas Gardell, fæddur 1963, er sænsk- ur rithöfundur, grínisti og leikskáld. Hann er samkynhneigður og skrifar sannsögulega þríleikinn Þerraðu aldrei tár án hanska í minningu þeirra fjölmörgu samkyn- hneigðu vina sem hann hefur misst. Manna sem dóu í einangrun, einsemd og skömm af því samfélagið hafnaði þeim. Í tilefni útgáfunnar er útgáfuhóf í Nor- ræna húsinu 7. ágúst klukkan 18. Útgáfu- hófið er liður í dagskrá Hinsegin daga og er í samstarfi við Alnæmissamtökin og Bókmenntaborgina Reykjavík. ÁTAKANLEG SAGA UM ERFIÐA BARÁTTU Ballið, ein þekktasta skáld- saga Irene Némirovsky, kemur út seinna í þessum mánuði í þýðingu Friðriks Rafnssonar sem skrifar einn- ig eftirmála. Bókmenntaunn- endur muna vel eftir Franskri svítu eftir Ném- irovsky sem kom út í íslenskri þýðingu Friðriks árið 2011. Sú bók er talin meistaraverk. Ballið er ásamt Franskri svítu sú bók Némirovsky sem mestum vinsældum hefur náð. Í bókinni segir frá átökum fjórtán ára stúlku og sjálfhverfrar móður hennar sem þolir ekki að eldast. Móðirin á sér greinilega fyrirmynd í móður Némirovsky sem var kaldlynd og hégómleg en samskipti þeirra mæðgna voru afar stirð. Némirovsky, sem var þekkt skáldkona á sinni tíð, lést í Auschwitz 39 ára gömul. Verk hennar féllu í gleymsku en svo uppgötvaðist að hún hafi skilið eftir sig handrit að bók. Sú bók er Frönsk svíta sem var gefin út árið 2004 og hlaut frábærar viðtökur gagnrýnenda. Síðan hafa bækur Némirovsky, verið endurútgefnar víða um heim og hlotið mikið lof. Þessi merka skáldkona hefur nú öðlast veglegan og verðskuldaðan sess í bókmenntasögunni. FRIÐRIK ÞÝÐIR BALLIÐ Friðrik Rafnsson þýðir hina stórgóðu skáldsögu Ballið. Hinir fjölmörgu aðdáendur norska metsöluhöfundarins Jo Nesbø geta fagnað því fyrsta bók hans um Harry Hole er komin út í íslenskri þýðingu. Leðurblakan heitir hún og segja má að með lestri á henni dýpki skilningur lesandans á persónuleika Harry Hole. Þessi ágæta bók, sem kom út árið 1997, hlaut Norrænu glæpa- sagnaverðlaunin á sínum tíma og var auk þess valin besta norska glæpasagan. Fyrsta bókin um Harry Hole á íslensku Jón lærði, Harry Hole og Hugleikur NÝJAR BÆKUR ÞEIR SEM HAFA ÁHUGA Á SÖGU OG MENNINGU FÁ SÉR BÓKINA UM JÓN LÆRÐA OG NÁ SÉR EINNIG Í HANDRITAKORT. UNNENDUR SPENNU- SAGNA MEGA EKKI MISSA AF FYRSTU BÓKINNI UM HARRY HOLE. EF ÞIÐ VILJIÐ SVO GLEÐJA ER- LENDA VINI ÞÁ ER UPPLAGT AÐ SENDA ÞEIM BÓK EFTIR HUGLEIK DAGSSON Á ENSKU. Kaldhæðinn Hugleikur Handritakort Íslands lýsir á skýran og aðgengilegan hátt 43 völdum handritum og tengslum þeirra við ákveðna staði á landinu. Hand- rit tengjast öllum landshlutum og lögð er áhersla á fjölbreytni þeirra í efni og útliti. Mynd er af handritunum og þeim lýst stutt- lega, auk þess sem heimkynni þeirra eru merkt inn á kort. Handritakort Íslands ætti að vera nauðsynlegt öllum þeim sem unna sögu og menningu þjóðarinnar. Handritakort fyrir unnendur menningar * Það er samdráttur þegar nágranniþinn missir vinnuna; það er kreppaþegar þú missir vinnuna. Harry S. Truman BÓKSALA 14.-22. JÚLÍ Allar bækur Listinn er byggður á upplýsingum frá Rannsóknasetri verslunarinnar 1 Maður sem heitir OveFredrik Backman 2 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson 3 Áður en ég sofnaS.J.Watson 4 Lág kolvetna lífsstíllinnGunnar Már Sigfússon 5 RósablaðaströndinDorothy Koomson 6 Ærlegi lærlingurinnVikas Swarup 7 Hún er horfinGillian Flynn 8 I was hereKristján Ingi Einarsson 9 Kortabók. með þéttbýliskortum1:300.000 10 Ekki þessi týpaBjörg Magnúsdóttir Kiljur 1 Maður sem heitir OveFredrik Backman 2 Áður en ég sofnaS.J.Watson 3 RósablaðaströndinDorothy Koomson 4 Ærlegi lærlingurinnVikas Swarup 5 Hún er horfinGillian Flynn 6 Ekki þessi týpaBjörg Magnúsdóttir 7 DauðaengillinnSara Blædel 8 Skýrsla 64Jussi Alder-Olsson 9 Anna Frá StóruborgJón Trausti 10 BrynhjartaJo Nesbo MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Sinn er siður í landi hverju. I Hate Dolphins er safn myndasagna eftir Hugleik Dagsson. Safnritið er á ensku en bækur Hugleiks hafa þegar komið út í yfir 10 löndum og tveim- ur heimsálfum. Nýjustu fréttir herma að leikkonan Susan Sarand- on sé í hópi aðdáenda hans. Í þess- ari bók er meðal annars fjallað á kaldhæðin hátt um áfengissýki, firringu, rassskellingar, sifjaspell og hatur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.