Morgunblaðið - 04.09.2013, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2013
STUTTAR FRÉTTIR
● Kolbeinn Frið-
riksson hefur verið
ráðinn fram-
kvæmdastjóri fjár-
málasviðs hjá Eik
fasteignafélagi hf.
Undanfarin ár hef-
ur Kolbeinn starfað
innan markaða Ís-
landsbanka, frá
árinu 2011 hjá fyr-
irtækjaráðgjöf Ís-
landsbanka og frá 2007 hjá markaðs-
viðskiptum Íslandsbanka/Glitnis banka.
Áður starfaði hann hjá Bakkavör Group
á fjármálasviði.
Kolbeinn ráðinn fram-
kvæmdastjóri hjá Eik
Kolbeinn
Friðriksson
● Stjórnvöld á Spáni segja að botn-
inum á tveggja ára samdrætti sé náð,
en atvinnuleysi hefur dregist saman
síðustu sex mánuði. Heildarfjöldi at-
vinnulausra nam í lok ágúst 4,7 millj-
ónum og fækkaði þeim um 31 ein-
staklinga milli mánaða. Það var þó
nóg til að sýna fram á áframhaldandi
bætingu á atvinnumarkaðinum og
sagði efnahagsráðherrann, Luis de
Guindos, að hann teldi að botninum
væri náð og að tölurnar væru hvetj-
andi.
Segja að botninum sé
náð í samdrætti á Spáni
Finnska fyrirtækið Nokia hefur selt
farsímadeild sína til Microsoft fyrir
5,44 milljarða evra, 865 milljarða
króna, og er hlutverki Nokia sem
símaframleiðanda því að ljúka.
Nokia veitir bandaríska tæknifyr-
irtækinu einkaleyfi til tíu ára á vöru-
merkjum sínum og mun finnska fyr-
irtækið einbeita sér að þjónustu og
innri lausnum. Í tilkynningu kemur
fram að Nokia telji þetta bestu
lausnina fyrir fyrirtækið og hluthafa
þess.
Eins mun forstjóri Nokia, Stephen
Elop, láta af störfum strax en hann
var ráðinn til Nokia frá Microsoft ár-
ið 2010. Hans helsta hlutverk var að
reyna að snúa rekstri Nokia við en
fyrirtækið hefur átt í verulegum erf-
iðleikum undanfarin ár. Stjórnarfor-
maður Nokia, Risto Siilasmaa, mun
taka við starfi forstjóra Nokia.
Verð hlutabréfa í finnska tækni-
fyrirtækinu Nokia hækkaði um 45% í
kauphöllinni í Helsinki í gærmorgun
eftir að salan var tilkynnt Microsoft.
AFP
Nýr Timo Ihamuotila, nýr forstjóri Nokia, og Risto Siilasmaa, stjórnar-
formaður Nokia, á blaðamannafundi í Helsinki í gær.
Nokia hækkaði
um 45% í gær
Microsoft keypti farsímahluta Nokia
BAKSVIÐ
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Fasteignafélagið Reitir hefur sam-
þykkt sáttatillögu Seðlabanka Ís-
lands vegna meintra brota félagsins
á lögum um gjaldeyrismál árið 2009 í
tengslum við viðauka sem gerðir
voru við 90 milljóna evra lánasamn-
ing, jafnvirði um 15 milljarða ís-
lenskra króna, við þýskan banka.
Þetta kemur fram í árshlutareikn-
ingi fasteignafélagsins, en verið er
að vinna í því að fá samþykki Hy-
pothekenbank Frankfurt AG fyrir
skilyrðum sáttarinnar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins verður horfið frá styttingu á
lánsstíma á fimm milljóna evra láni,
sem átti að greiðast upp árið 2014, en
nú stendur til að lengja í því láni til
ársins 2021. Tvö lán, samtals að and-
virði um 85 milljónir evra, eru hins
vegar eftir sem áður á gjalddaga í
október á næsta ári. Að sögn þeirra
sem þekkja vel til stöðu mála hafa þó
átt sér stað viðræður við þýska
bankann um að lengt verði í endur-
greiðslutíma stóru lánanna. Of
snemmt sé þó að segja til um hvort
þær málaumleitanir skili árangri.
Þarf heimild Seðlabankans
Reitir er með litlar sem engar
tekjur í erlendri mynt. Því er ljóst að
fasteignafélagið verður hlutfallslega
nokkuð stór kaupandi gjaldeyris á
markaði á næstu mánuðum og miss-
erum í því skyni að safna í sarpinn
fyrir afborgun á um 85 milljóna evra
lánum sem eru á gjalddaga haustið
2014. Að óbreyttu munu Reitir óska
eftir sérstakri heimild frá Seðla-
banka Íslands til að mega hefja
regluleg kaup á gjaldeyri á markaði.
