Morgunblaðið - 23.11.2013, Síða 1
Guðmundur Magnússon.
gudmundur@mbl.is
Hratt hefur dregið úr atvinnuleysi á Suður-
nesjum að undanförnu. Gróska er í sjávar-
útvegi og ferðaþjónustu á svæðinu. Margs kon-
ar frumkvöðla- og nýsköpunarstarf hefur
skotið rótum. Góður árangur grunnskólanem-
enda í samræmdu prófunum í haust hefur glatt
fólk og skapað stolt í byggðunum. Suðurnesja-
menn eru sannfærðir um að þeim sé að takast
að vinna sig út úr erfiðleikunum sem verið
hafa undanfarin ár.
Þetta er meðal þess sem fram kom í hring-
borðsumræðum um málefni Suðurnesja sem
Morgunblaðið efndi til í tengslum við 100 daga
hringferð blaðsins um landið. Greint er frá um-
ræðunum á tveimur opnum í blaðinu í dag.
Fram kom að tölulegur samanburður sem
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum lét
vinna sýndi að íbúar svæðisins byggju við
skarðan hlut í fjárveitingum til ýmissa þátta
opinberrar þjónustu. Þessi mismunur væri al-
veg óútskýrður.
„Það er krafturinn í fólkinu sem gerir Suð-
urnesin svo áhugaverð,“ sagði einn þátttakenda
í umræðunum. „Það er búið að byggja upp
sterka innviði á svæðinu og hvergi eru meiri
tækifæri til uppbyggingar og atvinnusköp-
unar,“ sagði annar. »22-25
Landið loks að rísa á Suðurnesjum
Vinna sig út úr erfiðleikum Kraftur í fólkinu
Morgunblaðið/RAX
Hringborðið Sterkir innviðir á svæðinu og tæki-
færi til uppbyggingar og atvinnusköpunar.
L A U G A R D A G U R 2 3. N Ó V E M B E R 2 0 1 3
273. tölublað 101. árgangur
JÓLABLAÐIÐ
JÓLALEGAR BOLLAKÖKUR, JÓLABJÓR,
ÍSLENSKAR ÚRVALSJÓLAPLÖTUR
OG MARGT FLEIRA Í 128 SÍÐNA AUKABLAÐI
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Samkvæmt skoðanakönnun Félags-
vísindastofnunar Háskóla Íslands
fyrir Morgunblaðið myndi L-listinn
á Akureyri bíða afhroð ef gengið yrði
til sveitarstjórnarkosninga nú. List-
inn fengi 13,5% atkvæða og einn
bæjarfulltrúa kjörinn en fékk 45% í
síðustu kosningum og sex manna
hreinan meirihluta.
Björt framtíð kæmi ný inn í bæj-
arstjórn með 16% atkvæða og tvo
menn. Sjálfstæðisflokkurinn fengi
mest fylgi, eða 20,7%, og þrjá menn
kjörna. VG fengi 16% og tvo menn,
Framsóknarflokkurinn 15,6% og tvo
menn og Samfylkingin 11% og einn
mann. Bæjarlistinn fengi aðeins
1,7% atkvæða, myndi missa sinn eina
mann í dag. Hinir minnihlutaflokk-
arnir í bæjarstjórn eru núna með
einn mann hver.
Um síma- og netkönnun var að
ræða dagana 7. til 21. nóvember sl.
Úrtakið var samanlagt 625 manns og
svarhlutfallið 61%.
ML-listinn myndi bíða afhroð »6
Meirihlutinn
myndi kolfalla
L-listinn myndi missa 5 bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokkur fengi tveimur fleiri
Fylgi flokka í bæjarstjórn Akureyrar
Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ
fyrir Morgunblaðið 7.-21. nóvember 2013
20,7% 16,0%
16,0%
15,6%
13,5%
11,0%
2,1%1,7%
3,4%
Sjálfstæðisflokkurinn 20,7%
Björt framtíð 16,0%
Vinstri - græn 16,0%
Framsóknarflokkurinn 15,6%
Listi fólksins 13,5%
Samfylkingin 11,0%
Píratar 2,1%
Bæjarlistinn 1,7%
Annar flokkur eða listi 3,4%
Nokkur af öflugustu íþrótta-
félögum landsins eru í Kópavogi og
leggja þau mikla áherslu á barna-
og unglingastarf. Fjölbreytt
íþróttaaðstaða hefur verið byggð
þar upp, enn er þó skortur á hús-
næði og allt að 3-4 ára bið er eftir
að komast að hjá Gerplu. HK hefur
unnið markvisst að því að færa æf-
ingar barna fram á daginn og býð-
ur upp á ferðir á milli hverfa bæj-
arins og æfingasvæða. Fjallað er
um mannlíf og menningu í Kópa-
vogi í dag og er umfjöllunin hluti
100 daga hringferðar Morg-
unblaðsins. »26-35
Öflugt íþróttalíf
barna í Kópavogi
Elísabet II. Bretadrottning heimsótti á fimmtudaginn Southwark-
dómkirkju í Lundúnum. Tilefni heimsóknarinnar var að skoða gler-
listaverk sem Leifur Breiðfjörð gerði, en hann vann samkeppni sem efnt
var til í tilefni af sextíu ára valdaafmæli drottningarinnar. Heimsóknin var
einkaheimsókn drottningar í kirkjuna, en kirkjan var samt sem áður full af
fólki, og var Leifur kallaður upp í athöfninni, en verkið var endurvígt í til-
efni af heimsókninni.
