Morgunblaðið - 13.09.2013, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 13.09.2013, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er hætt við að einhvers konar deilur komi upp á milli þín og maka þíns eða náins vinar í dag. Varastu flókinn mála- tilbúnað því einfaldleikinn er áhrifamestur. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er hætt við að þú verðir svikinn eða prettaður í dag. En nautið er ekki mikið fyrir að framkvæma án vandlegrar umhugsunar. Vertu í góðu sambandi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert fullur vellíðunarkenndar og nýtur þess að umgangast vini og vandamenn. Reyndar mun þig langa að leyna einhvern einhverju bara til að fá ekki höfnun. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Veltu vandlega fyrir þér tilboði, sem þú færð á næstunni. Láttu engan hafa svo mikil áhrif á þig að þú gerir eitthvað sem stangast á við réttlætiskennd þína. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert í miklu stuði til að tala núna, þótt það sé betra að hlusta, sérstaklega á það sem ekki er sagt. Snúðu þér að nútíðinni og láttu reynslu þína verða þér til góðs. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Fáðu utanaðkomandi álit á því sem þú ert að fást við. Morgundagurinn verður hag- stæðari en dagurinn í dag en það væri þó best ef þú gætir beðið fram á laugardag með að taka ákvörðun. 23. sept. - 22. okt.  Vog Gerðu upp við þig hvað þú vilt fá út úr til- teknu sambandi. Forðastu þó að skuldbinda þig til nokkurs fyrr en í kvöld eða á morgun. Broslegu hliðarnar og hláturinn lengja lífið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það getur stundum tekið á að velja milli þess sem rétt er og rangt. Gættu að framkomu þinni því aðrir gætu tekið sér hana til eftirbreytni. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þér tekst að hafa áhrif á náung- ann í dag, ekki síst vegna eldmóðs síns. Vertu opinn fyrir því að breyta til ef tækifæri býðst. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þeir eru til sem vilja mikið til vinna að koma þér úr jafnvægi og hleypa þér upp. Dómgreind þín í fjármálum er ekki upp á marga fiska núna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Vertu næmur og kátur í sam- skiptum og samböndin verða jákvæð. Lífið er of stutt til að hunsa ævintýrahvötina. Víðsýni þín og innsæi í dag er ótrúlega mikið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú lest eitthvað í blaði eða tímariti í dag sem getur bætt heilsu þína og útlit. Gerðu þitt besta í stöðunni og láttu það fréttast að þú sért tilbúinn í hvað sem er. Útsynningurinn heldur áframað lemja rúðurnar og gengur á með hryðjum, þegar þetta er skrifað. Nýkomnum úr Dölum vestur með vísnavinum og hagyrð- ingum rifjast upp fyrir mér staka eftir Friðjón Þórðarson ráðherra og þingmann þeirra Dalamanna: Haustsins komu kenna má, kólna raddir blíðar; nú er Esja orðin grá ofan í miðjar hlíðar. Friðjón var ráðherra í rík- isstjórn Gunnars Thoroddsens í andstöðu við þingflokk Sjálfstæð- isflokksins og varð því að víkja af fundum þegar málefni stjórn- arandstöðu voru rædd. Í anddyri þinghússins rétti hann Ólafi G. Einarssyni þennan miða: „Þingflokksformaður – kem ekki í dag 23/3 81“ Og síðan: Ég bið að heilsa heim í ríki þitt, er hnígur sól í vetrarskautið sitt; – þó kuldinn næði enn um okkar land mun aftur grænka túnið þitt og mitt. Ólafur hefur sagt frá því, að á sínu fyrsta kjörtímabili 1971-1974 hafi hann setið við saman borð og þeir Matthías Á. Mathiesen, Jón Árnason og Friðjón Þórðarson í þingflokksherbergi