Morgunblaðið - 23.11.2013, Blaðsíða 39
FRÉTTIR 39Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2013
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Jólavörurnar eru komnar í Álnabæ
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
Jólagardínur, jóladúkar og jólaefni
Líttu við og
skoðaðu úrv
alið
Jean Kennedy Smith, systir John F. Kennedy, drúpir
höfði eftir að hafa lagt blómsveig við leiði bróður síns
í kirkjugarðinum í Arlington í Virginíu. Við hlið henn-
ar standa nánustu ættingjar hennar.
Hafði Eric H. Holder, dómsmálaráðherra Bandaríkj-
anna, áður vottað Kennedy virðingu sína við leiðið.
Fimmtíu ár voru í gær liðin síðan John F. Kennedy
var skotinn þar sem hann sat í bíl sínum á Dealey-
torgi í borginni Dallas í Texas klukkan hálfeitt eftir
hádegi 22. nóvember 1963. Hann lést af sárum sínum
skömmu síðar.
Harmleiksins var minnst um gervöll Bandaríkin en
fram kom á vef New York Times að minning-
arathafnir yrðu m.a. haldnar við John F. Kennedy-
safnið í Boston og við St. Matthew’s dómkirkjuna í
Washington. Þá voru athafnir haldnar við marga
skóla. Árið 1964 hafði fyrsti skólinn verið nefndur eft-
ir Kennedy.
AFP
Kennedy-fjölskyldan syrgir
„Hér á Dealey-torgi eru allir dag-
ar 22. nóvember 1963,“ segir leið-
sögumaðurinn Michael Scott Aston
þar sem hann sýnir ferðamönnum
staðinn þar sem John F. Kennedy
var særður banasári fyrir ná-
kvæmlega hálfri öld í gær.
Fréttastofa AFP leit þar við
fyrr í mánuðinum og komst þá að
því að þeir sem aðhyllast samsær-
iskenningar um dauða forsetans
reyni að sannfæra gesti um að hin
opinbera útgáfa af morðinu sé
fölsk.
Leiðsögumaðurinn Aston hélt
hins vegar sínu striki og benti á
staðinn þaðan sem skothvellur
heyrðist úr nálægri byggingu.
En það var þar þaðan sem Lee
Harvey Oswald skaut á Kennedy
sem þá veifaði til viðstaddra úr bíl
sínum. Tveimur dögum síðar, 24.
nóvember 1963, var Oswald skot-
inn til bana af Jack Ruby, eiganda
næturklúbbs í borginni Dallas.
Meðal viðstaddra á torginu var
Margie Benson, áttræð kona bú-
sett í Dallas, sem man það eins og
það hefði gerst í gær þegar yf-
irmaður hennar kallaði á hana og
sagði að forsetinn hefði verið skot-
inn. „Allir voru í áfalli. Það sló
þögn á viðstadda í sorginni,“ sagði
Benson er hún rifjaði upp daginn
örlagaríka.
John Templin, 51 árs gamall
maður frá Troy í Ohio var einnig
við torgið en hann sagði foreldra
sína hafa skírt sig í höfuðið á John
F. Kennedy forseta.
Á Dealey-torgi er alltaf
22. nóvember 1963
AFP
Rós á leiðinu Kennedys forseta var
minnst víða um Bandaríkin í gær.