Morgunblaðið - 23.11.2013, Blaðsíða 30
KÓPAVOGUR
DAGA
HRINGFERÐ
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Rapparinn og tónlistarmaðurinn
Erpur Eyvindarson ólst upp á Vest-
fjörðum, Danmörku og víða um
Reykjavík en hann tengir hins vegar
alltaf mest við Kópavoginn.
„Ástæðan fyrir því að mér finnst
Kópavogur vera nær mér er að þetta
er staðurinn þar sem ég missti svein-
dóminn, datt fyrst í það sem ungling-
ur og allt fjörið. Um leið og maður
byrjaði að þykjast ætla að verða ein-
hver manneskja þá var það allt í
Kópavogi,“ segir Erpur um þráðinn
sem liggur á milli hans og bæjarins.
Erpur bjó í Vesturbæ Kópavogs
á unglingsárum og segir talsverðan
vitleysisgang hafa verið á krökkunum
í bænum á þessum tíma.
„Það var svolítið mikið vesen.
Brjóta rúður og kveikja í. Það var
kveikt í skiptistöðinni og í Kárs-
nesskóla, skólanum mínum. Í Þing-
holtsskóla var alltaf verið að kveikja í
flugeldum í skólanum og það voru
slagsmál á milli hverfa. Yngri nem-
endurnir voru teipaðir við ljósa-
staura. Það voru allir að fá sér þegar
ég var í grunnskóla og menn voru
fullir. Það reyktu allir og kennararnir
reyktu með nemendunum. Starfsfólk
félagsmiðstöðvarinnar var með reyk-
ingaherbergi sem krakkarnir reyktu
líka í,“ segir hann.
Tímarnir eru hins vegar aðrir í
dag og því tekur Erpur eftir þegar
hann spilar fyrir krakka á þessum
sama aldri. „Þetta er rosalega vel
heppnað. Það drekkur enginn og
reykir enginn. Grunnskólarnir eru
bara orðnir held ég eins og þeir eiga
að vera. Framfarirnar sem hafa átt
sér stað eru svakalegar.“
Leiðindi mikilvæg listsköpun
Rapp á íslensku átti vöggu sína í
Kópavogi á sínum tíma og var meðal
annars Erpur ásamt rapparanum
Sesar A í fararbroddi.
„Ef þú býrð í 101 Reykjavík leið-
ist þér ekki. Þú ferð bara út og það
eru kaffihús og alltaf eitthvað að ger-
ast. Kópavogurinn er ekki alveg með
þetta. Þegar fólki leiðist fer það að
gera eitthvað skemmtilegt. Þannig
gerist allt það flottasta. Allt það
merkilegasta í Bandaríkjunum kem-
ur úr skítafátækrahverfum, fullt af
rokkurum hefur komið úr hjólhýs-
unum. Í gettóunum eru aðstæður þar
sem fólki leiðist. Það er einkennandi
fyrir góða listsköpun. Þér þarf að
leiðast og reyna að djassa hlutina
upp,“ segir Erpur um Kópavog sem
innblástur hiphoptónlistar.
Manhattan Íslands
Hamraborgin í Kópavogi hefur
stundum legið undir ámæli fyrir að
vera ljót og illa skipulögð. Erpur bjó
þar á tímabili og er alls ekki sammála
þessu. „Það er allt hérna; kaffihús,
veitingastaðir, sjoppur, vídeóleigur,
spilavíti og bensínstöð undir Hamra-
borginni. Hvað geturðu beðið um
meira? Það er ekki að ástæðulausu að
menn kalla Hamraborgina Manhatt-
an Íslands. Í raun og veru er lífið og
menningin samt meira eins og Mont-
martre í París; listamenn, mikil kaffi-
húsastemning, líf í götunum og
draumarnir. Það hefur tekist gríðar-
lega vel að sameina allt það besta úr
öllum helstu borgum heimsins en án
alls þessa leiðinlega,“ segir Erpur.
Í vor verða bæjarstjórnarkosn-
ingar en síðustu ár hefur hinn pönk-
aði Næstbesti flokkur átt fulltrúa í
stjórn bæjarins. Erpi líst vel á þá
uppástungu blaðamanns hvort ekki
sé þörf fyrir hiphopstjórnmálaafl í
Kópavogi. Hvernig bæjarstjóri yrði
Erpur?
„Fyrst af öllu yrði ég borgar-
stjóri Kópavogs. Ég yrði gríðarlega
laufléttur og myndi hressa bæjar-
félagið þvílíkt upp. Menn mættu gera
hvað sem er svo lengi sem þeir sköð-
uðu ekki næsta mann. Kópavogur
myndi vera eins og Kristjanía, súper-
lýðræðislegur, eins og stórt sam-
yrkjubú. Þetta yrði djassað gríðar-
lega upp. Bærinn yrði að ofur-
umhverfisvænu prójekti og það yrði
gróður á þökunum í Hamraborginni
með hengibrúm á milli húsa,“ segir
Erpur stórhuga.
Biður ekki um
meira en
Hamraborg
Erpur sér fyrir sér lýðræðislegt og
umhverfisvænt samyrkjubú í Kópavogi
Morgunblaðið/Ómar
Erpur í Hamraborg,
sem hann líkir við
verk arkitektsins
Gaudís.
Líf og fjör Mannlíf og menning í Hamraborg er líkast Montmartre í París að
sögn Erps þó að arkitektúrinn sé meira í anda Manhattan í New York.
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Jóhann Fannar Kristjánsson er 18 ára afreks-
íþróttamaður í fimleikum. Morgunblaðið leit inn
á æfingu hjá Gerplu, þar sem hann æfir tvisvar í
viku. Jóhann er elstur þriggja systkina, en hann
er með Downs-heilkenni.
