Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Blaðsíða 28
*Matur og drykkir Vínsérfræðingurinn Steingrímur Sigurgeirsson mælir með því að nota vín sem krydd í mat »32
Á
stríður Þórey Jónsdóttir er matgæðingur
mikill og heldur meðal annars úti bloggi
þar sem hún bloggar um allt mögulegt og
þar á meðal matinn sem hún útbýr. „Ég
hef mjög gaman af því að elda og borða góðan mat.
Ég myndi jafnvel segja að það væri eitt af mínum að-
aláhugamálum,“ segir Ástríður Þórey. „Ég er reyndar
svolítið einkennileg að því leytinu til að ég elda oft
eitthvað sem ég hef aldrei gert áður þegar ég býð
fólki í mat. Oftast heppnast það vel en stundum hefur
það mislukkast. Mér finnst bara einstaklega leiðinlegt
að fara eftir uppskriftum og það mætti segja að ég
væri frekar áhættusækin í eldhúsinu. Engum hefur
þó orðið meint af,“ segir hún kímin.
Undanfarin ár hefur eldamennskan breyst á heim-
ilinu einkum vegna þess að nú hefur nýr fjölskyldu-
meðlimur bæst við en Ástríður og eiginmaður hennar
eiga eins árs dreng. „Ég er farin að leggja mikla
áherslu á heilsusamlegra mataræði og óunninn mat.
Mér finnst mikilvægt að maturinn sé næringarríkur
og geri manni gott en ekki öfugt,“ segir Ástríður
Þórey, sem er nýtin í eldhúsinu og finnst slæmt að
henda mat að óþörfu. „Við hjónin erum mjög hrifin af
ítölskum mat og kjötbollugerð er sérstök ástríða hjá
mér, þá helst ítalskar og sænskar kjötbollur. Lamba-
fillet á föstudögum er líka orðin svolítil hefð hjá okk-
ur. Íslenska lambakjötið klikkar aldrei, lífrænt og
gott.“
Morgunblaðið/Ómar
LEIÐIST AÐ FARA EFTIR UPPSKRIFTUM
Tekur áhættu
í eldhúsinu
LÖGFRÆÐINEMINN OG BLOGGARINN ÁSTRÍÐUR ÞÓREY JÓNSDÓTTIR ER
ÁHUGAMANNESKJA UM HEILSUSAMLEGAN MAT OG MÁTT MATARINS. HENNI FINNST
SKEMMTILEGRA AÐ STÍGA ÚT FYRIR ÞÆGINDARAMMANN ÞEGAR HÚN ELDAR.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Ástríður Þórey með syni sínum, Jóni Ómari. Fjölskyldan er dugleg að bjóða í
mat og þykir Ástríði gaman að elda eitthvað nýtt.
1 laukur
2 msk olía
3 væn hvítlauksrif
2 msk tómatmauk
2 dl maukaðir tómatar
1 lítri vatn
1½ grænmetisteningur
1 tsk picanta
½ tsk svartur pipar
1 tsk basilíka
200 g fyllt pasta
1 dl rjómi
100 g rjómaostur
50 g gráðostur
Það má sleppa gráðostinum ef þið borðið
hann ekki , þið finnið samt ekki þetta týp-
íska gráðostabragð heldur verður bragðið
einfaldlega aðeins kraftmeira.
Aðferð:
Saxið laukinn smátt og steikið hann þar
til hann verður mjúkur. Bætið tómatmauki
og tómötum saman við ásamt vatni og til-
heyrandi kryddi. Látið súpuna sjóða við
vægan hita í 15 mínútur. Bætið þá rjóma,
osti og pastanu saman við og sjóðið áfram
við vægan hita þar til pastað er soðið og
osturinn bráðnaður.
Berið súpuna fram með hvítlauksbrauði.
Lúxustómatsúpa