Morgunblaðið - 13.09.2013, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Landssöfnunin „Á allra vörum“ hófst í gær í
sjötta sinn. Nú verður safnað fyrir geðgjör-
gæsludeild á Landspítalanum. Þar mun mjög
veikt fólk á öllum aldri sem tekst á við alvarlega
geðræna kvilla fá bestu mögulega aðhlynningu.
Söfnuninni var hleypt af stokkunum við athöfn
í Hörpu í gær. Þær f.v. á myndinni Guðný Páls-
dóttir, Gróa Ásgeirsdóttir og Elísabet Sveins-
dóttir, sem eru í forsvari fyrir söfnuninni, af-
hentu þremur ráðherrum, þeim Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, Ragnheiði Elínu Árnadóttur og
Kristjáni Þór Júlíussyni, sem er í ræðustól, fyrst-
um allra gloss.
Sem fyrr verða seld „Á allra vörum“ varagloss
frá Dior sem fæst hjá viðurkenndum Dior-
snyrtivöruverslunum um land allt. Einnig er
hægt að panta gloss á vefnum www.aallravor-
um.is. Söfnunarsímanúmerin 903 1000, 903 3000
og 903 5000 verða opin til 1. október nk.
Í dag verður útvarpsmaraþon á Rás 2 í tilefni
söfnunarinnar. gudni@mbl.is
Safna fyrir geðgjörgæslu við Landspítalann
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Landssöfnunin „Á allra vörum“ hófst í gær í sjötta skipti
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
„Ég er vitaskuld hæstánægður með
þessa viðurkenningu frá Spáni og
hún hvetur mig til dáða,“ segir Arn-
aldur Indriðason, sem hlaut hin
kunnu og virtu spænsku RBA Novela
Negra-verðlaun, en það eru alþjóðleg
glæpasagnaverðlaun sem veitt eru
árlega fyrir óútgefna bók. Forseti
Katalóníu, Artur Mas, afhenti verð-
launin með viðhöfn í gærkvöldi að
viðstöddum borgarstjóra Barcelona,
Xavier Trias, og fjölda annarra gesta
Arnaldur hlýtur verðlaunin fyrir
nýja skáldsögu
sína, Skuggasund
en hún er vænt-
anleg samtímis á
íslensku og
spænsku síðar í
haust.
Verðlaunabók
Arnaldar var valin
úr tugum hand-
rita frá ýmsum
löndum sem send
voru inn undir dulnefni. Verðlaunaféð
er rúmlega 20 milljónir íslenskra
króna. „Þetta er langt frá öllu sem ég
hef áður kynnst í sambandi við verð-
laun, en ég veit ekki hvort hægt er
verðleggja viðurkenningar eins og
þessa,“ segir Arnaldur. „Ég lít á þessi
verðlaun sem bókmenntalega við-
urkenningu fremur en nokkuð annað.
Þetta er viðurkenning á íslenskum
glæpasögum og íslenskum bók-
menntum almennt og því sem ís-
lenskir höfundar eru að fást við.“
Lögreglumaðurinn Erlendur og fé-
lagar eru víðs fjarri í nýju bókinni, en
um efni hennar segir Arnaldur:
„Skuggasund gerist í stríðinu. Árið
1944 finnst stúlka kyrkt á bak við
Þjóðleikhúsið sem þá var birgðastöð
fyrir herinn. Sagan gerist síðan í
samtímanum þar sem lögreglumaður
sem kominn er á eftirlaun kannast við
þetta gamla mál og byrjar að garfa í
því þar sem það virðist aldrei hafa
verið leyst.“
Lokaspurningin til Arnaldar er sú
sem margir aðdáendur hans spyrja
sig: Koma út fleiri bækur um Erlend
eða er lögreglumaðurinn dáinn? Svar
Arnaldar er hæfilega órætt: „Furðu-
strandir er andlega skyld Harðskafa
en báðar skáldsögurnar fjalla um
dauðdaga af völdum kulda. Þar er
kuldinn morðinginn. Það getur tekið
langan tíma fyrir mann að deyja úr
kulda. Annað veit ég ekki.“
Viðurkenningin hvetur til dáða
Arnaldur Indriðason hlaut RBA-bókmenntaverðlaunin fyrir nýja bók sína
Verðlaunabókin Skuggasund kemur út á Íslandi í haust Send undir dulnefni
Arnaldur
Indriðason
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hvorki hefur verið staðið við kaup-
tilboð sem gert var í hús Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) við Bæjarháls, né
heldur við kauptilboð sem gert var í
svonefnt Magma-skuldabréf í eigu
OR fyrr á þessu ári.
