Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Blaðsíða 4
Tuttugu frambjóðendur gefa
kost á sér í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík fyrir
borgarstjórnarkosningarnar
2014, sem fram fer hinn 16. nóv-
ember næstkomandi.
Þegar fresturinn til að skila
framboði rann út klukkan 16 á
föstudag höfðu tuttugu framboð
borist á skrifstofu Sjálfstæð-
isflokksins í Valhöll. Öll fram-
boðin voru úrskurðuð gild af yf-
irkjörstjórn Varðar –
Fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík.
Þrettán frambjóðendur koma
nýir inn á þennan vettvang en
sjö frambjóðendur starfa sem
borgar- eða varaborgarfull-
trúar.
„Yfirkjörstjórn Varðar fagnar
þeim áhuga sem sjálfstæð-
ismenn hafa sýnt prófkjörinu og
óskar frambjóðendunum öllum
góðs gengis,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Listi yfir frambjóðendur í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík:
Aron Ólafsson
Áslaug María Friðriksdóttir
Björn Gíslason
Björn Jón Bragason
Börkur Gunnarsson
Halldór Halldórsson
Herdís Anna Þorvaldsdóttir
Hildur Sverrisdóttir
Júlíus Vífill Ingvarsson
Kjartan Magnússon
Kristinn Karl Brynjarsson
Lára Óskarsdóttir
Margrét Friðriksdóttir
Marta Guðjónsdóttir
Ólafur Kr. Guðmundsson
Rafn Steingrímsson
Sigurjón Arnórsson
Viðar Guðjohnsen
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Örn Þórðarson
Oft er atgangur við ráðhúsið og hann
minnkar ekki í aðdraganda kosninga.
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.10. 2013
Spurður hvort hann hafi átt
von á því að sjá fleiri sjálf-
stæðismenn gefa kost á sér í
efsta sætið í prófkjörinu í
borginni svarar Grétar neit-
andi. „Ekki fyrst Gísli Mar-
teinn Baldursson dró sig í
hlé.“
Kjartan Magnússon gefur
kost á sér í annað sætið og
Grétari þykir ekki ólíklegt
að svo reynslumikill maður
hafi gælt við fyrsta sætið.
„Þeir Júlíus Víf-
ill hafa unnið
saman lengi og
líklega hefur
Kjartan met-
ið það svo
að Júlíus
sé öfl-
ugri.“
F
yrirfram myndi ég halda
að baráttan um efsta
sætið stæði milli Júlíusar
Vífils Ingvarssonar og
Halldórs Halldórssonar,“
segir Grétar Þór Eyþórsson, stjórn-
málafræðingur og prófessor við Há-
skólann á Akureyri, um prófkjör
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en
frestur til að tilkynna framboð rann
út síðdegis á föstudag. Auk þeirra
tveggja gefa Hildur Sverrisdóttir og
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir kost á
sér í forystusætið.
„Júlíus Vífill hefur verið í fram-
arlega í forystusveit flokksins í
borginni lengi og það hlýtur að
veita honum ákveðna möguleika,“
segir Grétar.
„Halldór er líka mjög öflugur
frambjóðandi. Hann hefur áunnið
sér mikla virðingu innan sveit-
arstjórnargeirans. Hann var lengi
bæjarstjóri á Ísafirði og hefur
staðið sig mjög vel sem formað-
ur Samtaka sveitarfélaga en
sumir segja að það embætti
sé ígildi ráðherrastóls. Það
var það alla vega í tíð Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar. Halldór
hlýtur því að eiga góða möguleika,
þó að ég átti mig ekki á því hvort
hann hafi burði til að fella Júlíus
Vífil.“
Grétar er ekki í vafa um að
áhrifamenn innan flokksins hafi
hvatt Halldór til að fara fram.
„Spennandi verður að sjá hvort
maður geti komið vestan frá Ísafirði
og unnið prófkjör Sjálfstæðisflokks-
ins í borginni.“
Telur Hildi eiga minnsta
möguleika
Grétari þykir Þorbjörg Helga og
Hildur ekki eins líklegar til að fara
með sigur af hólmi. Þær séu
reynsluminni. „Það má þó vel vera
að stemning myndist fyrir því að
kona leiði listann. Þá verður Þor-
björg Helga að teljast líklegri, þar
sem hún hefur verið lengur í borg-
arstjórn en Hildur sem er nýgræð-
ingurinn í hópnum. Hildur á að
mínu mati minnsta möguleika af
þessum fjórum.“
Besti flokkurinn hefur verið að
mælast með ívið meira fylgi en
Sjálfstæðisflokkurinn í borginni í
síðustu skoðanakönnunum. Spurður
hvort einhver þessara kandídata
fjögurra sé líklegri en annar til að
gera Sjálfstæðisflokkinn aftur að
stærsta flokknum í borginni kveðst
Grétar ekki sannfærður um það.
„Ég er ekki viss um að neinn af
þessum frambjóðendum komi til
með að breyta heildarmyndinni í
vor. Ef það er svona mikil bylgja til
Besta flokksins ennþá sé ég ekki að
einhver ákveðin persóna úr röðum
sjálfstæðismanna komi til með að
breyta því.“
Gildir þá einu hvort Jón Gnarr
komi til með að bjóða sig fram aftur
eður ei. „Ég yrði ekkert hissa þótt
hann hætti en ég held ekki að það
yrði neinn dauðadómur yfir Besta
flokknum. Þó að borgarstjórinn hafi
meira og minna verið að sprella á
kjörtímabilinu hafa aðrir í flokknum
gengið í mál og gert hluti. Þess
vegna hefur samstarfið við Samfylk-
inguna gengið allt þetta kjörtímabil.
Sigur í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins er því alls ekki ávísun á borg-
arstjórastólinn.“
Gefi Jón Gnarr borgarstjóri kost á sér til endurkjörs mun hann mæta mikið breyttum lista sjálfstæðismanna.
Morgunblaðið/Eva Björk
VANTAR ENGAN
Kjartan
Magnússon
Sigur í prófkjöri er ekki
ávísun á borgarstjórastólinn
FJÓRIR FRAMBJÓÐENDUR VILJA LEIÐA LISTA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í BORGARSTJÓRNARKOSNINGUNUM Í VOR. GRÉTAR
ÞÓR EYÞÓRSSON STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR TELUR AÐ SLAGURINN STANDI MILLI JÚLÍUSAR VÍFILS OG HALLDÓRS.
Halldór
Halldórsson,
Júlíus Vífill
Ingvarsson,
Hildur
Sverrisdóttir
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
* Ég er ekki viss um að neinn af þessum frambjóðendumkomi til með að breyta heildarmyndinni í vor. Grétar Þór Eyþórsson stjórnmálafræðingur. ÞjóðmálORRI PÁLL ORMARSSON
Orri@mbl.is
Tuttugu
gefa kost
á sér
Morgunblaðið/Eggert