Sjálfstæð- isflokksins. Vorið 1974 kaus Ólaf- ur Jóhannesson forsætisráðherra að rjúfa þing til að forða stjórn sinni frá vantrausti og Sjálfstæð- isflokkurinn vann sinn stærsta kosningasigur frá stofnun lýðveld- is. Lengi var þrefað um stjórn- armyndun og fundir langir og strangir í þingflokksherbergjum. En svo fór að rofa til og ljóst varð, að mynduð yrði ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks undir forystu Geirs Hallgríms- sonar. Á þeim dögum rétti Friðjón Ólafi G. bréfmiða yfir borðið sem á stóð: Léttist ok í óskabyr, eyðist þoka blekkinganna. Við höfum mokað flórinn fyrr að ferðalokum vinstri manna. Einhverju sinni orti Helgi Selj- an til Friðjóns: Fáum hef ég fremri kynnst, fjári snjall og iðinn; eini gallinn, að mér finnst, íhaldssjónarmiðin. Friðjón svaraði: Helgi bindur brag í myndum, brestur hroka, eina syndin að hann blindar austanþoka. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hugsað til Friðjóns Þórðarsonar Í klípu „JÁ - EN BARA TIL AÐ KENNA HONUM LEXÍU.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „MIG VANTAR 148 KORT SEM Á STENDUR: „LÁTTU ÞÉR BATNA FLJÓTT“.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... Gleðin við að velja nafn á fyrsta barnið ykkar. EKKI SPARKA Í ODDA! ÞÚ RÆÐUR. BORÐ FYRIR FJÓRA, TAKK. VITASKULD, HERRA ... MUNU HINIR ÞRÍR GESTIRNIR SLÁST Í HÓPINN FLJÓTLEGA? NEI, ÉG ER EINN ... ... EN ÉG ER MJÖG SVANGUR! Víkverji á aðeins góðar minningarum flug með Icelandair en sjald- an hefur hann átt eins ánægjulega stund á leið til landsins og sl. þriðju- dagskvöld þegar hann var truflaður við að horfa á bíómynd: Þetta er flugstjórinn sem talar. Ísland var rétt í þessu að vinna Albaníu 2:1. x x x Víkverji reyndi að stökkva upp úrsætinu við tíðindin en sætisólin hélt honum niðri. Hins vegar fagnaði hann að hætti hússins með hressi- legu hrópi, enn sannfærðari en áður um að Ísland færi í lokakeppni heimsmeistaramótsins í fótbolta, ef ekki næsta sumar, þá í næstu keppni. Eða þar næstu. Eða … x x x Þegar Víkverji komst í tölvu fórhann yfir gang mála á mbl.is og las svo Moggann á spjaldtölvunni áður en blaðið var borið út morg- uninn eftir. Kom víða við þann dag- inn og alls staðar var Leikurinn með stóru L-i helsta umræðuefnið. Það höfðu allir fylgst með Leiknum og allir höfðu skoðun á Leiknum og frammistöðu leikmanna. x x x Í hádegisfréttum Bylgjunnar sl.miðvikudag var sagt að í net- heimum hefðu Leikurinn, frábær frammistaða íslensku leikmannanna og úrslitin fallið í skuggann fyrir sjónvarpsviðtali Adolfs Inga Erl- ingssonar, Dolla, við landsliðsþjálf- arann Lars Lagerbäck vegna þess að það hefði farið fram á sænsku. Víkverji tekur hins vegar hatt sinn ofan fyrir Dolla fyrir að gefa þjálf- aranum færi á að tjá sig á móðurmáli sínu. Þó að maðurinn komi sérlega vel fyrir kemur hann skoðunum sín- um örugglega betur frá sér á sænsku en á öðrum tungumálum, en lykilatriði er að þýðing fylgi. x x x Í gærkvöldi var nær uppselt á leikÍslands og Kýpur á Laugardals- vellinum 11. október. Áhugi á síðasta leiknum er einnig mikill en Ferða- skrifstofurnar ÍT-ferðir og VITA Sport hafa skipulagt ferðir á leikinn við Noreg á Ullevaal-leikvanginum í Ósló 15. október. víkverji@mbl.is Víkverji Allra augu vona á þig, þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma, lýkur upp hendi þinni og seður allt sem lifir með blessun. (Sálmarnir 145:15-16) falleg minning á fingur www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind PI PA R\ TB W A • SÍ A • 12 16 6 6 Giftingarhringar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.