Morgunblaðið - 30.10.2013, Síða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013
Almenningur var
vakinn við ljúfan
draum síðla árs 2008.
Hér var uppgangur í
öllu. Peningum var
dreift eins og þeir
væru að fara úr tísku.
Listalífið blómstraði,
fyrirtæki döfnuðu, rík-
ið greiddi niður skuld-
ir, allir áttu að geta
orðið ríkir og hætt að
vinna um fimmtugt. Ef maður vildi
lán, þá var það nú ekki erfitt. Sparn-
aður var óþekkt stærð.
Svo hrundi allt. Þetta var allt
blekking. Við vorum blekkt. Enginn
kannaðist við viðvörunarmerkin sem
hefðu átt að sjást við fall Lehmanns.
Traustið fór, reiðin tók völd. Skilj-
anlega. Krafan varð gagnsæi, lýð-
ræði og heiðarleiki, við henni varð
að bregðast.
Kosin var ný ríkisstjórn, sér-
stakur átti að rannsaka og draga til
réttar þá sem ábyrgir voru fyrir
þessum ósköpum. Dæma þá sem
sekir voru. Bankarnir fóru í þrot en
samt ekki. Skilanefndir, stundum
nefndar ríki í ríkinu réðu allt í einu
yfir örlögum fyrirtækja og fólks.
Lánin voru skyndilega sum ólögleg,
önnur ekki. Það kom í ljós að fæstir
höfðu mikið pælt í neytendalögum
eða smáa letrinu í lánasamningum.
Sérfræðingar í verð-
tryggingum risu upp og
kröfðust leiðréttinga.
Fólk missti heimili sín
og fyrirtæki sum hver á
vafasamann hátt. Enn
sér ekki fyrir endann á
þessum ósköpum varð-
andi bankana, sem lík-
lega ættu að fara í þrot
eins og önnur gjald-
þrota fyrirtæki.
Þetta þekkjum við
öll. Núna fimm árum
síðar hefur vissulega
ýmislegt breyst til hins
betra. Hins vegar tel ég að breyt-
ingar innra með okkur einstakling-
unum á þessu dýrindis landi hafi
ekki allar verið til góðs.
Ég ólst upp í samfélagi þar sem
ég tel að náungakærleikur ráði
mestu. Við vorum nánast ein stór
fjölskylda og fjölskyldur hjálpast að.
Þær rífast og deila en að lokum ræð-
ur samkenndin för.
Ég el dætur mínar upp í sam-
félagi þar sem það er nánast rétt-
lætanlegt að tala illa um náungann,
búa til sögur um hann sem ýktar eru
upp í fjölmiðlum. Leiðréttingar
koma í smáa letrinu daginn eftir.
Samfélagi þar sem orðum virðist
ekki fylgja nein ábyrgð. Fullorðið
fólk missir sig í athugasemdakerfum
netmiðla. Fólk skýtur og spyr svo í
anda villta vestursins. Allt er þetta
réttlætanlegt, af því að hér varð
hrun og traustið var tekið frá okkur.
Fólk er dæmt af götudómstólnum
eftir því hvaða flokk það kaus. Við
erum snillingar í að kljúfa okkur
niður í hópa andstæðinga og leitum
allra leiða til þess. Það fólk sem vill
sækjast eftir áhrifum innan stjórn-
mála eða fyrirtækja er iðulega
dæmt sem fégráðugt og/eða valda-
sjúkt.
Ég hef alveg átt það til að „missa
mig“ í athugasemdum og þarf að
gæta að orðavali mínu nokkuð oft
þegar mér misbýður. Ég er að aga
mig til. Anda með nefinu, kanna
málin fyrst og taka ekki undir alla
vitleysuna sem ég heyri þó svo að
hún sé krassandi. Af hverju? Vegna
þess að traustið og virðingin kemur
ekki af sjálfu sér aftur og ég hef
áhyggjur af því hvernig fyrirmyndir
við erum fyrir næstu kynslóð. Það
þarf að gæta að því að börnin okkar
verði ekki gegnsýrð af hatri og um-
burðarleysi um ókomna tíð vegna
þeirra fyrirmynda sem við erum
orðin að.
Ég lifi enn í þeirri von að við rétt-
um við úr þessum ömurlega sam-
félagslega anda sem er hér að drepa
alla. Það hefst ekki á því að Alþingi
eitt og sér afli sér trausts eða að at-
hafnamenn biðjist afsökunar á að
hafa platað alla upp úr skónum. Það
hefst hjá okkur sjálfum, hverjum og
einum sem ætlar að draga andann
og lífið fram á Íslandi. Þeim sem
vilja að næsta kynslóð læri af mis-
tökum okkar og andvaraleysi en taki
ekki við kefli niðurrifsins og um-
burðarleysisins. Sú kynslóð hefur þá
réttlátu kröfu á okkur að við höldum
áfram að búa hér til siðað samfélag
sem virðir lög og reglur og sam-
þykkir ekki með reglubundnum
hætti mannorðsmorð, uppþot og
agaleysi.