Á síðustu tólf mánuðum ársins hefur
mánaðarleg velta á millibankamark-
aði með gjaldeyri verið um 14,6 millj-
arðar króna.
Frá því er greint í árshlutareikn-
ingi Reita fyrir fyrstu sex mánuði
ársins, sem var birtur í síðustu viku,
að fasteignafélagið hafi ekki fengið
heimild hjá Seðlabankanum til að
greiða afborgun í gjaldeyri að fjár-
hæð 595 milljónir króna á gjalddaga í
mars og júní fyrr á þessu ári. Rétt
eins og áður hefur verið sagt frá í
fjölmiðlum sendi Seðlabankinn Reit-
um bréf hinn 20. desember 2012 þar
sem félaginu var tilkynnt að bankinn
hefði ákveðið að hefja rannsókn á því
hvort Reitir hefðu brotið gegn
ákvæðum laga um gjaldeyrismál.
Forsaga málsins er sú að viðaukar
sem gerðir voru árið 2009 á lána-
samningi við þýska bankann höfðu
ekki fengið þá undanþágu Seðla-
banka Íslands sem tilskilin var sam-
kvæmt lögum um gjaldeyrismál. Það
er því mat Seðlabankans að viðauk-
arnir séu ekki gildir þar sem breyt-
ingar í þeim hafi ekki verið í sam-
ræmi við þær reglur sem gilda um
fjármagnshöft á Íslandi.
Endurfjármögnun tafðist
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hafði rannsókn Seðlabank-
ans á meintum brotum Reita á lög-
um um gjaldeyrismál tafið mjög
fyrir því að það tækist að ljúka end-
urfjármögnun á skuldum félagsins. Í
lok júní á þessu ári – skömmu eftir
að Seðlabankinn hafði boðið Reitum
og dótturfélögum þess sátt í málinu –
var hins vegar undirrituð viljayfir-
lýsing um kaup hóps lífeyrissjóða á
nýju hlutafé í Reitum að fjárhæð 12
milljónir króna og nýjum 25 millj-
arða króna verðtryggðum skulda-
bréfaflokki útgefnum af félaginu.
Jafnframt hafa Reitir náð samning-
um við Íslandsbanka um allt að 14
milljarða króna lánveitingu til fé-
lagsins á hagstæðari kjörum en nú-
verandi fjármögnun Reita.
Bæði hlutafjáraukningin og end-
urfjármögnunin eru hins vegar háð-
ar því skilyrði að þýski bankinn
Hypothekenbank Frankfurt AG
muni sömuleiðis fallast á þær breyt-
ingar á skilmálum lánasamningsins
sem Seðlabanki Íslands hefur lagt til
með sáttatilboði sínu.
Reitir er á meðal stærstu fast-
eignafélaga landsins, en eignasafn
félagsins samanstendur af um 130
fasteignum sem eru samtals um
410.000 fermetrar að stærð. Meðal
þekktra fasteigna má nefna Kringl-
una, Hótel Hilton og Kauphallarhús-
ið.
Reitir samþykkja sáttatil-
boð Seðlabanka Íslands
85 milljónir evra á gjalddaga í október 2014 Viðræður um að lengja í lánum
Rannsókn Guðjón Auðunsson er forstjóri Reita, en fasteignafélagið vinnur
nú að því að fá samþykki þýsks lánveitanda fyrir sáttatilboði Seðlabankans.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Þungar afborganir
» Reitir hafa fallist á sátta-
tilboð Seðlabankans vegna
meintra brota á lögum um
gjaldeyrismál árið 2009.
Þýski lánveitandinn Hypo-
thekenbank Frankfurt AG
þarf einnig að veita sam-
þykki sitt.
» Reitir þurfa að óbreyttu
að greiða um 85 milljónir
evra fyrir október 2014.
» Mun óska eftir sérstakri
heimild frá Seðlabankanum
til að hefja regluleg gjaldeyr-
iskaup á markaði.
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./
+01.2+
++/.,/
,+.,23
+3.0,2
+0.,43
+,0.51
+.,+
+0+.3/
+20.5
+,-.53
+01.31
++/.21
,+.4,+
+3.004
+0.,3,
+,3.-4
+.,+42
+0,./0
+23.-/
,-+.4,01
+,-.30
+00./4
++/.3
,+.404
+3.3/+
+0.4/2
+,3.4+
+.,+1
+04.-,
+23./0
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Frá okkur færðu
skyrturnar þínar
tandurhreinar og
nýstraujaðar
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380
ÞVOTTAHÚS
EFNALAUG
DÚKALEIGA