Morgunblaðið - 23.11.2013, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2013
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Búið var að upplýsa Þórarin G. Pét-
ursson, aðalhagfræðing Seðlabanka
Íslands, um það fyrir aðeins fáeinum
vikum að það stæði alls ekki til af
hálfu sérfræðingahóps stjórnvalda
um skuldavanda heimilanna að setja
fram tillögur sem gerðu ráð fyrir að
leiðréttingarsjóður yrði fjármagnað-
ur í gegnum Seðlabankann.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um Morgunblaðsins átti Þórarinn,
ásamt öðrum hagfræðingum á hag-
fræðisviði Seðlabankans, fund með
sérfræðingahópnum um höfuðstóls-
lækkun verðtryggðra lána í lok síð-
asta mánaðar. Á þeim fundi var
fulltrúum Seðlabankans gerð grein
fyrir því að það væri alveg skýrt að í
tengslum við ólíkar leiðir sem hóp-
urinn væri að útfæra vegna niður-
færslu á verðtryggðum skuldum
heimilanna fælist engin þeirra í því
að fjármagna skuldalækkanir í gegn-
um Seðlabanka Íslands. Már Guð-
mundsson seðlabankastjóri var ekki
á þessum fundi.
Á opnum fundi efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis síðastliðinn
mánudag sagði aðalhagfræðingur
Seðlabankans hins vegar að lánshæf-
iseinkunn ríkissjóðs myndi fara í
ruslflokk yrði bankanum gert að
fjármagna skuldaleiðréttingarsjóð.
Þetta kom fram í svari hans við fyr-
irspurn Helga Hjörvars, þingmanns
Samfylkingarinnar.
„Það að fjármagna [leiðréttingar-
sjóð] í gegnum efnahagsreikning
Seðlabankans yrði í fyrsta lagi ólög-
legt miðað við núverandi lög. […]
Það er auðvitað hægt að breyta þeim
lögum en ég held að það yrði örugg-
asta leiðin til að senda lánshæfisein-
kunn ríkissjóðs beint niður í rusl-
flokk. En við erum ekki búnir að sjá
útfærsluna og verðum bara að bíða
og sjá,“ sagði Þórarinn.
Seðlabankastjóri bætti því hins
vegar við að það hefði verið „fullyrt“
í hans eyru að „það standi ekki til að
fjármagna þetta í gegnum efnahags-
reikning Seðlabankans“.
Tillögum skilað í næstu viku
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra brást illa við um-
mælum aðalhagfræðings í kjölfar
fundar efnahags- og viðskiptanefnd-
ar og haft var eftir honum í fjölmiðl-
um að Seðlabankinn myndi ekki
stöðva áform ríkisstjórnarinnar um
skuldaleiðréttingar. Taldi hann enn-
fremur að nálgun tiltekinna starfs-
manna bankans í þessum efnum ætti
meira skylt við pólitík en stjórn pen-
ingamála.
Gert er ráð fyrir því að sérfræð-
ingahópurinn skili tillögum sínum til
ríkisstjórnarinnar í næstu viku.
Ekki fjármagnað í gegnum SÍ
Búið var að upplýsa aðalhagfræðing Seðlabanka Íslands um að leiðréttingarsjóður yrði ekki fjár-
magnaður í gegnum Seðlabankann Sagði lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fara í ruslflokk ef slíkt yrði gert
Aðalhagfræðingur SÍ Þórarinn G. Pétursson sagði að lánshæfismat ríkisins
færi í ruslflokk ef Seðlabankanum yrði gert að fjármagna leiðréttingarsjóð.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Hagnaður Eimskips nam 9,6 millj-
ónum evra (tæpum 1,6 milljörðum
króna) á fyrstu níu mánuðum ársins
sem er 29,7% minni hagnaður heldur
en á sama tímabili í fyrra er hagn-
aðurinn nam 13,7 milljónum evra,
eða sem nemur 2,25 milljörðum
króna.
Á þriðja ársfjórðungi nam hagn-
aðurinn 5 milljónum evra, sem nem-
ur 822 milljónum króna, samanborið
við 5,8 milljónir evra á sama tímabili
í fyrra.
Flutningsmagn jókst um 4,1%
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eim-
skips segir afkomuna í takt við vænt-
ingar.
„Flutt magn til og frá Íslandi jókst
frá því sem var á síðasta ári og snéri
við þeirri þróun sem orðið hafði á
fyrri hluta ársins. Flutningsmagn í
áætlunarsiglingum á þriðja ársfjórð-
ungi jókst um 4,1% á milli ára og var
vöxtur á öllum markaðssvæðum.
Magn í alþjóðlegri flutningsmiðlun á
þriðja ársfjórðungi jókst um 7,6% á
milli ára.
EBIDTA hækkaði um 5,2%
Rekstrartekjur á þriðja ársfjórð-
ungi jukust um 0,8% á milli ára og
námu 113,5 milljónum evra.
EBITDA nam 12,1 milljón evra sem
er hækkun um 5,2% frá fyrra ári að
teknu tilliti til einskiptiskostnaðar
vegna skráningar félagsins á markað
á síðasta ári.
Eins og áður hefur komið fram
gerði félagið umfangsmiklar breyt-
ingar á siglingakerfinu í mars sem
jók afkastagetu kerfisins um 7,7% og
hefur breytingunum verið vel tekið
af viðskiptavinum innanlands og er-
lendis,“ er meðal annars haft eftir
Gylfa Sigfússyni í fréttatilkynningu.
Nánar á mbl.is
Minni hagnaður
hjá Eimskip
Afkastagetan hefur aukist um 7,7%
Morgunblaðið/Eggert
Eimskip Gylfi Sigfússon forstjóri.
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Dreymir þig nýtt eldhús!
Hjá þaulvönum starfsmönnum GKS færðu sérsmíðað eldhús
og allar innréttingar sem hugurinn girnist.
Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði
alla leið inn á þitt heimili.
Rau›arárstígur 14 · s. 551 0400 · www.myndlist.is
Rafskinna
Unnur Ýrr
Helgadóttir
Tímaflóð
SýningaR í galleRí Fold
auglýSingaR 1933–1957
Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16
Síðasta sýningarhelgi
Síðustu forvöð að koma með
listaverk á stærsta uppboð ársins
sem verður í desember í gallerí Fold