Samfélagspælingar
Eftir Karen
Elísabetu
Halldórsdóttur
Karen Elísabet
Halldórsdóttir
Höfundur er varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins.
» Skilanefndir, stund-
um nefndar ríki í
ríkinu réðu allt í einu yf-
ir örlögum fyrirtækja
og fólks. Lánin voru
skyndilega sum ólögleg,
önnur ekki.
Skútuvogi 1h | 104 Reykjavík | Sími: 585 8900 | jarngler.is
Rennihurða-
brautir
Mögluleiki á mjúklokun
Sjálfvirkir
hurðaopnarar
fyrir húsfélög og
fyrirtæki, ásamt
uppsetningu og viðhaldi
Hurðapumpur
Möguleiki á léttopnun
Fyrir hurðir og glugga
Rafdrifnir
glugga-
opnarar
Væntanlega mun
það dragast enn um
hríð að Háskóli Íslands
verði talinn meðal
hundrað leiðandi há-
skóla heimsins meðan
vinnubrögð þar eru
með þeim hætti sem
Facebook-síða dr.
Gísla Gunnarssonar,
professor emeritus,
ber vitni um.
Í ummælum Gísla
(status) á síðu hans 25. október sl. er
að finna sex rangfærslur í 6 línum og
verður varla flokkað til vinnubragða
sem verðskulda aðdáun nema keppi-
keflið væri að þjappa saman eins
mörgum rangfærslum og unnt væri í
svo þröngan ramma. Texti Gísla
hljóðar svo:
„Ég mótmæli því harðlega að
Kastljós skuli leyfa ofstækismann-
inum Valdimar Jóhannessyni að
kalla mig opinberlega landráðamann
fyrir að styðja trúfrelsi í landinu af
því að ég styð byggingu mosku í
Reykjavík. Ég bendi á ákvæði
stjórnaskrárinnar um bann við hatri
á fólki vegna trúarbragða, kynþátta
og kynhneigðar og skora á rík-
issaksóknara að lögsækja þá sem
slík brot fremja. Þeir sem reyna að
skapa múgæsingu með því að sá
hatri eins og þessi maður gerir eru
tvímælalaust brotlegir við lög.“
Í fyrsta lagi er rangt að ég hafi
kallað Gísla eða nokkurn annan
landráðamann í þættinum.
Í öðru lagi er rangt að ég sé á móti
trúfrelsi eins og það er skilgreint í
stjórnarskránni sem Gísli segir
óbeint með því að ætla mér að hafa
sett landráðastimpil á þá sem styðja
trúfrelsið.
Í þriðja lagi er rangt að í stjórn-
arskránni sé bann við hatri á fólki af
ýmsu tilefni. Stjórnarskráin tekur
ekki til tilfinningalífs fólks.
Í fjórða lagi er rangt að ég hafi
með nokkrum hætti reynt að sá
hatri í garð fólks og skapa múgæs-
ingu með ummælum mínum.
Í fimmta lagi er rangt að ég hafi
gerst brotlegur við lög með ummæl-
um í Kastljósi.
Í sjötta lagi er rangt að segja mig
ofstækismann þegar ég tek með
hlutlægum hætti þátt í almennum
umræðum.
Gísli getur talið mig vera ofstæk-
ismann og látið það mat sitt í ljós ef
hann hefur smekk fyrir slíka orð-
ræðu en svona merkimiðar eru fyrst
og fremst notaðir til að þagga niður í
þeim sem hafa andstæðar skoðanir
og eru vart sæmandi háskólasamfé-
laginu. Ég gæti fundið ýmis niðrandi
orð um Gísla en kýs ekki að falla nið-
ur á slíkt plan fyrst og fremst vegna
minnar eigin virðingar og vegna
þess að slíkir merkimiðar eru mark-
lausir og skemma umræðuna.
Andstætt Gísla
greini ég á milli íslam
og múslíma. Ég gagn-
rýni íslam harðlega en
ber blak af múslímum
og tek það fram tvisvar
í viðtalinu að yfirleitt
séu múslímar ágæt-
isfólk eins og flest fólk
er. Þetta geta lesendur
séð með því að finna
Kastljósþáttinn frá 24.
október.
