Morgunblaðið - 30.10.2013, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013
-Viðhaldsfríir
gluggar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 29 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Svarið við spurningu dagsins
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
tilbúnar í pottinn heima
Fiskisúpur í Fylgifiskum
Verð 1.790 kr/ltr
Súpan kemur í fötu en fiskinum er pakkað sér.
Eldunaraðferð þegar heim er komið: Súpan er hituð upp að suðu, fiskinum er jafnað út milli súpudiska
eða settur í pottinn um leið og súpan er borin fram.
Hvað þarftu mikið?
Súpa sem aðalréttur – 0,5 ltr/mann Súpa sem forréttur – 0,25 ltr/mann
Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði
afhenti fyrir skömmu nýjan Cleo-
patra farþegabát til Grikklands.
Fram kemur í tilkynningu frá
Trefjum, að kaupandinn sé munka-
klaustrið í Vatopedi, sem er á Aþos-
fjalli á austurhluta Grikklands.
Er þetta annar báturinn sem
klaustrið kaupir af Trefjum en það
keypti einnig fiskibát í fyrra.
Nýi báturinn, sem hefur hlotið
nafnið Pantanassa, er 11 brúttó-
tonn. Hann er af gerðinni Cleo-
patra 33 og er útbúinn fyrir 12 far-
þega og tveggja manna áhöfn.
Vistarverur eru loftkældar og er
þar svefnpláss fyrir tvo auk eld-
unaraðstöðu með eldavél, örbylgju-
ofn og ísskáp.
Báturinn mun sinna farþega- og
vöruflutningum fyrir klaustrið.
Pantanassa Báturinn sem seldur var til
gríska klaustursins á Aþosfjalli.
Trefjar seldu nýjan
bát til Grikklands
Jón Gnarr, borg-
arstjóri, hlaut í
gær húm-
anistaviðurkenn-
ingu Siðmenntar,
sem var þá af-
hent í níunda
sinn.
Fram kemur í
tilkynningu að
Jón Gnarr fái
viðurkenninguna
fyrir mikilvæg störf í þágu mann-
réttinda og mannúðar á Íslandi.
Einnig var afhent fræðslu- og vís-
indaviðurkenning Siðmenntar.
Hana hlaut Pétur Halldórsson fyrir
útvarpsþátt sinn Tilraunaglasið,
sem er á dagskrá á Rás 1.
Jón Gnarr fékk húm-
anistaviðurkenningu
Siðmenntar
Jón Gnarr
Söfnuðirnir í Fella- og Hólakirkju
ætla á sunnudag að efna til söfn-
unar vegna átaks þjóðkirkjunnar til
að safna fyrir kaupum á línuhraðli
fyrir Landspítalann.
Fram kemur í tilkynningu að selt
verði vöfflukaffi í safnaðarsal
kirkjunnar að lokinni guðsþjónustu
kl. 11. Sóknarbörn leggja til hrá-
efni og vinnu og öll innkoma fyrir
vöfflusöluna rennur beint í söfnun
þjóðkirkjunnar.
Vöfflukaffi til
styrktar línuhraðli
STUTT
Lágmarks-útbreiðsla hafíss á norð-
urslóðum í sumarlok 2013 var heldur
meiri en hún var árið 2012. Haustið
2012 var hún sú minnsta frá því
mælingar hófust. Meiri útbreiðsla
hafíss nú en í fyrra merkir ekki að
hörfun hafíss á norðurskautssvæð-
inu hafi stöðvast. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá 14. ársfundi
International Ice Charting Working
Group (IICWG) sem haldinn var í
Reykjavík nýlega. IICWG er helsti
alþjóðlegi samstarfsvettvangur haf-
ísfræðinga.
Meiri hafis nú en í fyrra sýnir þær
miklu sveiflur sem geta orðið í út-
breiðslu hafíss á milli ára. Þróunin
til lengri tíma stefnir engu að síður í
þá átt að hafísinn minnki og mun
hún leiða til þess að Norður-Íshafið
verði íslaust hluta úr árinu.
IICWG bendir á að hörfun hafíss-
ins undanfarna tvo áratugi hafi leitt
til stóraukinnar umferðar og at-
hafnasemi í Norður-Íshafinu. Aðild-
arríki Norðurskautsráðsins hafi því
gert alþjóðlega samninga um leit og
björgun á norðurslóðum og eins
samning um viðbrögð við mögulegri
olíumengun. Á ársfundinum í
Reykjavík ræddu meðlimir IICWG,
sem safna og miðla upplýsingum um
hafís og borgarís, hvernig þeir gætu
sem best stutt við leit og björgun á
báðum pólsvæðunum og meng-
unarvarnir verði olíuslys.
Hafísþekjan á norðurslóðum varð
minnst 3,4 milljónir ferkílómetra í
fyrra. Nú varð hún minnst 5,1 millj-
ón ferkílómetra þann 13. september
s.l., samkvæmt upplýsingum frá
bandarísku snjó- og hafísmiðstöð-
inni (U.S. National Snow and Ice
Data Center). Það er umtalsvert
meiri útbreiðsla hafíss en hún varð
minnst í fyrra. Engu að síður var
minnsta hafísþekjan á þessu ári um
milljón ferkílómetrum minni en
langtímameðaltal hafísþekjunnar.
IICWG bendir á að þótt hafísinn
hörfi merki það ekki að hættur sem
hann skapar hverfi. Mikill munur á
ástandi hafíssins á milli ára og á hin-
um ýmsu svæðum skapi mikla hættu
fyrir skipaferðir og aðra starfsemi á
hafinu.
Viðskipta- og atvinnulífið sýnir
norðurskautssvæðinu sífellt meiri
áhuga. Það lýsir sér m.a. í siglingum
um svæðið. Þann 23. október s.l.
hafði 31 skip, þar af eitt gámaflutn-
ingaskip, siglt alla Norðurleiðina,
milli Kyrrahafs og Atlantshafs, í
fylgd ísbrjóta. Þá höfðu verið gefin
út 601 leyfi til siglinga um einhverja
hluta leiðarinnar. Um helmingur
þeirra var í skipalestum sem nutu
fylgdar. Nordic Orion var fyrsta
búlkaskipið sem flutti kol frá vest-
urströnd Kanada um Norðvest-
urleiðina til Finnlands. Áform eru
um frekari olíu- og gasvinnslu víðast
hvar á Norðurslóðum.
Þá segir í tilkynningunni að Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, hafi í ræðu sinni á ársfund-
inum rætt um mikilvægi þess að
vísindasamfélagið og forystumenn í
stjórnmálum og viðskiptum ræði sín
á milli um mótun framtíðarstefnu
fyrir norðurskautssvæðið. Eins
hafði hann lagt áherslu á að norð-
urskautssvæðið kæmi nú öllum
heiminum við og að leiðsögn vísinda-
legrar þekkingar væri mikilvæg til
að hindra óbætanleg mistök.
gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Hafís Þegar hafísinn hörfar á Norður-Íshafinu opnast margir nýir möguleikar og nýjar siglingaleiðir.
Hafísinn er ekki hættur að
hörfa á norðurslóðum