Spjall okkar Jóhanns byrjaði með öfugum
formerkjum, því fyrsta spurning Jóhanns til
mín var hvort ég væri „svona Manchester-
maður.“ – „Já,“ svaraði ég undrandi, óvanur því
að viðmælendur byrji spjall á að spyrja mig að
nokkru. Þrátt fyrir takmarkaðan áhuga á
íþróttinni hef ég haft taugar til liðsins frá
bernsku. „Hvernig vissir þú það?“ spurði ég í
framhaldi. Jóhann brosti bara sposkur til mín.
Púlari og Bliki
Sjálfur er Jóhann mikill stuðningsmaður
Liverpool. Hann horfir á alla leiki liðsins sem
hann getur með föður sínum, Kristjáni Jóns-
syni, sem hann segir að sé líka gallharður stuðn-
ingsmaður Bítlaborgarliðsins. Ekki nóg með að
liðsmenn Liverpool fái hvatningarhróp frá Jó-
hanni, því hann er einnig mikill aðdáandi heima-
liðs sín Breiðabliks.
Meðal Blika tilgreindi hann sérstaklega
Árna Vill (Vilhjálmsson), sem sé stuðnings-
fulltrúi hans þegar hann er ekki að raða inn
mörkum, og Sverri Inga Ingason. Guðmann
Þórisson og Alfreð Finnbogason væru líka með-
al hans bestu vina. Ósk Víðisdóttir, móðir Jó-
hanns, sagði hann mæta á alla heimaleiki
karlaliðs Breiðabliks í knattspyrnu, og jafnvel
fylgja liðinu á útileiki. „Hann hefur farið með
þeim upp á Akranes og farið með þeim í rút-
unni að keppa og svoleiðis. Þeir taka hann
mjög mikið með sér. Eftir alla leiki fær hann
svo að fara inn í klefann hjá liðinu. Svo fékk
hann ferð á Liverpool-leik í fermingargjöf,“
sagði Ósk.
Fimur í hringjunum
Jóhann sagði gaman að æfa fimleika með
Gerplu undir handleiðslu þjálfaranna sinna, Ax-
els og Evu. „Ég keppi í hringjum, á bogahesti,
tvíslá og á svifslá. En mér finnast hringirnir
skemmtilegastir,“ sagði Jóhann Fannar.
Jóhann er einnig mikill áhugamaður um
kvikmyndir, þá sérstaklega myndir með Tom
Cruise, Bond-myndir og allar myndirnar um
Harry Potter. „Mér finnst Harry Potter og
leyniklefinn langskemmtilegust.“
Jóhann Fannar stundar nám á starfsbraut
Fjölbrautaskólans í Breiðholti, en Morg-
unblaðið fjallaði í lok sumars um framsæknar
kennsluaðferðir og tæknivæðingu starfsbraut-
arinnar. Starfsbrautin heldur meðal annars úti
virkri facebook-síðu undir heitinu „Starfs-
braut“.
Þar sagðist Jóhann læra ýmislegt, en
tilgreindi sérstaklega náttúrufræði og ensku,
sem honum þykir skemmtilegust. „Grjóthart,“
svaraði Jóhann svo þegar ég sagði honum að
hópur nemenda á starfsbraut væri vænt-
anlegur í heimsókn á ritstjórnarskrifstofur
Morgunblaðsins í næstu viku.
Þrenn gullverðlaun á tvennum
Special Olympics
Jóhann hefur keppt fyrir hönd Íslands á
tvennum Special Olympics, í Sjanghæ árið 2007
og í Aþenu árið 2011. Á fyrri leikunum fékk
hann tvenn gullverðlaun og gull-, silfur- og
bronsverðlaun á þeim síðari. Hann stefnir
Ætlar á Special Olympics í Los Angeles 2015
Þrefaldur gullverð-
launahafi á Special
Olympics Ötull
stuðningsmaður Liver-
pool og Breiðabliks
Morgunblaðið/Kristinn
Gerpla Jóhann Fannar æfir með Gerplu. Æfingarnar eru oft hápunktur dagsins hjá honum.
Á haus Jóhann Fannar er fimur í hringjunum.
ótrauður á leikana í Los Angeles árið 2015 og
eru liðsfélagar hans í Gerplu sannfærð um að
hann verði meðal þeirra íþróttamanna sem fari
þangað. „Hann er kóngurinn,“ sagði einn æf-
ingafélagi hans. Jóhann hefur æft fimleika frá
sjö ára aldri og hefur gengið mjög vel að sögn
Óskar. „Stuðningsfulltrúinn hans í Kópavogs-
skóla benti okkur á að koma hingað, sem varð til
þess að hann byrjaði að æfa.“
Hún segir Gerplu halda mjög vel utan um
fötluðu íþróttamennina. „Þau gera mjög miklar
kröfur, manni finnast þær eiginlega alveg jafn-
miklar og eru gerðar til ófatlaðra,“ sagði Ósk.
Hins vegar hafi því miður þurft að fækka æfing-
um úr þremur í tvær af fjárhagslegum ástæð-
um. Fleiri þjálfara sé þörf fyrir hvern fatlaðan
iðkanda en ófatlaðan og því dýrara að halda úti
æfingum fyrir þá. Ósk segir þetta miður, því Jó-
hann hlakki mikið til að fara á æfingar, og að
þetta sé mikilvægur þáttur í félagslífi hans.
Skannaðu kóðann
til að sjá viðtal við
Erp .
Á mánudaginn verður komið við á Kjalar-
nesi á 100 daga hringferð Morgunblaðsins.
Á mánudaginn
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2013
30