„Drottningin er indæl kona og við ræddum saman í einar 10 mínútur,“
segir Leifur. „Hún var mjög ánægð og sagði að þetta væri alveg „splen-
did“. Það var mjög gaman að hitta hana.“ Hann segir drottninguna hafa
haft mikinn áhuga á að hlusta á frásögn hans af tilurð verksins. „Glugginn
var settur upp og vígður fyrir einu og hálfu ári, en hún hefur ekki haft
tíma til að vitja hans fyrr en núna,“ sagði Leifur.
AFP
Listaverkið Drottningin snýr að Leifi, sem snýr baki í myndavélina. Leifur
sagði drottninguna hafa lýst verkinu sem ágætu eða „splendid“ á ensku.
Drottningin ánægð
með glugga Leifs Norðmaðurinn Magnus Carlsen varðí gær heimsmeistari í skák. Carlsen tryggði sér titilinn með
því að gera jafntefli við Indverjann
Viswanathan Anand í 10. skák
þeirra um titilinn. Þetta var í fyrsta
skipti frá árinu 1921 sem Rússi eða
Sovétmaður var ekki í úrslitum
heimsmeistaramótsins í skák.
Norskir fjölmiðlar fagna sigri Carl-
sens og segja sigur hans aldrei hafa
verið í hættu. Haft er eftir skák-
sérfræðingum á vef Aftenposten að
hann kunni hreinlega að verða
ósigrandi takist honum að bæta opn-
unarleiki sína, sem þykja hans eini
veikleiki. »38 og Sunnudagsblað
Segja meistarann geta orðið ósigrandi
AFP
Heimsmeistari Jafntefli dugði fyrir
Magnus Carlsen í skák gærdagsins.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Þrátt fyrir minnkandi atvinnuleysi
eru bótasvik enn algeng í atvinnu-
leysisbótakerfinu. Í fyrra rannsak-
aði eftirlitsdeild Vinnumálastofn-
unar (VMST) tæplega 700 mál þar
sem grunur var um misnotkun.
Lauk 527
málum með
viðurlögum
og skilaði
eftirlitið 572
milljóna kr.
sparnaði, þar
sem tókst að
uppræta
bótasvik og
endurheimta
ofteknar
bætur. Í dag
er þó ein-
ungis einn
starfsmaður
eftir sem sinnir eftirlitsverkefnum
sem þrír sinntu áður.
Ábendingum um
bótasvik hefur fjölgað
VMST fær fjölda ábendinga um
bótasvik og hefur einstökum mál-
um sem tekin eru til rannsóknar í
kjölfar þess eða þar sem grunur
vaknar um að einstaklingur í at-
vinnuleit hafi haft rangt við fjölgað
á þessu ári. Í fyrra voru þau 187 en
það sem af er þessu ári eru slík
mál orðin 250. Málum sem koma
upp við samkeyrslu atvinnuleys-
isskrár við aðrar skrár hefur á
hinn bóginn fækkað.
Þegar atvinnuleysið var sem
mest eftir hrunið var talið að bóta-
svikin næmu um milljarði á ári.
Baldur I. Aðalsteinsson, deild-
arstjóri eftirlitsdeildarinnar, er
þeirrar skoðunar að ástandið sé
enn mjög slæmt. Hugarfars-
breytingar sé þörf meðal Íslend-
inga. »40
Á sjötta
hundrað
svikamál
Ástandið enn mjög
slæmt að mati VMST
Eftirlitið
» 75 voru
beittir viður-
lögum þegar í
ljós kom að
þeir óku leigu-
bílum í afleys-
ingum leyfis-
hafa og þáðu
líka bætur.