Morgunblaðið - 30.10.2013, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 30.10.2013, Qupperneq 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013 Það er mikilvægt að tryggja áhrif sjálf- stæðisstefnunnar á stjórn borgarinnar. Í prófkjöri sjálfstæð- ismanna í Reykjavík 16. nóvember næst- komandi er mikilvæg- ast að stillt sé upp öflugum lista sem hefur burði til vera í meirihluta á næsta kjörtímabili. Til að svo megi verða þarf að nálgast borgarmálin á nýj- an hátt og taka stöðuna út frá þeim raunveruleika sem er í borg- inni í dag. Staðreyndin er sú að í Reykjavík er margt ágætlega vel gert og skoðanakannanir sýna að borgarbúum hugnast það. Á það verður að hlusta. Það þarf að hafa pólitískt hugrekki til að vera með góðum málum og á móti vondum, sama hvaðan þau koma. Einungis með því að sýna slíkan heiðarleika gagnvart borgarbúum er traust- vekjandi að setja fram þá nauð- synlegu og réttmætu gagnrýni að það er vel hægt að stýra borginni miklu betur. Borgarstjórn verður að axla ábyrgð Gallinn við núverandi meirihluta er að hann er stefnulaus, með óskýr markmið og enga forgangs- röðun. Stefnumótun er færð of mikið yfir á embættismannakerfið sem veldur því að reikningurinn til að láta enda ná saman er alltof oft sendur borg- arbúum. Svo oft reyndar að á kjör- tímabilinu hafa skatt- ar og gjöld á með- alfjölskyldu í Reykjavík hækkað um sem nemur matarinn- kaupum hennar í hálft ár. Reykvíkingar eiga þá kröfu að kerfið hugsi inn á við, for- gangsraði og minnki við sig en brúi ekki fjárhagsgatið með því að taka af ráðstöfunartekjum borgarbúa. Stjórnmálamenn eiga að hafa skýra sýn og markmið, að- eins þannig geta þeir borið ábyrgð gagnvart kjósendum. Pólitísk ábyrgð er það sem skilur stjórn- málamennina frá embættiskerfinu. Þessa ábyrgð kýs núverandi borg- arstjórnarmeirihluti ekki að axla. Þróun borgarinnar mikil- vægt hagsmunamál Þróun Reykjavíkur er gríð- arlega mikilvægt hagsmunamál til framtíðar. Það er skynsamlegra að þétta byggðina en að þenja hana út til austurs. Síðarnefndi kost- urinn yrði ákaflega kostn- aðarsamur fyrir skattgreiðendur og fjölskyldurnar í borginni. Með þéttingu byggðar er hægt að byggja ódýrara húsnæði sem er mikið hagsmunamál sérstaklega fyrir ungt fólk. Það er til mikils að vinna að borgin geti annars vegar boðið upp á þéttan kjarna með fjölbreyttari samgöngum fyrir þá sem það vilja og haldið um leið hlífiskildi yfir úthverfunum með öllum sínum kostum fyrir þá sem það vilja. Þannig verða til alvöru valkostir um mismunandi búsetu- form í borginni. Valfrelsi fyrir borgarbúa Reykvíkingar eru fjölbreyttir hópar einstaklinga með ólíka hagsmuni. Borgin á að hafa alla burði til að bjóða borgarbúum upp á valkosti samkvæmt óskum og þörfum hvers og eins. Það er nægt rými til að gefa einum svig- rúm án þess að troða á öðrum, það eina sem þarf er heildræn sýn yfir tækifærin. Það er óskandi að á næsta kjörtímabili verði for- gangsatriði borgarstjórnar að leyfa fólki að velja – frekar en að þvinga það. Slík hugsun þarf að vera allt frá heildarþróun í skipu- lagi og mismunandi búsetu- og samgönguformum yfir í að borg- arbúar séu ekki þvingaðir til að niðurgreiða tilgangslitla endur- vinnslu á pappír og fái sjálfir að velja hvar þeir setja börnin sín í skóla og hvernig þeir kjósa að búa í ellinni. Við eigum að kappkosta að hugsa þróun borgarinnar með þarfir og langanir allra borgarbúa í