Ég er ekkert spennt-
ur fyrir að fara í hanas-
lag við Gísla fyrir dóm-
stólum um meint hatursfull ummæli
mín og meiðandi ummæli hans um
mig. Ég myndi ekkert vera viss um
hvor okkar félli fyrr á hné í slíkum
slag miðað einnig við ýmis orð sem
Gísli lætur falla um mig í ummælum
á eftir statusinum, t.d. að kalla mig
eða stuðningsmenn mína zíonista
(þ.e. bæði zíonista og nasista sem er
þó aðallega gróflega meiðandi fyrir
gyðinga sem misstu 6 milljónir
manna fyrir hendi nasista og er á
ótrúlega lágu plani).
Hins vegar væri ég alveg sáttur
við að takast á við Gísla í viðræðum
um trúfrelsið og stjórnarskrána og
hvernig ég telji að eigi að túlka hana
í sambandi við íslam en til þess verð-
ur að sjálfsögðu einnig að ræða ísl-
am af sæmilegu viti og þekkingu.
Slíkar umræður gætu verið gagn-
legar til að auka þekkingu um íslam
og við hvað er að fást að minni
hyggju.
Margir háskólamenn voru meðal
þeirra sem settu læk á status Gísla
og tóku undir með ummælum hans
um mig. Um slíkt verða þeir að eiga
við sjálfa sig en varla eru þessar
undirtektir til þess fallnar að auka á
virðingu háskólans. Þar á meðal var
forseti félagsvísindasviðs, Ólafur Þ.
Harðarson, sem vakti furðu mína.
Ætli hann telji svona læk styðja
langtímamarkmið, sem Háskóli Ís-
lands setti sér árið 2006, að koma
skólanum í fremstu röð á heimsvísu!
Ég hvet lesendur til þess að skoða
þessar undirtektir. Kannski hafa
einhverjir sett lækin sín í hugs-
unarleysi og eyða þeim að betur
hugsuðu máli. Þeir sem ekki gera
það verðskulda þann stimpil sem
þeir kalla yfir sig með því að láta
þennan vitnisburð um andlega reisn
sína standa.
Rangfærslur
professor emeritus
Eftir Valdimar Her-
gils Jóhannesson
» Svona merkimiðar
eru fyrst og fremst
notaðir til að þagga nið-
ur í þeim sem hafa and-
stæðar skoðanir og eru
vart sæmandi háskóla-
samfélaginu.
Valdimar H.
Jóhannesson
Höfundur er á eftirlaunaaldri.
Hörkukeppni
um Súgfirðingaskálina
Önnur lota í keppni um Súg-
firðingaskálina var spiluð á mánu-
dagskvöldið 28. október.
Ellefu pör mættu til leiks og
skemmtu sér vel. Eðvarð Sturluson
og Mortan Hólm náðu að vera stigi
hærri en Guðbjörn Björnsson og
Steinþór Benediktsson. Naumara
gat það ekki orðið.
Úrslit úr annarri lotu, meðalskor
88 stig.
Eðvarð Sturluson - Mortan Hólm 105
Guðbj. Björnss. - Steinþór Benediktss. 104
Ásgeir Sölvason - Sölvi Ásgeirss. 98
Flemming Jessen - Sigurður Þorvaldss. 93
Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 93
Heildarstaðan:
Þorsteinn Þorsteinss. - Rafn Haraldss. 248
Guðbjörn Björnss. - Steinþ. Benediktss. 248
Flemming Jessen - Sigurður Þorvaldss. 240
Eðvarð Sturluson - Mortan Hólm 236
Gróa Guðnad. - Alda Sigríður Guðnad. 234
Kristján Pálsson - Ólafur Karvel Pálss. 225
Alls verða spilaðar sjö lotur um
Súgfirðingaskálina og gilda sex
bestu skorin til verðlauna.
Næsta lota verður spiluð 25.
nóvember.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Bridsdeild Breiðfirðinga
Sunnudaginn 27/10 var spilaður
eins kvölds tvímenningur. Spilað var
á 11 borðum.. Hæsta skor kvöldsins í
Norður/Suður
Haraldur Sverriss. - Þorl. Þórarinss. 262
Karólína Sveinsd. - Sveinn Sveinsson 247
Unnar A. Guðmss. - Guðm. Sigursteins. 244
Austur/Vestur
Oddur Hanness. - Árni Hannesson 285
Birna Lárusd. - Sturlaugur Eyjólfss. 252
Þórarinn Bech - Sveinn Sigurjónss. 238
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, á sunnudögum kl.19
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar
alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að við-
komandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda
og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.