Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Síða 23
Við vorum bæði búin að tala um að okkur langaði aðgera eitthvað svona ýkt,“ segir Margrét Þóra enhún og bróðir hennar, Brynjar Óli, ætla að hlaupatil styrktar SKB, Styrktarfélagi krabbameinssjúkra
barna. Það stendur til að ferðin taki 13 daga, en þá hlaupa
þau að meðaltali 40 kílómetra á dag. Þau gista í tjaldvagni
sem Útilegumaðurinn skaffaði þeim og ætla vinir og vanda-
menn að fylgja þeim. „Að vísu erum við í vandræðum með
bílinn sem við ætluðum að nota, svo það væri vel þegið ef
eitthvað fyrirtæki sæi sér fært um að styrkja okkur með af-
not af bíl fyrir tjaldvagninn og eldsneyti,“ segir Margrét Þóra.
Systkinin hefja hlaupið 12. ágúst nk. og koma til með að
enda í höfuðborginni sama dag og Reykjavíkurmaraþonið
hefst, 24. ágúst. Aðspurð hvort systkinin stefni að því að
hlaupa beint í maraþonið segir hún það geta komið til
greina. „Ég var eitthvað að grínast með það að ef maður
væri í gírnum væri gaman að taka einn hring þar, en það
verður að koma í ljós þann daginn,“ segir hún. Brynjar Óli
átti hugmyndina að hlaupinu. „Ég hringdi samstundis í Sportís
og bar þetta undir þá þar. Þeir vildu vera með og eru búnir
að græja okkur frá toppi til táar og eiga hrós skilið.“
Til heiðurs móður þeirra
Hlaupið er til heiðurs móður þeirra, Bryndísi Birnis, sem
lést árið 2004 eftir erfiða baráttu við krabbamein en að
þessu sinni vilja þau að hlaupið snúist um litlu hetjurnar sem
berjast við sjúkdóminn og fjölskyldur þeirra.
Systkinin halda úti heimasíðu á fésbókinni sem nefnist
Hlaupið fyrir hetjur og er hægt að finna upplýsingar þar. Að
auki ætla þau að reyna að vera virk í því að láta vita á
heimasíðunni hvar þau verða hverju sinni. Það gerir fólki
auðveldara fyrir ef það vill slást í för með þeim. „Við erum
einmitt búin að vera að hvetja fólk til að hlaupa með okkur
og sumir hafa sagt að ef þeir verði þarna á ferðinni muni
þeir gera það. Það gæti verið svolítið gaman,“ segir Margrét
Þóra.
Hún segir að þau séu að undirbúa sig fyrir hlaupið en á
sinn hátt. „Jú, það stóð nú til að halda úti réttu mataræði en
svo finnst manni kökur svolítið góðar, sérstaklega á sumrin,“
segir Margrét Þóra og hlær. „Bróðir minn er duglegri, hann
má eiga það. Ég hugsa að maður taki bara íslensku leiðina á
þetta, þetta hefst allt á endanum.“
HLAUPA FYRIR HETJUR
Vildu gera
eitthvað ýkt
SYSTKININ BRYNJAR ÓLI OG MARGRÉT ÞÓRA
GUÐMUNDSBÖRN ÆTLA AÐ HLAUPA FRÁ
AKUREYRI TIL REYKJAVÍKUR Á 13 DÖGUM, TIL
HEIÐURS MÓÐUR ÞEIRRA, BRYNDÍSI BIRNIS,
SEM LÉST ÚR KRABBAMEINI ÁRIÐ 2004.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Hlaupasystkinin
Brynjar Óli og
Margrét Þóra
Morgunblaðið/Rósa Braga
4.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Heilsa og hreyfing
Söfnunarreikningur hefur verið
stofnaður og er hann í eigu SKB,
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna. Hægt er að leggja inn á
hann hvenær sem er og um leið er
beðið um að skrifa áheit í tilvísun á
millifærsluna.
Hægt er að heita á systkinin til
25. ágúst nk. en hins vegar er alltaf
hægt að styrkja SKB óháð þeirra
hlaupi og segja þau að fólki sé vel-
komið að gera það líka.
Reikningsnúmer: 0301-26-545
Kennitala: 630591-1129
Áheit: Hlaup
STYRKJUM
HETJURNAR