huga, en ekki einungis afmark- aðra hópa. Þannig búum við til borg sem þjónar öllum. Skýr sjálfstæðisstefna nauðsynleg Vandamálið við núverandi meiri- hluta er ekki að hann er nýr; vandamálið er að hann hefur ekki stefnu. Á grunni skýrrar sjálfs- stæðisstefnu og með nýjum nálg- unum er allt að vinna í Reykjavík. Ný nálgun – ný tækifæri Eftir Hildi Sverrisdóttur » Vandamál núverandi meirihluta er að hann hefur ekki stefnu. Á grunni skýrrar sjálf- stæðisstefnu og með nýjum nálgunum er allt að vinna í Reykjavík. Hildur Sverrisdóttir Höfundur er borgarfulltrúi og fram- bjóðandi í 1. sæti í prófkjöri sjálfstæð- ismanna í Reykjavík. Yfirstandandi kjör- tímabil ætlar að reyn- ast Reykvíkingum af- ar dýrt. Fjármálastjórn Besta flokksins og Samfylk- ingar er slök, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Þrátt fyrir það hefur Besti flokk- urinn sannfært stór- an hluta borgarbúa um að fjármál borg- arinnar séu traust. Og hugsanlega sjálfan sig í leiðinni. Þeir virðast farnir að trúa eigin leikriti sé tekið mið af tali Jóns Gnarr um að fjár- málastjórn Besta „einkennist af ábyrgð, aðhaldi og stefnufestu“. Þessir frasar reynast hins vegar innantómir þegar tölurnar eru skoðaðar. Sautján milljarðar. Sú er hækk- unin á vaxtaberandi skuldum Reykjavíkurborgar á fyrsta kjör- tímabili Besta flokksins. Þegar þeir tóku við skuldaði A-hluti borgarinnar 5 milljarða. Áætlunin sem var rædd í borgarstjórn í gær gerir ráð fyrir að vaxtaberandi skuldir borgarinnar í lok næsta árs verði 22 milljarðar. Hér er átt við vaxtaberandi skuldir að frádregnu reiðufé borgarinnar. Viðbót- arskuldir á kjörtímabilinu hljóða upp á 350 þúsund krónur á hverja einustu fjölskyldu í Reykjavík. Þetta er útfært með því að ganga stöðugt á reiðufé borgarinnar ásamt því að bæta á skuldafjallið. Mínus tíu milljarðar. Þetta er áætlun meirihlutans í borginni um rekstur grunnþjónustu borg- arinnar á næsta ári. Það á að sækja sjötíu milljarða í skatttekjur frá borgarbúum og það á að eyða áttatíu milljörðum til málaflokka borgarinnar. Hér er eytt um efni fram svo um munar. Reksturinn hefur verið í ólagi frá hruni, en nú er svo komið að þeim sem til þekkja líst orðið ekkert á blikuna. Aldrei í sögu Reykjavíkurborgar hefur verið lögð fram áætlun með þvílíku gapi milli skatttekna og út- gjalda til grunnþjónustu. Hér hefði þurft að setja í gang yfirgrips- mikla vinnu til að stemma stigu við þessari óheillaþróun. Hagræðing er hins vegar orð sem virðist ekki eiga upp á pall- borðið hjá Besta flokknum og Samfylk- ingu. Stefna um stefnu- leysi er grundvall- arvandamál fjár- málavanda borgarinnar. Stefnu- leysið felur í sér hirðu- leysi í fjármálum sem skilar sér í halla- rekstri Aðalsjóðs og mikilli skulda- aukningu. Samtímis óheillaþróun- inni sem talin er upp hér að ofan hafa skattar og álögur á borgarbúa hækkað jafnt og þétt. Meðalfjöl- skylda í Reykjavík mun á næsta ári greiða rúmlega 440 þúsund krónum meira í skatta og gjöld á hverju ári til Reykjavíkurborgar en hún gerði í upphafi yfirstand- andi kjörtímabils. Útsvar er full- nýtt og gjaldskrár hækka umfram spár um verðlagshækkanir. Árferðið sem við búum við í dag er ekki auðvelt. Þetta vita allir sem búa í Reykjavík. Fjár- málastjórn Reykjavíkur er því ekki auðvelt verkefni. Það fellur greini- lega ekki vel að því að spranga um í Star Wars búningi eða slíta vina- sambandi við Moskvuborg. Verk- efnið krefst