Morgunblaðið - 13.09.2013, Síða 40

Morgunblaðið - 13.09.2013, Síða 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2013 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Maltese-rakki til sölu Við erum með 1 maltese-rakka til sölu, fæddist 14.03.2013 og er tilbúinn til afhendingar. Verður með ættbók frá HRFÍ. Nánari upplýsingar fást í síma 846 4221 eða email: laudia92@hotmail.com Snyrting Spænskar gæðasnyrtivörur, fram- leiddar úr náttúrulegum hráefnum, og eru fyrir alla daglega umhirðu húðar. Fjölbreyttar vörur sem henta allri fjölskyldunni. Sjá nánar í netversluninni: www.babaria.is Hljóðfæri Þjóðlagagítarpakki: kr. 23.900. Gítar, poki, ól, auka- strengir, stilliflauta og kennslu- forrit. Gítarinn ehf., Stórhöfða 27, s. 552 2125. www.gitarinn.is, gitarinn@gitarinn.is Húsnæði íboði 160 m² húsnæði á Dalvegi, Kópavogi, til leigu í nýlegu húsi. 80 m² á neðri hæð með innkeyrslu- dyrum. Herbergi, eldhúsaðstaða, klósett og sturta. Hægt að leigja saman eða sitt í hvoru lagi. Uppl. í s. 5444 333 og 820 1070. Geymslur Ferðavagnageymsla Borgarfirði Geymum tjaldvagna, fellihýsi, hjól- hýsi, báta og fleira í upphituðu rými. Gott verð. Sími 899 7012. www.solbakki.com Sumarhús Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru moltugerðarkassar Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir - réttar lausnir. Vatnsgeymar frá 300 til 50.000 lítra. Lindarbrunnar. Borgarplast.is Mosfellsbæ. S. 561 2211. Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bílar Mercedes Benz Vito 120 til sölu Árg. 2008. Sjálfskiptur, rafmagns- rúður, samlæsingar, loftkæling, 3 sæta en það má setja í hann fleiri sæti. 6 V dísel 204 hestöfl. Lítið ekinn. Uppl. í s. 5444333 og 8201071. Tilboðsverð Þessi fallegi Mercury Turnpike- cruiser 1957 er til sölu, nýupptekin vél, skipting og fl. nýtt í honum. Skoða skipti á hjólhýsi. Verð aðeins 2.500 þús. S. 8201974, gudmundur74@mail.com. BOMBARDIER CAN-AM DS 450 EFI 5/2009. Lítið notað. Afturdrifið. Auka aurhlífar. Frábært leiktæki. Verð: 990.000,- www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Opið kl. 12-18 virka daga. Sendibílar Iveco 50 C 13 árg. 2004 til sölu Ekinn aðeins 47 þ. km. Með lyftu. Bíll í góðu ástandi. Uppl. í s. 544 4333 og 820 1070. Bílaþjónusta Hjólbarðar Vörubíladekk Rýmingarútsala 315/80 R 22.5 kr. 59.900 + vsk. 11 R 22.5 kr. 36.900 + vsk. 12 R 22.5 kr. 39.500 + vsk. 265/70 R 19.5 kr. 44.500 + vsk. 285/70 R 19.5 kr. 49.800 + vsk. 8.5 R 17.5 kr. 32.900 + vsk. 205/75 R 17.5 kr. 26.900 + vsk. 215/75 R 17.5 kr. 29.900 + vsk. 235/75 R 17.5 kr. 35.900 + vsk. 7.00 R 16 C kr. 25.900 + vsk. 6.50 R 16 C kr. 22.900 + vsk. 1400 – 24 MP 902 kr. 99.000 + vsk. Kaldasel ehf., dekkjaverkstæði, Dalvegi 16 b, Kópavogi, sími 5444 333. Húsviðhald Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verkefni. Sími 847 8704 manninn@hotmail.com Það var sem blómin sveigðu krónu sína með sorgarómi er fréttin um andlát Eyju frænku og vinkonu barst. Við vorum aldar upp hvor á sín- um bænum innst inni í dölum Eyjafjarðar þar sem ekki kom rafmagn fyrr en árið 1963, en fram að þeim tíma bjó fjölskylda Eyju í torfbæ á Halldórsstöðum uns þau fluttu í Hólsgerði. Lýs- ingin sem fólkið notaðist við voru luktir, ekki kerti nema á jólum. Þetta var okkar heimur, við þekktum ekki annað og fannst við hafa allt sem við þurftum. Á flest- um bæjum voru börnin mörg og voru það einstök foréttindi að fá að alast upp við þessar aðstæður. Er ég horfi til baka er margs að minnast og finnst eins og lífið hafi verið ævintýri sem gerst hafi fyr- ir svo stuttu er við lékum okkur í hornabúinu og söfnuðum fjöðrum af skrautlegum hænsnum sem vöppuðu um hlaðið og fórum ríð- andi eða gangandi á milli bæja. Ekki er hægt að tala um einangr- un, eða eins og Haukur bróðir minn sagði: „Í sveitinni heima var enginn einmana, þar var frændi eða frænka á nærri hverri þúfu.