Morgunblaðið - 30.10.2013, Page 14

Morgunblaðið - 30.10.2013, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bernhöftstorfan er til sölu. Um er að ræða húseignirnar Bankastræti 2, Lækjargötu 3 og Amtmannsstíg 1. Eignirnar verða seldar í einu lagi en eigandi þeirra er Minjavernd. „Þegar mest lét má segja að Minjavernd hafi verið stærsti ein- staki húsaeigandi í Kvosinni í Reykjavík. Þegar við áttuðum okkur á því þótti okkur það vera umhugs- unarefni,“ segir Þorsteinn Bergsson, framkvæmdastjóri Minjaverndar. Hann segir það ekki vera markmið Minjaverndar að eiga hús heldur að vinna að húsvernd, varðveislu mann- virkja og mannvistarleifa hvarvetna á Íslandi. Engu að síður átti Minja- vernd töluvert margar húseignir um tíma. „Þegar mest lét áttum við senni- lega nokkurn meirihluta húsa í Að- alstræti til dæmis,“ segir Þorsteinn. „Við höfum látið flestar þær hús- eignir frá okkur. Minjavernd átti ítök í hótelinu á horni Aðalstrætis og Túngötu. Ísafoldarhúsið end- urbyggðum við og áttum um hríð. Aðalstræti 12 áttum við og Að- alstræti 10 er undir okkar hendi enn í dag og við ætlum ekki að selja það nú. Aðalstræti 2 endurbyggðum við og áttum um árafjöld áður en við seldum. Eftir að þeirri sölu lauk hef- ur sá háttur verið á að við höfum selt þær eignir sem við höfum end- urbyggt, samanber Ziemsen-húsið, Vesturgötu 2a, Sólfell við Ægisgarð, Vaktarabæinn í Garðastræti og fleiri húseignir í Grjótaþorpi.“ Sérstaða Bernhöftstorfunnar Þorsteinn segir að Bernhöfts- torfan hafi haft sérstöðu í eignasafni Minjaverndar. Hún sé tengd upphafi rekstrar félagsins og ekki verið ákveðið að selja hana fyrr en nú. „Menn voru lengi tvístígandi en ákváðu að stíga skrefið til fulls. Með þessum hætti töldum við að mark- miðin næðust best,“ sagði Þorsteinn. Húsin á Bernhöftstorfunni eru öll í útleigu. Leigusamningarnir eru mislangir. Þorsteinn segir að leigu- samningar Minjaverndar hafi verið til fjögurra til sex ára að hámarki. Sala eignanna mun ekki hafa áhrif á leigusamningana og húsin munu áfram hafa sama yfirbragð. Húsunum fylgt eftir „Öll eldri húsin eru friðuð og þeim verður ekki breytt. Nýju húsin eru að sönnu ekki friðuð í sjálfu sér, ekki nema þá hvað yfirbragð snertir í þessari heildarmynd sem menn hafa skapað þarna,“ segir Þorsteinn. Hann segir ekki fyrirsjáanlegt að neinar breytingar verði á yfirbragði húsanna og ekki heldur fyrirsjáan- legar neinar breytingar á rekstri sem nú er í þeim. Þorsteinn vill ekki upplýsa hvaða verð Minjavernd vill fá fyrir Bern- höftstorfuna. „Þetta er dálítið sérstæð eign og hefur tekist að okkar mati að láta hana renta sig svona þokkalega. Hún er nokkuð sérstæð í borginni,“ segir Þorsteinn. Hann segir að Minjavernd hafi samið um það við sölu nokkurra húseigna, eins og t.d. flestra húsanna í Aðalstræti, að Minjavernd fylgist með húsunum fyrstu árin eftir sölu. Félagið hefur bæði sinnt viðhaldi og ráðlagt og lið- sinnt nýjum eigendum við rekstur húsanna til að tryggja varðveislu þeirra. „Að sjálfsögðu ganga þessar eignir eins og aðrar áfram. Það er ekkert eilíft,“ segir Þorsteinn. Hluti af sögu Reykjavíkur Húsaröðin sem kölluð hefur verið Bernhöftstorfa er merkur hluti af sögu Reykjavíkur, segir á heimasíðu Minjaverndar. „Elstu húsin, hús bakarísins eða Bankastræti 2 og hús landfógeta við Amtmannsstíg 1, voru reist á þeim tíma þegar Reykjavík var að taka við hlutverki höfuðborgar á fyrri hluta 19. aldar. Húsunum hefur lítið verið breytt frá seinni hluta þeirrar aldar. Elstu húsin eru frá árinu 1832, Bern- höftshús og Gamla bakaríið, og Landlæknishús var upphaflega reist 1836. Tvær byggingar í röðinni eru yngri, reistar árið 1905, það er við- bygging sunnan við Amtmannsstíg 1 og steinhúsið Gimli, Lækjargötu 3.