Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.10. 2013 I ngó Geirdal er líklega reyndasti at- vinnutöframaður landsins og hafa töfr- arnir borið hann víða. Hann hefur ver- ið fastráðinn á skemmtiferðaskipum í Evrópu, komið fram á fjölmörgum skemmtunum og í sjónvarpsþáttum í Evr- ópu, Bandaríkjunum og Japan svo fátt eitt sé nefnt. Ingó ákvað að verða töframaður eftir að hafa séð Heimsmeistaramót töfra- manna í sjónvarpinu aðeins sex ára gamall. Hann hefur einnig getið sér gott orð fyrir að fara fimum fingrum um rokkgítarinn í hljóm- sveit sinni Dimmu sem nýverið gaf út forláta DVD-disk frá útgáfutónleikum sínum í Hörp- unni. Rokkið kom einnig snemma hjá okkar manni en Ingó segir að hann hafi alist upp við Kiss og Alice Cooper og sé mikill aðdá- andi. Þá er hann mikill Chaplin-maður og á forláta safn með munum frá Charlie Chaplin. Ingó segir að lífið brosi við sér þessa dagana enda gangi vel að heilla fólk upp úr skónum bæði með töfrum og gítarglamri með Dimmu. „Hljómsveitin Dimma varð til í lok árs 2004. Þá var ég búinn að spila með Quarashi í einhvern tíma og túra með þeim í Japan og Bandaríkjunum. Svo fóru þeir að vinna að plötu og ég hafði lítið að gera á meðan þann- ig að ég setti saman band með Silla bróður mínum. Við Silli áttum nokkur lög á lager síðan við vorum saman í Stripshow í gamla daga. Ætluðum bara að klára þau og svo vatt þetta upp á sig,“ segir Ingó, leður- klæddur á Hamborgarabúllunni þar sem við hittumst yfir góðum hamborgara. Dimma samdi allt sitt efni á ensku en breytti því fyrir síðustu plötu, Myrkraverk. Segja má að þá hafi boltinn farið að rúlla og í dag er Dimma ein af stóru þungarokks- böndum Íslands. „Fyrsta platan kom 2005 og við fórum í túr til Bandaríkjanna að reyna að meika það. Árið 2008 kom svo platan Stigmata út en þá var komin þreyta í mann- skapinn og söngvarinn kominn með fjöl- skyldu og í krefjandi nám. Ég fór til Sví- þjóðar og stofnaði fjölskyldu þar þannig að Dimma í þeirri mynd fór á hilluna. Þegar ég flutti aftur heim þá langaði mig að fara á fullt skrið með Dimmu á ný. Stað- an hafði breyst hjá meðlimum og við bræð- urnir vildum taka þetta með trukki og dýfu sem hinir voru ekki tilbúnir í. Þeir héldu því bara áfram að gera það sem þeir voru að gera, en við fórum að finna nýja menn í bandið. Við höfðum strax samband við tromm- arann Bigga (Birgi Jónsson) því hann spilaði á fyrsta laginu sem Dimma gaf út á plötu. Hann hafði ekki tíma þá en hafði tíma núna. Ég var nýskilinn og fluttur heim frá Svíþjóð. Biggi hafði flutt heim frá Hong Kong á svip- uðum tíma þannig að þetta smellpassaði allt saman.“ En Dimmu vantaði rödd. Einhvern með leðurlungu sem gæti fært bandið skör ofar. Silli hafði unnið lag með gítargoðsögninni Gulla Falk þar sem Stefán nokkur Jak- obsson hafði komið og sungið. Þegar þessi staða kom upp, að hin nýja Dimma myndi rísa upp, benti Silli á þennan strák á jútjúb. „Við heyrðum strax að þetta gæti verið okk- ar tebolli. Þegar Biggi kom svo inn í bandið þá var það fyrsta sem hann sagði: Ég veit um söngvara. Þá vorum við allir að tala um sama manninn.“ Áfram hélt bandið að semja á ensku en Bigga fannst það pínu hallærislegt og ekki ekta. Ég er svolítið sammála því. Við höfðum þegar farið að túra erlendis, fórum til Rúss- lands meðal annars og það var ekki eitthvað sem okkur fannst vera málið. Þannig að við ákváðum bara að semja á íslensku, einbeita okkur að Íslandi og sleppa öllu öðru.“ Töldu í og spiluðu á dimmu hóteli í vetrarkulda Platan Myrkraverk hefur selst jafnt og þétt frá því hún kom út á síðasta ári. „Platan var samin á hóteli á Ströndum. Við fórum þang- að í febrúar og þar var kalt og þar var dimmt. Það var bara unnið og ekkert vesen. Talið í og samið. Við settum upp græjurnar í litlum sal á hótelinu og við töldum bara í og fikruðum okkur áfram.“ Síðan platan kom út hefur orðið lítið lát á vinsældum Dimmu. „Tíminn er búinn að fljúga áfram síðan plat- an kom út,“ segir Ingó og fær sér bita af hamborgaranum. „Við settum okkur það markmið að koma plötunni út um jólin 2012. 20. október það ár ætluðum við að vera til- búnir með hana og auglýstum á feisbúkk sérstakt hlustunarpartí, jafnvel þótt lögin væru ekki alveg fullkláruð. Þá átti eftir að gera textana við flest þeirra og þremur dögum áður en partíið var átti enn eftir að útsetja og semja textana við tvö lög, Skuggakvæði og Náttfara. Hlustunarpartíið var auglýst klukkan 21 Galdur að ná til fólks GALDRAROKKARINN INGÓ GEIRDAL HORFÐI Á HEIMSMEISTARAMÓT TÖFRAMANNA Í SJÓNVARPI SEX ÁRA GAMALL OG ÁKVAÐ AÐ VERÐA TÖFRAMAÐUR. TÍU ÁRA ÁRA HRINGDI HANN Í BALDUR BRJÁNSSON OG KYNNTI SIG SEM KOLLEGA HANS. HANN ER GÍTARLEIKARI ÞUNGAROKKS- SVEITARINNAR DIMMU EN Á TÓNLEIKUM SVEITARINNAR Í HÖRPU SEM NÚ ERU KOMNIR ÚT Á MYNDDISKI VORU NOTAÐAR SPRENGJUR SEM URÐU AFGANGS ÞEGAR IRON MAIDEN SPILAÐI Í EGILSHÖLL UM ÁRIÐ. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Viðtal PIPA R\TBW A • SÍA • 130226 Sjóðheitur og safaríkur grillstaður fyrir alla fjölskylduna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.