Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.10. 2013
HEIMURINN
ÞÝSKALAND
BERLIN og öðrum stjórn-el kanslaraAngelu Mer
m þess effiki skemmt ymálamönnum var ek
na kunni að hafakjanun Bandaríað Þjóðaröryggisstofn
þegar í stað íMerkel hringdihlerað farsíma hennar
gð leita svara oBarack Obama Banda
ðin.skýringa. Svör Bandarí
SUÐ
KIN
band
í Car öð
8. de
að hafa áhyg
á mörgæsir eða
slóðir en málmi
gegnum heyrnar
BÍASÁDI-ARA
G BREIT
ðgleggja nú formle
mótmæla akstur
fer býsna fjarri
ítinda o
u endaannd fy
rið.gæ
SV
TOKKHÓLMUR La
m hefur hlotiðn Kim Källströ
ugga ungan drengmikið lof fyrir að h
kennið fyrir leikmeð Williams-heil
undankeppni HMgegn Þjóðverjum í
g purinn var í hó iá dögunum. Dren
u út á völlinn meðbarna sem geng
dilega skelfingullliðinu en fy tist skyn
num Fadarammi fy .rir öllum mannfjölf ði honum bréf í
mikil áhrif ákik vaðrskyni. „Þú trúir því ea hafði
ðu,” saminn og aðra í hans st
Marijúana hefur lengi verið
notað í lækningaskyni og hef-
ur afstaða til notkunar efnis-
ins í því skyni mildast nokkuð
í seinni tíð. „Fyrir liggur að
efnið getur haft góð áhrif á
fólk sem þjáist af sjúkdómum
eins og gigt og linað þjáningu
krabbameinssjúklinga eftir
lyfjameðferð,“ segir Art
Swift, framkvæmdastjóri hjá
Gallup, og bætir við að þetta
geti klárlega haft áhrif á vax-
andi fylgi við lögleiðingu efnis-
ins.
Skemmst er að minnast
þess að Dalai Lama,
trúarleiðtogi Tíbeta,
lýsti því nýverið yfir að
hann styddi notkun
marijúana í lækn-
ingaskyni.
Þ
egar Gallup spurði
Bandaríkjamenn í
fyrsta skipti hvort þeir
gætu hugsað sér að
lögleiða fíkniefnið
marijúana árið 1969 svöruðu ein-
ungis 12% játandi. Var þó blóma-
tíminn í algleymingi. Allar götur
síðan hefur þetta hlutfall farið
hækkandi og fyrir tveimur árum
náði það í fyrsta skipti 50%. Ekki
þarf því að koma á óvart að nú,
tveimur árum síðar, skuli góður
meirihluti þjóðarinnar, eða 58%,
vilja lögleiða marijúana. Stuðn-
ingur við lögleiðingu er meiri með-
al yngra fólks en eldra.
Lítur ráðuneytið undan?
Gallup gerði þetta heyrinkunnugt í
vikunni, ári eftir að íbúar í tveim-
ur ríkjum landsins, Washington og
Colorado, samþykktu lögleiðingu
efnisins í atkvæðagreiðslu. Þá
sagði aðstoðarríkisstjóri Kaliforníu,
Gavin Newsom, á dögunum að
hann sæi ekkert því til fyrirstöðu
að leiða efnið í lög í ríkinu og
gerði því skóna að málið yrði borið
undir atkvæði strax á næsta ári.
Fleiri ríki eru að íhuga málið.
Fréttaskýrendur telja þó ennþá
langt í land að húsbændur á Capi-
tol-hæð muni hugleiða slíkt hið
sama enda þótt dómsmálaráðu-
neytið hafi staðfest að það muni
ekki amast við áformum Wash-
ington og Colorado um að hefja
sölu á marijúana á næsta ári. Í
Washington-ríki einu eru áform
um þrjú hundruð útsölustaði í
fyrstu atrennu.
