Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Side 13
4.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Annar dótturmissir
Inga var á Reykjalundi í nóvember 2007 þegar hún fékk sím-
talið sem allir foreldrar óttast. Andrea dóttir hennar, sem þá
bjó á götunni og var illa farin af margra ára eiturlyfjaneyslu,
hafði tekið of stóran skammt og var dáin.
„Ég er mjög þakklát fyrir að hún hafði stuttu áður verið hjá
mér með son sinn Eyjólf, þá ellefu ára gamlan, og við átt ynd-
islega helgi. Hún fékk tíma til að ná sér niður og allt var í lagi.
Ég er þakklát fyrir að þau hafi fengið þennan tíma saman.“
Inga segir töluvert hafa verið talað um það á götunni að
eitthvað saknæmt hafi átt sér stað við lát Andreu og það var
kannað en þar sem allir í kringum hana voru í mikilli neyslu
fékkst aldrei heildstæð mynd á málið. „Enda skipti það mig
engu máli, hún var dáin. Ég gat ekki leyft mér að syrgja því
ég þurfti að hugsa um Eyjólf litla en svo kom sorgin seinna og
söknuðurinn eftir henni. Hún var svo ofboðslega yndisleg
manneskja en þegar fíknin er komin ákveðið langt ræður fólk
ekkert við hana. Sama hvað hún þráði réð fíknin alltaf og sigr-
aði alltaf.“
Ekki meira á okkur lagt en við þolum
Sjálf er Inga óvirkur alkóhólisti og hefur glímt við þunglyndi
auk þess sem maðurinn hennar fékk ristilkrabbamein. „Guð
leggur aldrei meira á okkur en við þolum. Ég veit að ég er
rosalega sterk. Mér finnst alls ekki of margt hafa verið lagt á
mig og mér líður ekkert illa með það. Ég sé hinsvegar eftir
því að hafa ekki haldið dagbók því það hefur svo margt á daga
mína drifið.“
Inga segist ekki vera hrædd við dauðann þó hún vilji auðvit-
að lifa lengi. „Ég finn að mótstöðuaflið gagnvart umhverfi
mínu hefur minnkað en ég má ekki láta hluti ganga nærri
mér. Ég hef verið mistrúuð í gegnum ævina en var svo heppin
að vera búin að fá trú þegar ég greindist með krabbameinið.
Ég bið mikið til guðs, setti mig í hans hendur þrátt fyrir að
vera engin halelúja-kona og hann hefur haldið verndarhendi
yfir mér.“
Inga segist alltaf hafa gert sitt besta fyrir börnin sín og ver-
ið til staðar en öðru geti hún ekki stjórnað. Þau hafa fengið að
kynnast slæmum hliðum lífsins og draumar hennar snúast um
að sjá þeim vegna vel. „Auðvitað klikkaði ég í einhver skipti og
tók ekki rétt á málum en ég held að allir foreldrar lendi í því.“
Er búin að slá öll met
Þrátt fyrir alvarlegt krabbamein sem Inga hefur lifað með
lengur en læknavísindin reiknuðu með lítur hún ekki svo á að
hún eigi skammt eftir ólifað og rifjar upp orð vinkonu sinnar
sem hálfvorkenndi krabbanum í gamni fyrir að hafa lent á
henni. Viðhorf fólks til meinsins skiptir gríðarlegu máli að mati
Ingu sem segir það engan dauðadóm. Hún segist jafnframt sjá
það á biðstofunni hverjir líti á baráttuna sem tapaða og hverjir
harki af sér. Konur eigi að halda áfram að hafa sig til og þrífa
sig þó þær séu með krabbamein og möguleikarnir til þess séu
margir. „Ég er tvisvar búin að missa hárið en er bara algjör
skvísa!“
Bakland krabbameinssjúklinga segir hún jafnframt vera
stórkostlegt. „Ég hef bara aldrei kynnst öðru eins, það er
toppfólk í hverri einustu stöðu. Auk þess fer ég reglulega í
djúpslökun og hana tel ég eiga stóran þátt í því að ég er á
lífi.“ Með nýtilkominni lagabreytingu bjóst hún við að þurfa að
borga fyrir lyfin sín en var þá bent á að hún væri í líknandi
meðferð og þyrfti það því aldrei. „Líknandi meðferð? Ég? Ég
er ekkert í líknandi meðferð, þetta er bara bull,“ segir hún og
hlær.
Úr myndatökunni sem Inga fór í þeg-
ar hún greindist með krabbamein.
Systurnar Ingveldur og Vilborg Inga.
Börn Ingu, að Rögnu frátalinni sem ólst ekki upp með þeim.
Inga og Eyjólfur giftu sig árið 1976.
Morgunblaðið/Kristinn
Þau hjónin eftir að Inga veiktist.
* Ég er tvisvarbúin að missahárið en er bara
algjör skvísa!
Andrea dóttur Ingu,
sem nú er látin, með
son sinn Eyjólf Inga.
fi p y j g p
Carpaccio með valhnetu-vinaigrette og klettasalati Grafið lam
með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté með paprik
mauki Bruchetta með tvíreyk
hangikjöti, bal- samrauðla
og piparrótarsósu Bruchet
ta með hráskinku, balsam
grill uðu Miðjarðar- hafsgrænm
K r a b b a - salat f
skum kryddjurtum í brauðbo
B r u c h e t t a með Mi
jarðarhafs-tapende R i s a
rækja á spjóti með peppadew Silunga hrogn með japönsku majón
sinnepsrjóma-osti á bruchettuBirkireykt-ur lax á bruchettu með alio
grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar, 3 smáar á spjóti m/kryddju
taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum Vanillufy
tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum Kjúklingu
satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is
MöndluMix og KasjúKurl er
ómissandi í ferðalagið. Útá
salatið og við grillið í sumar.
Hollt og gott frá Yndisauka.
Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum,
Melabúðinni, Fjarðarkaup, Miðbúðinni,
Kjöthöllinni, Hreyfingu, Garðheimum,
Mosfellsbakaríi og Bakaríinu við brúna
Akureyri.