“ Allt það, sem augað sér, æskunnar hörpu knýr, syngur og segir mér sögur og ævintýr. Mild ertu, móðir jörð margt hefir guð þér veitt. Aldrei ég Eyjafjörð elskaði nógu heitt. (Davíð Stefánsson) Við byrjuðum að ganga í skóla Pálmey Hjálmarsdóttir ✝ Pálmey Hjálm-arsdóttir fædd- ist á Akureyri 16. febrúar 1952. Hún lést 1. september 2013. Útför Pálmeyjar fór fram frá Ak- ureyrarkirkju 6. september 2013. sjö ára og fórum þá einu sinni í viku fyrsta veturinn og eftir það tvo til þrjá daga í viku. Mennt- un barnanna var á herðum foreldranna og utanbókarlær- dómur var mikill. Heilu kvæðin vorum við látin þylja, s.s. kvæðið um rjúpuna, Óhræsið, og Móður- ást. Við Eyja sátum saman alla skólagönguna hljóðar og reynd- um að meðtaka það þurra nám sem þótti mikilvægt til að und- irbúa okkur fyrir lífið. Mér er það svo minnisstætt hversu fallega rithönd Eyja hafði og fallegur frágangur á öllu námsefninu svo snyrtilegur. Þér var þetta í blóð borið, snyrtimennska, samvisku- semi og vönduð vinnubrögð. Þannig varst þú í allri þinni vinnu, heimilisverkum og barna- uppeldi. Eyja var traustur vinur og af þeirri kynslóð sem vissi hvaðan hún kom og hvert hún vildi fara, treysti á sig sjálfa um flesta hluti og var einstaklega dugleg. Hún hældi ekki eigin verkum, var hógvær og yfirveguð og það er sárt að þurfa að kveðja allt of snemma. Er ég sit og skrifa þessar línur er mér efst í huga hláturinn og gleðin sem ein- kenndi Eyju. Með þakklæti og hlýju í huga kveð ég þig, elsku frænka og vinkona, og ylja mér við yndislegar minningar frá því við vorum litlar stelpur í sveitinni til dagsins er við röltum um Gler- ártorg í sumar til að undirbúa okkur fyrir brúðkaup sem við ætluðum í. Þú barst veikindi þín í hljóði og bað ég þig að minna mig á ef ég færi of hratt. Þú hugsaðir um hvernig öðrum liði og síðustu skilaboðin frá þér í símanum hjá mér eru: Líttu á stjörnurnar og þú sérð tímann. Kíktu í hjartað og þú sérð kærleikann. Kíktu í augun og þú sérð lífið og líttu hér á skjáinn og sjáðu hver er að hugsa til þín. Kv. Eyja. Elsku Hjalli, Lilja og Biggi. Góð móðir, amma og vinkona er farin frá okkur, en hlýjar minn- ingar um yndislegar samveru- stundir munum við varðveita um ókomna tíð og aldrei gleyma. Petra Kristjánsdóttir. Mig langar til að kveðja ynd- islega vinkonu mína hana Eyju og þakka henni fyrir allar okkar samverustundir með þessu fal- lega ljóði. Þú kvaddir þegar blómin fóru að falla og fölva haustsins sló á sumarskraut. Þú hafðir gengið götu þína alla og gæfu notið hér á lífsins braut. Það syrtir að og söknuðurinn svíður, hann svíður þó að dulin séu tár en ævin okkar eins og lækur líður til lífsins bak við jarðnesk æviár. Og tregablandin hinsta kveðjan hljómar svo hrygg við erum því við söknum þín, í hugum okkar stjarna lífs þíns ljómar, sem ljós á vegi í brjóstum okkar skín. Við biðjum að þér ljóssins englar lýsi og leiði þig hin kærleiksríka hönd í nýjum heimi æ þér vörður vísi, sem vitar inn í himnesk sólarlönd. Þér sendum bænir upp í hærri heima og hjartans þakkir öll við færum þér. Við sálu þína biðjum guð að geyma, þín göfga minning okkur heilög er (Guðrún Elísabet Vormsdóttir) Elsku Lilla, Hjalli, Biggi og fjölskyldur, megi góður Guð halda í höndina á ykkur og hjálpa ykkur gegnum erfiða tíma. Með saknaðarkveðju. Þín vinkona, Sigurbjörg. Mín góða vinkona Pálmey lést á heimili sínu Skálateigi 1 á Ak- ureyri sunnudaginn 1. september sl. langt um aldur fram ekki nema 61 árs gömul eftir erfið og langvarandi veikindi. Hún hringdi í mig einu sinni sem oftar tveimur kvöldum áður en hún lést en ég hafði hringt í hana fyrr um kvöldið og bað hún mig þá að bíða. Um ellefuleytið hringdi hún og heyrði ég þá að af henni var verulega dregið. Við töluðum saman smástund en hún sagði mér að hún væri háttuð og bað ég hana þá að fara að hvíla sig og bauð henni góða nótt. Hvort mig grunaði þá að þetta yrði okkar síðasta símtal skal ég ekki segja og hún væri þarna að kveðja mig fæ ég sjálfsagt aldrei að vita en Pálmey var trúuð kona og vin- samleg Sálarrannsóknarfélag- inu. Mig langar í nokkrum orðum að minnast