Lögreglunni ekki skemmt
Ekki eru allir sáttir við þessar
lyktir mála og hart var sótt að
Eric Holder dómsmálaráðherra á
árlegum fundi landssambands lög-
reglustjóra í Philadelphiu fyrir
skemmstu. „Við erum mjög von-
sviknir með þessa ákvörðun. Við
teljum að með henni sé verið að
opna allar flóðgáttir fyrir fólki
sem vill láta lögleiða öll möguleg
fíkniefni,“ segir formaður samtak-
anna, Craig Steckler.
Aðrir fagna. „Bandaríkjamenn
eru smám saman að átta sig á því
að marijúana er ekki eins skaðlegt
og sumir vilja vera láta,“ sagði
Mason Tvert, talsmaður sam-
taka sem kalla sig Ma-
rijuna Policy Proj-
ect, um niðurstöðu
Gallup-könnunar-
innar í samtali
við breska blað-
ið The Indep-
endent. „Í mínum
huga er tími til kom-
inn að lögleiða mari-
júana alveg eins og
áfengi og meirihluti landsmanna
virðist vera á sama máli. Vaxandi
stuðningur er við það að binda
enda á bannið víðsvegar um landið
og þegar er kominn fram vilji til
lagabreytinga í vissum ríkjum.“
Önnur könnun sem gerð var í
ágúst síðastliðnum bendir til þess
að 38% Bandaríkjamanna hafi
prófað marijúana.
Löglegt gramm á 120 kr.
Þyki einhverjum nóg um stöðuna í
Bandaríkjunum er Suður-
Ameríkuríkið Úrúgvæ komið
ennþá lengra. Frumvarp þess efnis
að lögleiða skuli marijúanaræktun
í landinu hefur þegar verið sam-
þykkt í neðri deild þingsins og
vonast forseti landsins, José Mu-
jica, til þess að koma því gegnum
öldungadeildina sem fyrst. Gangi
það eftir verður Úrúgvæ fyrsta
landið í heiminum til að stíga
skrefið til fulls; hefja ræktun,
dreifingu og sölu marijúana. Eins
og staðan er núna er neysla mari-
júana ekki refsiverð í landinu en
við ræktun og dreifingu liggur
fangavist.
Mujica hefur lýst því yfir að
hann vilja hefja söluna á síðari
hluta næsta árs og liggur verðskrá
þegar fyrir: Einn Bandaríkjadalur
á grammið, að því er yfirmaður
fíkniefnamála, Julío Calzada, tjáði
dagblaðinu El País í Úrúgvæ í
vikunni. Það eru 120 krónur ís-
lenskar. Sá skammtur á að duga í
eina marijúanasígarettu ellegar
tvær til þrjár minni. Eftir smekk.
Tilgangur stjórnvalda í Úrúgvæ
er einfaldur: Að segja fíkniefna-
barónum stríð á hendur. „Hug-
myndin er ekki að græða peninga
heldur hrifsa markaðinn af glæpa-
mönnum,“ sagði Calzada. „Undir-
heimamarkaðurinn er mjög vara-
samur og gæðin misjöfn. Þess í
stað mun hið opinbera bjóða upp á
úrvalsvöru á öruggum markaði.
Fyrir sama verð.“
Marijúanað
út í vitleysu?
ÞETTA VAR MERKILEG VIKA Í MARIJÚANAHEIMUM. Í ÚRÚ-
GVÆ STIGU STJÓRNVÖLD STÓRT SKREF Í ÁTT AÐ LÖG-
LEIÐINGU EFNISINS OG Í BANDARÍKJUNUM ER MEIRIHLUTI
LANDSMANNA Í FYRSTA SINN HLYNNTUR LÖGLEIÐINGU.
Dalai
Lama
GOTT Í
LÆKNINGASKYNI
Ungur Úrúgvæi kveikir sér í marijúanasígarettu til að leggja áherslu á málstað sinn í Montevídeó.
AFP
* Jurtir byggja þjóðir upp, áfengi brýtur þær niður.Jamaíski tónlistarmaðurinn Bob heitinn Marley.AlþjóðamálORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is