Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Síða 27
4.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
NÝTT FRÁ ÍTALÍU Í BETRA BAK
!
" ## " $$$%
% Tekur sáralítið pláss þegar hann er ekki í notkun
Pop-up svefnsófiQuatro svefnsófi með vandaðri pokagormadýnu
Kr. 92.650
Fullt verð 109.000
Fæst dökkgrár,
rauður, lillblár
og grænn.
Dýnustærð:
140x200 cm.
Afsláttur
15%
Afsláttur
15%
Kr. 264.415 Fullt verð 289.900
G
amalt og vel notað,“ segir húsfreyjan
þegar hún er spurð út í stílinn. Heimilið
er hlýlegt og einkennist af hönn-
unarhúsgögnum frá síðustu öld. Þau
hjónin fluttu inn í hús föður hennar árið 2008.
Húsgögnin eru því mörg frá búi foreldra hennar,
en þau versluðu mikið í Casa. „Sófasettið, sem er
Maralunga, er jafngamalt húsinu, frá 1972,“ segir
hún, en þau hafa einu sinni látið bólstrað það á ný.
Það var ítalski hönnuðurinn Vico Magistretti sem
hannaði það snemma á áttunda áratug síðustu ald-
ar. Borðstofusettið er hannað af hinum skoska arki-
tekt og hönnuði Charles Rennie Mackintosh. Hjónin
eiga fimm börn og tíu barnabörn og oft líf og fjör
á heimilinu þegar allir koma saman. „Um að gera
að hafa allt þægilegt og fjölskylduvænt!“ segir hús-
freyjan. Bókaherbergið hefur nýlega fengið nafnið
„koníaksstofan“, eftir að þau hjónin sátu í einni
slíkri nýlega erlendis. „Ég held við séum nú ekki
enn búin að fá okkur koníak þar,“ segir hún og
hlær. Hinn frægi stóll hannaður af Charles og Ray
Eames, frá árinu 1956, sómir sér vel þar. Lista-
verkin á veggjum eru eftir Leif Breiðfjörð, Eirík
Smith, Dieter Roth og marga fleiri.
Stiginn upp er breiður og bjartur en við enda
hans er glerlistaverk eftir Leif Breiðfjörð.
Fræg hönnun frá liðinni öld
INNST Í BOTNLANGA Í GRÓINNI GÖTU Í BÚSTAÐAHVERFI HAFA HJÓN Á BESTA ALDRI
KOMIÐ SÉR VEL FYRIR. STÍLLINN ER ÞÆGILEGUR EN ÍTÖLSK OG SKOSK HÚSGÖGN NJÓTA
SÍN VEL OG FALLEG LISTAVERK PRÝÐA VEGGINA.
Texti og ljósmyndir: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
FJÖLSKYLDUVÆNT HÚS * Bóka-herbergiðhefur nýlega
fengið nafnið
„koníaksstofan“,
eftir að þau
hjónin sátu í
einni slíkri ný-
lega erlendis.
„Ég held við
séum nú ekki
enn búin að fá
okkur koníak
þar“