hennar þar, sem við vorum nokkuð nánir vinir í mörg ár og bjuggum í sama fjölbýlis- húsi hvor á sinni hæðinni. Pál- mey var góð kona og dýrmætt að vera í vinskap við hana og aldrei heyrði ég hana hallmæla nokk- urri manneskju og ef henni fannst ég nokkuð þungorður á stundum um menn eða málefni var hún vön að vanda góðlátlega um fyrir mér, enda drukkum við oft kvöldkaffi saman og þá var margt spjallað. Pálmey var lærð svæðanudd- ari og voru það margir sem nutu aðstoðar og aðhlynningar hennar á þeim vettvangi. Einnig útskrif- aðist hún sem sjúkraliði árið 2005 og er mér minnisstæður sá at- burður þar sem hún ljómaði eins og átján sólir innan um útskrift- arfélaga sína þegar áfanganum var náð og prófskírteinið var í hendi. Hún hafði lengi þráð að ná þessum áfanga því það átti fátt betur við hana en að annast og hjúkra eldra fólki þar sem hún vann á Dvalarheimilinu Hlíð og vantaði aldrei í vinnu og svaraði alltaf kalli þegar vantaði á auka- vaktir. Pálmey var mikil hand- verkskona og kokkur góður, það fékk ég að reyna þegar ég varð þess aðnjótandi að mér var stundum boðið í kvöldmat. Pál- mey var góð móðir sinna þriggja barna og einnar fósturdóttur, sem eiginmaður hennar fyrrver- andi, nú látinn, hafði eignast fyrir þeirra hjónaband, en trúlega hef- ur ást hennar og væntumþykja til barnabarnanna að mér fannst ekki síður vegið þungt. Hún hafði að sjálfsögðu mikið dálæti á son- ardóttur sinni þriggja ára, sem skírð hafði verið í höfuð ömmu sinnar og heitir Pálmey. Þó var ekki vegur að merkja það að hún gerði nokkurn tíma upp á milli barnabarnanna, svoleiðis var Pál- mey ekki. Pálmey var mikil handverks- kona eins og fyrr segir og síðustu ár byrjaði hún að hekla svokall- aðar armstúkur, sem urðu mjög vinsælar og gleymi ég því seint þegar hún sagði mér að hún væri búin að selja fyrir Bandaríkja- ferð til að heimsækja dóttur sína, sem þar bjó þá. Þetta var Pál- mey! Hennar verður sárt saknað en jafnframt gleður fullvissan um að hún er komin á þann stað, sem allar þjáningar hverfa. Vertu sæl, vinkona, takk fyrir allt og góða ferð. Aðstandendum öllum votta ég mína dýpstu samúð. Hjörleifur Hallgríms. Elskulegur tengdafaðir minn, Hafsteinn Guðmundsson, er lát- inn eftir langvinn veikindi. Haf- steinn var sterkur maður og hraustur og hafði ég heyrt hann segja bæði í gamni og alvöru að hann hefði aldrei orðið veikur, ekki einu sinni einn dag. En það voru þó veikindi sem náðu hon- um að lokum en ekki fyrr en eft- ir margra ára baráttu. Á þessum Hafsteinn Guðmundsson ✝ Hafsteinn Guð-mundsson skip- stjóri fæddist á Drangsnesi 1. júlí 1933. Hann lést á Hrafnistu 28. ágúst 2013. Útför Hafsteins fór fram frá Víði- staðakirkju 6. sept- ember 2013. tíma horfði ég á tengdaföður minn hverfa inn í sjálfan sig þannig að aðeins skelin var eftir og skuggi af mannin- um sem áður var. Skiljanlega tók þetta mjög á, sér- staklega á þá sem höfðu reitt sig á hann sem sína land- festu í gegnum árin. Hafsteinn var sérlega ósér- hlífinn og vann myrkranna á milli hér á árum áður til að sjá fjölskyldu sinni farborða. Engu að síður sýndi hann þeim sem minna máttu sín mikla samúð og var skilningsríkur gagvart brest- um annarra. Við Hafsteinn áttum margar góðar stundir saman með fjöl- skyldunni og er mér minnisstæð ferð sem við fórum norður á Strandir á hans æskuslóðir. Við keyrðum um sveitinna þvera og endilanga og átti hann sögu úr hverri fjallshlíð og af hverju flæðarmáli. Sögurnar urðu ljós- lifandi í frásögn hans og ég man hvað ég óskaði að ég hefði þekkt hann á hans yngri árum. Haf- steinn var það sem ég tel vera mikilmenni, réttsýnn, auðmjúk- ur og góður en harðjaxl þegar á þurfti að halda. Mikill er okkar missir. Hákon. HINSTA KVEÐJA Elsku frændi, ég vil kveðja þig með þessum orðum: Þér kveðju mína sendi um himindjúpin há af hjarta þakka liðin vina kynni til betri og fegurri heima nú sál þín svífa má þig signi blessun Guðs í eilífðinni. Lilja Viggósdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.