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi og stjórnarmaður í OR, lagði
fram fyrirspurnir á stjórnarfundi
OR í gær, fyrir hönd sjálfstæðis-
manna, um hvort staðið hefði verið
við tilboðin. Í ljós kom að við hvorugt
tilboðið hafði verið staðið.
Meirihluti stjórnar OR ákvað 22.
mars sl. að selja Orkuveituhúsið og
taka það síðan á leigu af kaupand-
anum. Fram kom í fréttum að kaup-
andi væri Straumur fjárfestingar-
banki og að söluverðið væri um fimm
milljarðar króna.
Hinn 21. júní sl. ákvað meirihluti
stjórnar OR að taka tilboði fjármála-
fyrirtækisins Landsbréfa í svonefnt
Magma-skuldabréf upp á samtals 8,6
milljarða króna. Samkvæmt tilboð-
inu ætlaði tilboðsgjafinn að ganga
frá fjármögnun kaupanna fyrir 30.
ágúst síðastliðinn og inna útborgun
af hendi.
„Þetta er óeðlilega langur tími,
öðru tilboðinu var tekið í mars og
hinu í júní,“ sagði Kjartan.
Sem kunnugt er var sala þessara
eigna liður í því að bæta lausafjár-
stöðu OR. Því vaknar sú spurning
hvaða áhrif þessi töf á sölu eignanna
mun hafa á fjárhag fyrirtækisins.
Hvorki náðist í forstjóra né heldur
stjórnarformann OR við vinnslu
fréttarinnar í gærkvöldi.
Höfuðstöðvar OR og
Magma-bréfið enn óseld
Morgunblaðið/Styrmir Kári
OR Höfuðstöðvarnar enn óseldar.
Ekki hefur verið
staðið við tilboðin
Í gærkvöldi var búið að selja vel yfir
7.000 miða af 9.768 miðum í boði á
landsleik Íslands og Kýpur í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins í
knattspyrnu, sem verður á Laug-
ardalsvelli föstudaginn 11. október
næstkomandi.
„Miðarnir seljast örugglega fljót-
lega upp,“ sagði Þórir Hákonarson,
framkvæmdastjóri Knattspyrnu-
sambands Íslands, við Morgunblaðið
í gærkvöldi.
Byrjað var að selja miða á lands-
leikinn á midi.is í gær. Uppselt var á
heimaleikinn við Albaníu sl. þriðju-
dag og eftir 2:1 sigur er Ísland í 2.
sæti riðilsins, en haldi landsliðið sæt-
inu fer það í umspil um að komast í
lokakeppnina í Brasilíu næsta sumar.
Ferðir til Noregs
Síðasti leikurinn verður við Norð-
menn í Osló þriðjudaginn 15. október.
Tvær ferðaskrifstofur, VITA Sport
og ÍT ferðir, bjóða upp á dagsferðir
og tveggja nátta ferðir frá Íslandi á
leikinn.
„Viðbrögð hafa verið mjög góð og
þó að enn sé hægt að bóka sig í ferð
er betra fyrir menn að drífa sig því
tilboðið stendur ekki lengi,“ segir
Hörður Hilmarsson, framkvæmda-
stjóri ÍT ferða.
steinthor@mbl.is
Nær
uppselt
á leikinn
Yfir 7.000 miðar
seldir á fáum tímum
Morgunblaðið/Golli
Uppselt Leikmenn Íslands kunna
vel við sig á fullum Laugardalsvelli.
Í sumar var samið um áframhald-
andi rekstur Evrópustofu, upplýs-
ingamiðstöðvar Evrópusambands-
ins á Íslandi, fram á mitt ár 2014.
Upphaflegur samningur gilti frá
miðju ári 2011 til miðs árs 2013.
Það er almannatengslafyrirtækið
Athygli sem sér um rekstur stof-
unnar en Evrópusambandið ber
kostnaðinn.
Evrópustofa í rekstri
fram á mitt ár 2014
ORKA SEM ENDIST
Weetabix er frábær leið til að
byrja daginn. Veldu næringar-
ríkan morgunverð sem heldur
þér gangandi fram að hádegi.
Heilkorna
95% heilkorna
Allir kostir kornsins
nýttir. Hvert lag
kornsins inniheldur
næringarefni sem
eru líkamanum nauðsynleg.
•
•
PIPA
R\TBW
A
•
SÍA
•
120578