Morgunblaðið - 23.11.2013, Blaðsíða 68
LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 327. DAGUR ÁRSINS 2013
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Þráir faðmlag frá föður sínum
2. Nauðgaði og myrti kennara sinn
3. Selur meydóminn í annað sinn
4. Rekinn úr landsliðinu fyrir ...
Kvikmyndagerðarmennirnir Friðrik
Grétarsson og Ómar Sverrisson vinna
að heimildarmynd um tónlistarmann-
inn Herbert Guðmundsson sem þeir
hafa fylgst með í rúm þrjú ár. Einnig
er væntanlegur tvöfaldur safndiskur
með helstu smellum Herberts, ann-
ars vegar hljómdiskur og hins vegar
mynddiskur sem hefur að geyma
fjölda myndbanda. Herbert fagnar
bæði 40 ára starfsafmæli í ár og sex-
tugsafmæli.
Heimildarmynd og
tvöfaldur safndiskur
Áhugaljós-
myndarinn Jó-
hann Smári Karls-
son opnar ljós-
myndasýninguna
Iceland my way í
Róm, 28. nóv-
ember nk. Sýn-
ingin er haldin í
boði borgaryfir-
valda. Myndirnar tók Jóhann í bús-
áhaldabyltingunni 2008-9.
Búsáhaldabyltingar-
myndir í Rómaborg
Þann 20. nóvember sl. voru liðin 24
ár frá því Barnasáttmáli Sameinuðu
þjóðanna var samþykktur og verður
haldið upp það í aðalsafni Borgar-
bókasafns, Tryggvagötu 15, á morgun
kl. 15 með menningarmóti. Á því fá
börn tækifæri til að kynna sína menn-
ingu og áhugamál, m.a. með því að
koma með hluti sem skipta
þau máli eða bjóða upp á
atriði. Þeir sem vilja taka
þátt eru beðnir um að
senda tölvupóst á
netfangið krist-
in.r.vilhjalmsdott-
ir@reykjavik.is.
Sáttmála fagnað með
menningarmóti
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægviðri og víða léttskýjað. Suðaustan 5-10 m/s og þykknar upp
SV-lands með kvöldinu. Frostlaust með suður- og vesturströndinni. Frost 0-10 stig.
Á sunnudag Gengur í sunnan 8-13 m/s með dálítilli snjókomu sunnan- og vestanlands,
en síðar slyddu eða rigningu og hita 1-6 stig. Hægara og þurrt norðaustantil og minnk-
andi frost. Á mánudag Suðvestan 10-15 m/s og rigning víða á landinu, en þurrt að kalla
austanlands. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast fyrir austan.
„Veiking liðanna í úrvalsdeildinni
skýrir e.t.v. þær sveiflur sem hafa
verið í leik margra þeirra í deild-
arkeppninni. Liðin eru yfirleitt skipuð
ungum leikmönnum, sem eru að
stíga sín fyrstu skref, í bland við eldri
leikmenn sem sumir hverjir hafa lifað
sitt fegursta í íþróttinni,“ segir Ívar
Benediktsson m.a. um íslenska hand-
boltann í Viðhorfi á laugardegi. »4
Veiking liðanna skýrir
sveiflur í leik þeirra
Eygló Ósk Gústafsdóttir úr
Ægi bætti tvö Íslandsmeta
sinna á fyrsta degi Íslands-
meistaramótsins í 25 metra
laug í Ásvallalaug í Hafn-
arfirði í gær. Hún bætti met
í 200 metra baksundi og
fjórsundi. Sveit Fjölnis, með
afmælisbarnið og Ólympíu-
meistarann Jón Margeir
Sverrisson innanborðs,
bætti 12 ára met í 4x200
metra skriðsundi. »1
Þrjú Íslandsmet
féllu á fyrsta degi
„Það reikna flestir með að Stabæk
fari með sigur af
hólmi en við
vitum að
það getur
allt gerst í
bikarleik og
það er engin
hræðsla í okk-
ur þó svo við vit-
um að Stabæk er
með mjög gott lið
sem hefur unnið
marga titla,“ seg-
ir Hólmfríður
Magnúsdóttir,
einn fjögurra
Íslendinga
sem geta tek-
ið þátt í úr-
slitaleik
norsku bik-
arkeppn-
innar í dag.