einbeitingar og mik- illar vinnu allra sem koma að rekstri borgarinnar. Þetta vita æðstu embættismenn borgarinnar. Þeir vita þetta mæta vel. Það er bara ekki þeirra verkefni að sjá um að rekstur borgarinnar sé í lagi. Það verkefni er í höndum borgarstjóra og meirihluta borg- arstjórnar. Hirðuleysi í rekstri Eftir Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur » Aldrei í sögu Reykja- víkurborgar hefur verið lögð fram áætlun með þvílíku gapi milli skatttekna og útgjalda til grunnþjónustu. Höfundur er borgarfulltrúi og fram- bjóðandi í 1. sæti í prófkjöri sjálfstæð- ismanna í Reykjavík. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver Lágkolvetnabrauð Kolvetnasnautt & prótínríkt Lágkolvetnabrauð er sérlega bragðgott og skemmtileg viðbót í brauðaúrvalið okkar. KOMDU OG SMAKKAÐU Í síðustu viku sótti ég afar fróðlegt fræðsluþing Vitund- arvakningar í Hvols- skóla á Hvolsvelli. Stór hluti af minni vinnu sem sveitarstjóri felst í fundarsetu. Fundirnir eru að vonum misjafn- lega skilvirkir og fróð- legir. Þetta þing var dæmi um góða und- antekningu og er eft- irminnilegt fyrir þær sakir hversu fróðlegt það var. Við veltum allt of sjaldan fyrir okkur afleiðingum of- beldis, skuggahliðum þess og áhrif- um á einstaklingana allt lífið. Of- beldið leiðir oft til þess að unga fólkið flosnar upp úr námi, leggst í neyslu fíkniefna og lendir í fé- lagslegum vandræðum. Sem betur fer eru þó til dæmi þess að hægt er að hjálpa börnum sem upplifað hafa hræðilega hluti í bernsku og þeim tekst að lifa góðu lífi. Verkefni Vitundarvakningar hófst árið 2012. Hlutverk Vitundarvakn- ingar er að: „kortleggja, samhæfa og stuðla að umfangsmiklu forvarn- arstarfi í málaflokknum í samstarfi við viðkomandi aðila, huga að rann- sóknum varðandi ofbeldi gegn börn- um og stuðla að aukinni samfélags- vitund um málaflokkinn. Fræðsla og forvarnir beinast fyrst og fremst að börnum, fólki sem vinnur með börn- um, réttarvörslukerfinu sem og al- menningi.“ Afar vel var staðið að þessu fræðsluþingi og vert að hrósa sérstaklega því fólki sem stóð að þinginu og þeirri alvöru sem fólgin var í fræðslunni. Það er til mikillar fyrirmyndar að mennta- og menn- ingarmálaráðherra, lögreglustjórinn á höf- uðborgarsvæðinu og yf- irlögregluþjónninn á Hvolsvelli skulu hafa tekið þátt í þinginu. Flutt voru framúrskar- andi erindi verk- efnastjóra verkefnisins, sálfræðings Fangels- ismálastjórnar, sál- fræðings sérhæfðra rannsókna barnahúss, sérfræðings kynferð- isbrota og annarra brota gegn börnum. Einnig flutti handritshöfundur stuttmyndarinnar „Segðu já“ athyglisvert erindi, en stuttmyndin hefur vakið mikla at- hygli. Við þurfum öll að vera vel á verði í hörðum heimi. Eiturlyf og hvers kyns ofbeldi á greiðan aðgang að börnum og unglingum og getur á svipstundu breytt lífi fólks og sundr- að fjölskyldum. Orðið vitundarvakn- ing kemur vel til greina sem fallegt orð í íslenskri tungu. Forsvarsmenn verkefnisins eiga skilið mikið hrós fyrir að ferðast um landið til þess að kynna þennan málaflokk fyrir fólki og stuðla þannig að aukinni sam- félagsvitund. Vitundarvakning, frábært framtak Eftir Ísólf Gylfa Pálmason Ísólfur Gylfi Pálmason » Við veltum allt of sjaldan fyrir okkur afleiðingum ofbeldis, skuggahliðum þess og áhrifum á einstak- lingana allt lífið. Höfundur er sveitarstjóri Rangárþings eystra. Aukablað alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.