Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.10. 2013 Í vikunni komst glænýr peninga- seðill að andvirði tíu þúsund krón- ur í fréttirnar fyrir það vera kom- inn í umferð. Skömmu eftir fréttir um tilkomu seðilsins bárust fregn- ir af því að seðillinn góði passaði alls ekki í algeng seðlaveski. Reynist hann vera heilum sjö millimetrum lengri en hálfdrætt- ingur hans fimm þúsund króna seðillinn. Fréttin af lengd seðils- ins og misræmi við seðlaveski var mest lesna fréttin á fréttavef RÚV á föstudag. Óvíst er fyrir hve stóran hluta þjóðarinnar þetta vandamál er raunverulegt í daglegu lífi. Kortanotkun er óvíða meiri en hér á landi. Við notum peningaseðla ekkert sérlega mik- ið yfirhöfuð. Þar að auki er rass- vasabókhald þjóðarinnar vel þekkt og því ekki mikil von til þess að nýi seðillinn rati renni- sléttur í vönduð leðurveski nema í örfáum tilvikum. Fréttir af ríflegri lengd nýja seðilsins vekja mann til umhugs- unar. Vandamálið: „Peningarnir mínir passa ekki í veskið!“ er ein- hvern veginn ekki það mest að- kallandi hjá hinum dæmigerða nútímamanni. Þetta er miklu frekar skemmtileg furðufrétt eða einhvers konar ekkifrétt. Þó er auðvitað engin ástæða til annars en að hafa gaman af. En kannski ættu fjölmiðlar bara að ganga alla leið með málið. Hægt væri að finna viðmælendur sem segðu frá vandræðum sínum við að koma seðlinum í veskið. Myndirnar sem fylgdu fréttunum gætu verið af áhyggjufullu fólki sem væri jafnvel gráti næst yfir veskisóláni sínu. Og þó … líklega er vænlegra að lesa viðtöl við fólk sem hefur frá einhverju að segja. Eins og aðrar helgar vonum við að tekist hafi að reiða fram áhuga- vert efni í blaðinu sem nærir and- ann og léttir lundina. RABBIÐ Passlegir peningar Eyrún Magnúsdóttir Ómar Ragnarsson og Jón Þór Birgisson, betur þekktur sem Jónsi í Sigur Rós, eru báðir þekktir fyrir baráttu sína fyrir náttúruvernd og á tíu ára millibili hefur lögreglan haft afskipti af mótmælum þeirra. Ómar var í vikunni handtekinn af lögreglu við Gálgahraun fyrir að reyna að koma í veg fyrri að fram- kvæmdir gætu hafist við nýjan Álftanesveg. Á sínum tíma myndaði Ragnar Axelsson ljósmyndari Morgunblaðsins augnablikið þegar Jónsa vísað út úr Ráð- húsinu vegna mótmæla við Kárahnjúkavirkjun. Síðan eru liðin nákvæmlega tíu ár. Jónsi fékk þó að vísu ekki að prófa að dúsa í fangaklefa eins og Ómar mátti reyna. julia@mbl.is AUGNABLIKIÐ Morgunblaðið/RAX/Júlíus JÓNSI OG ÓMAR „OG ÉG BARA SAT ÁFRAM,“ ERU FLEYGU ORÐ VIKUNNAR. ÓMAR RAGNARSSON OG JÓNSI, SÖNGVARI SIGUR RÓSAR, HAFA BÁÐIR LENT Í SVIÐSLJÓSINU FYRIR AÐ HREYFA SIG HVERGI Í SLAG FYRIR HÖND NÁTTÚRUNNAR. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? Evrópskir kvikmyndadagar. Hvar? Sambíóin (Nýja bíó) Akureyri. Hvenær? Laugardag og sunnudag kl. 18. Nánar: Myndir af evrópskri kvik- myndahátíð með íslenskum texta. Ókeypis aðgangur meðan húsrúm leyfir. Ókeypis í bíó Hvað? Alþjóðlegur stamdagur. Hvar? Hinu húsinu. Hvenær? Laugardag kl. 13-16. Nánar: Málbjörg, fé- lag um stam, býður upp á stamkennslu, lifandi bækur, fræðslu, myndir úr starfi og kaffiveit- ingar. STAMFEST! Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? 30 ára afmæl- ishátíð FTT. Hvar? Kaldalónssal Hörpu. Hvenær? Laugardag kl. 21. Nánar: Fimmtán ís- lensk tónskáld og textahöfundar flytja eigið efni. Verð: 2.900 kr. Tónskáld á tónleikum Hvað? Íslenski kjöt- súpudagurinn. Hvar? Skólavörðustíg. Hvenær? Laugardag kl. 14.00. Nánar: Hinn árlegi kjötsúpudagur þar sem veitingahús í miðborginni bjóða gestum og gangandi upp á þessa íslensku eðalsúpu. Kjötsúpa í miðbænum Hvað? Opni bangsaspítalinn. Hvar? Barnaspítala Hringsins við Hringbraut. Hvenær? Sunnudag kl. 11-17. Nánar: Börn geta komið með laskaða bangsa og fengið lækningu. Bangsaspítalinn Hvað? Kóngulóahátíð. Hvar? Bókasafni Kópavogs. Hvenær? Laugardag kl. 13-14:30. Nánar: Útgáfu á tónlistarævintýrinu Strengir á tímaflakki fagnað með kóngulóasýningu og tónlistaratriðum. Sjálfur kóngulóarmaðurinn mætir. Spiderman í Kópavogi * Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.