»2
Engin hræðsla þó Sta-
bæk sé mjög gott lið
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Kvenfataverslunin Bernharð Laxdal
á Laugavegi á 75 ára starfsafmæli í
ár. Hún er elsta starfandi kvenfata-
verslun landsins, stofnuð árið 1938 á
Akureyri af Bernharð Laxdal klæð-
skera.
Núverandi eigendur hennar eru
hjónin Guðrún R. Axelsdóttir og
Einar Eiríksson, þau keyptu versl-
unina árið 2001 af Þyri Laxdal, dótt-
ur Bernharðs.
„Verslunin var fyrst eingöngu á
Akureyri en útibú var opnað í
Reykjavík árið 1959, á annarri hæð í
Kjörgarði við Laugaveg, en það var
fyrsti stórmarkaðurinn á Íslandi,“
segir Guðrún. Árið 1984 flytur versl-
unin í núverandi húsnæði, á Lauga-
vegi 63, og er eingöngu starfrækt
þar nú. „Þetta er upprunalega kápu-
búð og við erum mjög trú þeim upp-
runa, leggjum mikla áherslu á kápur
og aðrar yfirhafnir en erum líka með
allan annan almennan kvenfatnað,“
segir Guðrún.
– Hvers vegna heldur þú að versl-
unin hafi gengið svona lengi?
„Ég held að það sé út af stöðug-
leikanum og því að það hefur aldrei
verið slegið af kröfunum, við höfum
alltaf boðið upp á góða vöru frá
þekktum framleiðendum. Ég ákvað
það þegar hrunið kom að fara ekki í
fótspor margra sem fóru út í ódýr-
ara og slógu af gæðunum. Fólk vill
kaupa vandað, sem það getur átt
lengi, og fá góða þjónustu. Svo erum
við með sterkan og góðan kúnnahóp
en maður heldur honum ekki nema
maður vandi sig. Við leggjum gríðar-
lega mikið upp úr þjónustunni og
það kann fólk að meta.“
Guðrún segir mikla breidd vera í
aldurshópi viðskiptavinanna. „Mér
finnst þær alltaf vera að yngjast sem
koma til okkar. Þegar ég byrjaði ár-
ið 2001 fannst mér þetta oftar vera
eldri konur en í dag er stór kúnna-
hópur á milli þrítugs og fertugs. Þær
byrja kannski að koma með mömmu
eða ömmu og sjá hvað er í boði hér
og fara svo að kaupa á sjálfar sig.
Við erum líka með föt sem höfða til
yngri kvenna og góðar stærðir.“
Clinton keypti sér úlpu
Guðrún segir ferðamenn koma
heilmikið inn í verslunina en fræg-
asti viðskiptavinur Bernharðs Lax-
dal er án efa Hillary Clinton. Hún
keypti yfirhöfn í versluninni þegar
hún var í heimsókn hér á landi árið
1999. „Af myndum að dæma hefur
Hillary notað úlpuna sem hún keypti
heilmikið,“ segir Guðrún sem horfir
bjartsýn fram á veginn og ætlar að
halda verslunarrekstrinum eins
lengi áfram og hún hefur gaman af
honum.
Þrátt fyrir að vera orðin 75 ára er
verslunin Bernharð Laxdal í takt við
tímann en hún er bæði með heima-
síðu þar sem skoða má úrvalið og
með Facebook-síðu.
Elsta kvenfataverslun landsins
Bernharð Laxdal á Laugavegi er 75
ára Var upprunalega kápubúð
Morgunblaðið/Kristinn
Verslun Guðrún R. Axelsdóttir, til vinstri, ásamt samstarfskonum sínum þeim Rannveigu Ingvarsdóttur, Lilju Sveinsdóttur og Önnu Þórisdóttur.
Regnhlífarkonan er merki Bern-
harðs Laxdal. Það var teiknað af
Magnúsi Pálssyni listamanni í
kringum 1960. „Þetta lógó hefur
alveg staðist tímans tönn. Ég hef
oft verið spurð út í það erlendis,
það er tekið eftir myndinni á
nafnspjaldinu,“ segir Guðrún.
Það hefur aldrei komið til greina
að skipta um nafn á versluninni.
„Það er svolítið fyndið að stund-
um koma herramenn inn og
halda að við seljum
herrafatnað því
búðin ber nafn karl-
manns. En það hef-
ur aldrei komið til
greina að skipta
um nafn.“
Hefur staðist
tímans tönn
REGNHLÍFARKONAN