Morgunblaðið - 13.09.2013, Page 25

Morgunblaðið - 13.09.2013, Page 25
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2013 Laugavegi 174 | Sími 590 5040 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 Komdu og skoðaðu úrvalið! MMC Pajero GLX 2500 Árgerð 2003, dísel Ekinn 210.000 km, beinsk. Ásett verð: 1.390.000 kr,- VW Passat TDi Árgerð 2005, dísel Ekinn 92.000 km, beinsk. Ásett verð: 1.750.000 kr,- Ford Explorer sport track Árgerð 2007, bensín Ekinn 139.000 km, sjálfsk. Ásett verð: 2.490.000 kr,- TILBOÐ: 1.790.000,-Mazda 3 Árgerð 2006, bensín Ekinn 127.000 km, beinsk. Ásett verð: 1.290.000 kr,- FERÐAFÉLAGAR AF ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM HJÁ HEKLU NOTUÐUM BÍLUM VW Golf Highline 1,4 AT Árgerð 2010, bensín Ekinn 52.000 km, sjálfsk. Ásett verð: 2.890.000 kr,- Heildarvelta með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu var 188.078 m.kr. á síðustu tólf mánuðum (sept. 2012 til og með ágúst 2013) og er það aukning um 23,1% frá sama tíma árið áður, samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands. Tólf mánaða vöxturinn hefur frekar verið að aukast undanfarið eftir að úr honum dró í upphafi árs. Samhliða hefur meðalsölutími eigna styst. Virðist þróunin á íbúðamarkaðinum haldast þar í hendur við þróun einkaneyslu, en á vexti hennar hægði á fyrri hluta árs, samkvæmt tölum Hagstofunn- ar. Að baki liggur m.a. minni vöxt- ur kaupmáttar ráðstöfunartekna. Þetta kom fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka í gær. Samningum fjölgaði um 12,2% Hvað fjölda samninga varðar voru þeir 5.724 talsins á síðustu tólf mánuðum á höfuðborgarsvæð- inu og er það fjölgun um 12,2% frá sama tíma fyrir ári. Líkt og með veltuna dró úr vextinum fram að miðju ári, en heldur hefur verið að bæta í hann síðustu síðustu tvo mánuði. Greining reiknar með að vöxturinn bæði í heildarveltu og fjölda samninga á höfuðborgar- svæðinu muni halda áfram á næstu misserum af nokkrum krafti. Heildarvelta með íbúðarhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins (á Ak- ureyri, í Árborg, á Akranesi og í Reykjanesbæ) var 24.483 m.kr. á síðustu tólf mánuðum og var vöxt- urinn frá sama tíma árið áður 10,2%. Hefur vöxturinn þar verið að aukast undanfarið eftir að úr honum dró í upphafi árs. Greining reiknar með að vöxturinn á lands- byggðinni verði áfram minni en á höfuðborgarsvæðinu. agnes@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir Vöxtur Velta á íbúðamarkaði hefur aukist meira á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni frá september í fyrra til ágústloka í ár. Vöxtur í veltu á íbúðamarkaði  Greining spáir áframhaldandi vexti Unnsteinn Örn Elvarsson héraðsdómslögmaður hefur opnað lögmannsstofuna De Facto ehf. á Skólavörðustíg 12, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá De Facto. Þar kemur einnig fram að Unnsteinn útskrif- aðist með LL.M. gráðu í upplýsingatæknirétti frá lagadeild Stockholms Universitet fyrir skemmstu. „Hann lauk meistaraprófi í lögfræði frá lagadeild Háskólans í Reykjavík árið 2009 þar sem lokaritgerð hans fjallaði um fjárfesta- vernd og hafði áður lokið BA prófi frá sama skóla. Áður en Unnsteinn hélt í nám til Svíþjóðar hafði hann unnið sem fulltrúi hjá Lögmáli ehf. á árunum 2008 til 2012 og með námi sinnti Unn- steinn lögfræðistörfum hjá Tryggingamiðstöð- inni hf.,“ segir í tilkynningu. Opnar nýja lögmannsstofu Unnsteinn Örn Elvarsson ● Fimmtudaginn 10. október verður stofnaður nýr vettvangur fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi. Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök SA standa að stofnun vettvangsins þar sem smá fyrirtæki á Íslandi munu vinna saman óháð atvinnugreinum. Þetta kom fram í frétt á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins í gær. „Vettvangurinn mun starfa undir merkjum Litla Íslands en markmiðið er að bæta rekstrarumhverfi lítilla fyr- irtækja á Íslandi og að byggja upp kröft- ugra, betra og skemmtilegra samfélag,“ segir orðrétt í frétt Samtaka atvinnu- lífsins.. Litla Ísland, nýr vett- vangur fyrirtækja

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.