Morgunblaðið - 30.10.2013, Side 44

Morgunblaðið - 30.10.2013, Side 44
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 303. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1.Fannst látinn á heimili sínu 2. Ekkert heyrt í eiginmanni … 3. Þórir biðst afsökunar 4. Kolbeinn og félagar út áður en … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Lokaviðburður Lestrarhátíðar í Reykjavík, sem Bókmenntaborgin Reykjavík hefur staðið fyrir í október undir heitinu „Ljóð í leiðinni“, fer fram annað kvöld í ljóðarútu sem keyra mun um borgina. Í henni mun einvalalið skálda flytja farþegum ljóð og verður lagt af stað frá Hörpu kl. 20. Sigurlín Bjarney Gísladóttir, skáld og leiðsögukona, fer með gesti um borgina í kvöldmyrkrinu og munu skáld stíga um borð og flytja gestum ljóð sín, þar til þau hverfa aftur út í næturmyrkrið, eins og því er lýst í til- kynningu. Meðal skálda ljóðarút- unnar eru Bjarki Karlsson, Bragi Ólafsson, Gerður Kristný, Heiða Ei- ríks, Kári Tulinius, Sindri Freysson, Valgerður Þóroddsdóttir og Þórdís Gísladóttir. Ferðinni lýkur við Hörpu um kl. 21.30 og munu þá ljóðskáld frá fyrri tíð stíga um borð og biðja gesti um að nefna sig. Þeir sem hitta á rétt nafn hljóta verðlaun. Sætafjöldi er takmarkaður og má bóka sæti með því að senda póst á bokmenntaborg- in@reykjavik.is. Aðgangur er ókeypis. Morgunblaðið/hag Lestrarhátíð lýkur með ljóðarútuferð  Kex hostel tekur þátt í tónlistarhá- tíðinni Iceland Airwaves sem hefst í dag og mun dreifingarfélagið Kongó m.a. standa að tónlistarmarkaði meðan á hátíðinni stendur. 25 hljóm- sveitir og tónlist- armenn munu leika þar á utan- dagskrártónleikum Airwaves, m.a. John Grant, Ásgeir og Emilíana Torrini. 25 hljómsveitir leika á Kex hosteli Á fimmtudag Austan og norðaustan 10-15 m/s, en 15-20 á Vest- fjörðum og annesjum nyrst. Þurrt að kalla á Suðvesturlandi, ann- ars rigning eða slydda, en snjókoma í innsveitum. Hiti 0 til 5 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning eða slydda fyrir sunnan en snjókoma fyrir norðan. Dregur úr vindi og úrkomu syðst seint í dag, en gengur þá í storm á Vestfjörðum. Hiti 1-6 stig. VEÐUR „Við í Haukum vorum stuðn- ingsmenn 4+1 frá upphafi og lögðum regluna til með Njarðvík. Við teljum að ís- lensku strákarnir séu tilbúnir að taka næsta skref og að nóg sé til af þeim þannig að ekki þurfi að fylla deildina af útlendingum,“ segir Ívar Ás- grímsson, þjálfari Hauka, en íslenskir leikmenn fá mun stærri hlutverk í Dominos-deildinni í vet- ur. »2 Tilbúnir að taka næsta skref „Lífið hér er mun betra en heima, sérstaklega ef maður horfir á at- vinnuástandið. Auðvitað er erfitt að vera fjarri fjölskyldunni en okkur Mariju líður mjög vel,“ segir Giedrius Morkunas, markvörður Hauka, sem elti ástina til Íslands en reiknaði ekk- ert frekar með að leika handbolta hér á landi. Enda gekk illa að fá leyfi til þess til að byrja með. »4 Markvörður Hauka elti ástina til Íslands „Þegar ég fékk hiksta sem krakki var mér sagt að nú væri einhver að tala illa um mig. Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, og Geir Þorsteinsson formaður hafa lík- lega fengið hiksta í gærmorgun,“ skrifar Víðir Sigurðsson meðal annars í bakverði, nýjum efnislið sem hefur göngu sína í íþrótta- blaði Morgunblaðsins í dag. »4 Þórir og Geir hafa líklega fengið hiksta ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Karlakór Reykjavíkur fagnar ákveðnum tímamótum um þessar mundir. Hann syngur í fyrsta sinn með þungarokksbandi og 20 ár eru síðan hann bauð fyrst upp á tónleika með aðventu- og jólalögum í Hall- grímskirkju. „„Jólin koma ekki fyrr en ég hef farið á aðventutónleika Karlakórs Reykjavíkur,“ segir fólk við mig og það er mjög skemmtilegt að finna það,“ segir Jón Hallsson, sem hefur sungið í kórnum í 59 ár. Friðrik S. Kristinsson hefur verið stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur síðan 1989. Hann segir að hefð hafi verið fyrir því hjá karlakórum að halda vortónleika þar til fyrir 20 ár- um. „Þá brutum við blað með því að bjóða upp á aðventutónleika í Hall- grímskirkju,“ segir hann. Friðrik bætir við að tónleikunum hafi verið sérlega vel tekið. Margmenni hafi verið í miðbænum og það hafi aukið á stemninguna að geta farið á tón- leika klukkan tíu að kvöldi. „Við vor- um með ferna tónleika og alltaf full kirkja og síðan hefur þetta verið óslitið í 20 ár,“ segir hann. „Þetta er fastur liður og mjög hátíðleg stund, bæði fyrir okkur og áheyrendur.“ Gaman að gleðja fólkið Jón Hallsson byrjaði að syngja í barnaskóla og hefur haldið því áfram. „Ég hef sungið með öllum stjórnendum Karlakórs Reykjavík- ur,“ segir hann og bætir við að það sé alltaf jafngaman að syngja. „Það er afskaplega gefandi að syngja á svona tónleikum og finna hvað fólkið er ánægt. Þetta er fastur liður hjá fólki og það er mjög skemmtilegt að finna það. Ég er afskaplega ánægður yfir því að geta glatt fólk.“ Karlakór Reykjavíkur hefur feng- ið til liðs við sig ýmsa einsöngvara og hljóðfæraleikara á aðventutónleik- unum. Sérstakur gestur á tónleik- unum 14. og 15. desember nk. verð- ur tenórinn Kolbeinn Jón Ketilsson. Einnig koma fram Lenka Mátéová orgelleikari og trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson. Þau hafa spilað undir á aðventutónleikum í mörg ár. Enn- fremur pákuleikarinn Eggert Páls- son, sem leikur með kórnum á þess- um tónleikum fjórða árið í röð. Þá syngur Benedikt Gylfason, ungur drengjasópran, með kórnum. Með Skálmöld Síðustu helgina í nóvember syng- ur Karlakór Reykjavíkur með þungarokkssveitinni Skálmöld, Sin- fóníuhljómsveit Íslands, blönduðum kór að norðan og barnakór Kárs- nesskóla í Eldborg í Hörpu. Miðar seldust upp og var þá bætt við þriðju tónleikunum þegar. „Þetta er al- gjörlega nýtt fyrir okkur, en þetta er mjög skemmtileg músík og menn eru mjög spenntir,“ segir Friðrik. Jólin byrja með tónleikum kórsins  Karlakór Reykjavíkur braut blað í Hallgrímskirkju fyrir um 20 árum Karlakór Reykjavíkur Frá aðventutónleikum kórsins í Hallgrímskirkju í fyrra. Hann heldur uppteknum hætti um miðjan desember. Jón Hallsson segir að þegar hann hafi haft sem mest að gera hafi hann sótt æfingar hjá kórnum hvað mest og best. „Það var afslöppun að fara á söngæfingar. Það hefur verið mjög gefandi að starfa í Karla- kór Reykjavíkur og ég hef notið margs góðs af honum. Meira að segja fann ég konuna mína í Karlakór Reykja- víkur. Það eru ekki margir sem geta státað af því að finna kon- una sína í karlakór.“ Fann konuna í karlakórnum JÓN HALLSSON BASSI Jón Hallsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.