“ Minjavernd vill selja Bernhöftstorfuna  Húsin eru merkur hluti af sögu Reykjavíkur og setja svip á bæinn Morgunblaðið/Golli Bernhöftstorfan Húsaröðin á Bernhöftstorfunni setur mikinn svip á mið- borg Reykjavíkur. Nú er Bernhöftstorfan til sölu eins og hún leggur sig. Söludeild Hringhellu 6 • 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2510 • gamar@gamar.is • endurvinnslutunnan.is m ag gi @ 12 og 3. is 21 .8 51 /0 1. 13 m ag gi @ 12 og 3 is 21 85 1/ 01 13 Flokkunarílát til notkunar innan húss FLOKKUNARBARIR Eitt hólf 20 l. 2 x 11 l. 3 x 11 l. 1 x 8 l. karfaTvistur (á sleða) Þristur (á sleða) Fáanlegir í mörgum litum. Mál: 38 x 39/93 cm. 2 x 40 l. á vagni 2 x 90 l. á vagni Ás (á sleða)2 x 60 l. á vagni 2 x 10 l. + karfa. Mál: 25 x 38/35 cm.Mál: 56 x 56/66 cm.Mál: 56 x 56/66 cm.Mál: 38 x 66/66 cm. Allar upplýsingar í síma 535 2510 Mál: 31 x 46/36 cm. Mál: 31 x 46/36 cm. Með snerti/pedalopnun. Mál: 26/59 cm. Mál: 25 x 31/44 cm. Mál: 25 x 47/44 cm. Fyrir lífræna söfnun. Mál: 18 x 22/22. Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16 Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri Full búð af nýjum vörum á frábærum verðum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra sat í gær þing Norð- urlandaráðs og tók þátt í umræðu um ungt fólk og samkeppnishæfni á Norðurlöndun- um á þingi Norð- urlandaráðs. Skv. upplýsingum for- sætisráðuneytis- ins kynnti for- sætisráðherra formennskuáætl- un Íslands í Nor- rænu ráðherra- nefndinni fyrir árið 2014 sem ber yfirskriftina „Gróska og lífskraftur“. Í ræðu fjallaði Sigmundur um þau verkefni sem Ísland hyggst setja á oddinn í formennskutíð sinni, líkt og norræna lífhagkerfið, norræna spil- unarlistann og norrænu velferðar- vaktina, auk þess að leggja aukna rækt við vestnorrænt samstarf. Þá mun á formennskuárinu fara fram endurskoðun á norðurskautsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar og starfrækt verður sérstakt norrænt landamæraráð sem ætlað er að vinna áfram að afnámi stjórnsýsluhindr- ana á Norðurlöndunum. Sammála um að auka samráð og samstarf um EES Í gærkvöldi átti Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, sem einnig er staddur í Noregi í tengslum við þingið, fund með Vidar Helgesen, nýskipuðum ráðherra Evrópumála og málefna Evrópska efnahagssvæðisins, EES, í Noregi. Ráðherrarnir ræddu almennt um samstarfið innan EES og einstaka málefni sem bíða úrlausnar. Þeir voru sammála um að löndin ættu að auka samráð og samstarf um EES. EES-samningurinn fæli í sér tæki- færi en til að nýta þau sem best og þá möguleika sem ríkin hafa til að hafa áhrif væri nauðsynlegt að styrkja samstarf Íslands og Noregs. Setja fjölmörg mál á oddinn  Kynnti formennskuáætlun Íslands Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið Viðræður Gunnar Bragi Sveinsson og VidarHelgesen ræddu um EES. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.