Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Page 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Page 4
Tuttugu frambjóðendur gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2014, sem fram fer hinn 16. nóv- ember næstkomandi. Þegar fresturinn til að skila framboði rann út klukkan 16 á föstudag höfðu tuttugu framboð borist á skrifstofu Sjálfstæð- isflokksins í Valhöll. Öll fram- boðin voru úrskurðuð gild af yf- irkjörstjórn Varðar – Fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík. Þrettán frambjóðendur koma nýir inn á þennan vettvang en sjö frambjóðendur starfa sem borgar- eða varaborgarfull- trúar. „Yfirkjörstjórn Varðar fagnar þeim áhuga sem sjálfstæð- ismenn hafa sýnt prófkjörinu og óskar frambjóðendunum öllum góðs gengis,“ segir í frétta- tilkynningu. Listi yfir frambjóðendur í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík: Aron Ólafsson Áslaug María Friðriksdóttir Björn Gíslason Björn Jón Bragason Börkur Gunnarsson Halldór Halldórsson Herdís Anna Þorvaldsdóttir Hildur Sverrisdóttir Júlíus Vífill Ingvarsson Kjartan Magnússon Kristinn Karl Brynjarsson Lára Óskarsdóttir Margrét Friðriksdóttir Marta Guðjónsdóttir Ólafur Kr. Guðmundsson Rafn Steingrímsson Sigurjón Arnórsson Viðar Guðjohnsen Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir Örn Þórðarson Oft er atgangur við ráðhúsið og hann minnkar ekki í aðdraganda kosninga. 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.10. 2013 Spurður hvort hann hafi átt von á því að sjá fleiri sjálf- stæðismenn gefa kost á sér í efsta sætið í prófkjörinu í borginni svarar Grétar neit- andi. „Ekki fyrst Gísli Mar- teinn Baldursson dró sig í hlé.“ Kjartan Magnússon gefur kost á sér í annað sætið og Grétari þykir ekki ólíklegt að svo reynslumikill maður hafi gælt við fyrsta sætið. „Þeir Júlíus Víf- ill hafa unnið saman lengi og líklega hefur Kjartan met- ið það svo að Júlíus sé öfl- ugri.“ F yrirfram myndi ég halda að baráttan um efsta sætið stæði milli Júlíusar Vífils Ingvarssonar og Halldórs Halldórssonar,“ segir Grétar Þór Eyþórsson, stjórn- málafræðingur og prófessor við Há- skólann á Akureyri, um prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en frestur til að tilkynna framboð rann út síðdegis á föstudag. Auk þeirra tveggja gefa Hildur Sverrisdóttir og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir kost á sér í forystusætið. „Júlíus Vífill hefur verið í fram- arlega í forystusveit flokksins í borginni lengi og það hlýtur að veita honum ákveðna möguleika,“ segir Grétar. „Halldór er líka mjög öflugur frambjóðandi. Hann hefur áunnið sér mikla virðingu innan sveit- arstjórnargeirans. Hann var lengi bæjarstjóri á Ísafirði og hefur staðið sig mjög vel sem formað- ur Samtaka sveitarfélaga en sumir segja að það embætti sé ígildi ráðherrastóls. Það var það alla vega í tíð Vil- hjálms Þ. Vilhjálmssonar. Halldór hlýtur því að eiga góða möguleika, þó að ég átti mig ekki á því hvort hann hafi burði til að fella Júlíus Vífil.“ Grétar er ekki í vafa um að áhrifamenn innan flokksins hafi hvatt Halldór til að fara fram. „Spennandi verður að sjá hvort maður geti komið vestan frá Ísafirði og unnið prófkjör Sjálfstæðisflokks- ins í borginni.“ Telur Hildi eiga minnsta möguleika Grétari þykir Þorbjörg Helga og Hildur ekki eins líklegar til að fara með sigur af hólmi. Þær séu reynsluminni. „Það má þó vel vera að stemning myndist fyrir því að kona leiði listann. Þá verður Þor- björg Helga að teljast líklegri, þar sem hún hefur verið lengur í borg- arstjórn en Hildur sem er nýgræð- ingurinn í hópnum. Hildur á að mínu mati minnsta möguleika af þessum fjórum.“ Besti flokkurinn hefur verið að mælast með ívið meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn í borginni í síðustu skoðanakönnunum. Spurður hvort einhver þessara kandídata fjögurra sé líklegri en annar til að gera Sjálfstæðisflokkinn aftur að stærsta flokknum í borginni kveðst Grétar ekki sannfærður um það. „Ég er ekki viss um að neinn af þessum frambjóðendum komi til með að breyta heildarmyndinni í vor. Ef það er svona mikil bylgja til Besta flokksins ennþá sé ég ekki að einhver ákveðin persóna úr röðum sjálfstæðismanna komi til með að breyta því.“ Gildir þá einu hvort Jón Gnarr komi til með að bjóða sig fram aftur eður ei. „Ég yrði ekkert hissa þótt hann hætti en ég held ekki að það yrði neinn dauðadómur yfir Besta flokknum. Þó að borgarstjórinn hafi meira og minna verið að sprella á kjörtímabilinu hafa aðrir í flokknum gengið í mál og gert hluti. Þess vegna hefur samstarfið við Samfylk- inguna gengið allt þetta kjörtímabil. Sigur í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins er því alls ekki ávísun á borg- arstjórastólinn.“ Gefi Jón Gnarr borgarstjóri kost á sér til endurkjörs mun hann mæta mikið breyttum lista sjálfstæðismanna. Morgunblaðið/Eva Björk VANTAR ENGAN Kjartan Magnússon Sigur í prófkjöri er ekki ávísun á borgarstjórastólinn FJÓRIR FRAMBJÓÐENDUR VILJA LEIÐA LISTA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í BORGARSTJÓRNARKOSNINGUNUM Í VOR. GRÉTAR ÞÓR EYÞÓRSSON STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR TELUR AÐ SLAGURINN STANDI MILLI JÚLÍUSAR VÍFILS OG HALLDÓRS. Halldór Halldórsson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Hildur Sverrisdóttir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir * Ég er ekki viss um að neinn af þessum frambjóðendumkomi til með að breyta heildarmyndinni í vor. Grétar Þór Eyþórsson stjórnmálafræðingur. ÞjóðmálORRI PÁLL ORMARSSON Orri@mbl.is Tuttugu gefa kost á sér Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.