Morgunblaðið - 23.11.2013, Side 11
fjórar íbúðir í hverju húsi sem er um
300 fermetrar. Þar er reiknað með að
geti verið sjö hundruð manns,“ segir
Árni Björn.
Heita vatnið lykillinn
Á svæðinu í Ölfusi þar sem Árni
Björn hefur fengið vilyrði fyrir landi
er bæði heitt og kalt vatn. „Ég hef
líka átt í viðræðum við Orkuveituna
og fyrirhugað er að leggja yfirfallsrör
frá Hellisheiðarvirkjun til sjávar og
það verður 85 gráða heitt og það
verður hægt að nýta sem forhitun
fyrir sundlaugarnar og annað því það
verður náttúrlega heitt þarna inni.“
Auk þess hafa landeigendur á svæð-
inu heimilað að borað verði eftir heitu
vatni.
Árni Björn hefur nú þegar feng-
ið tilboð í þök frá fyrirtæki í Norfolk á
Englandi en það sama fyrirtæki
byggði Eden Project í Cornwall í
sama landi. Þar er fjölbreytt flóra og
sömuleiðis dýralíf í trópísku loftslagi
innan kúlulaga gróðurhúsa.
Nokkrir fjárfestar hafa gengið
til liðs við Árna Björn en hann segir
að því fleiri sem komi að verkinu með
fjármagn, þeim mun meiri líkur séu á
því að hægt sé að hefjast handa.
„Ég reikna með að við förum
bara í gang þegar það liggur fyrir og
svo er reiknað með að það taki þrjú ár
að byggja þetta.“
Hann hefur fundað með sveit-
arstjórn Ölfuss og segir vel hafa verið
tekið í hugmyndirnar.
Hugmyndin er áhugaverð og
verður gaman að fylgjast með fram-
gangi mála. Aðspurður af hverju eng-
inn hafi gert neitt sambærilegt hér á
landi segist Árni Björn hreinlega ekki
skilja það. „Kannski finnst mönnum
þetta dálítið stórtækt og að þetta sé
einum of, en málið er það að þessi
þróun sem orðið hefur í ferða-
mannabransanum núna sýnir okkur
að það verður að fjárfesta. Öngþveitið
á helstu ferðamannastöðum er orðið
það mikið að færri komast að en vilja
og þá þarf að fjárfesta,“ segir Árni
Björn Guðjónsson, hugmyndasmiður
Aqua Islandia.
Aqua Islandia Þrívíddarlíkan af
svæðinu séð framan frá. Þrjú ár tek-
ur að reisa byggingarnar.
Drög Árni Björn teiknaði
þessi drög að hugmyndinni
árið 2011. Síðan þá hefur
hann unnið hörðum höndum
að því að fá fjárfesta með
sér í lið.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2013
Svindlandi mölur nefnist stór-
skemmtilegt og tiltölulega ein-
falt spil fyrir alla fjölskylduna.
Sagt er að spilið sé fyrir sjö ára
og eldri en þó er ljóst að yngri
krakkar sem fljótir eru að læra
geta vel spilað þetta spil.
Til þess að spilið gangi upp er
bráðnauðsynlegt að láta eitt og
eitt spil hverfa – sem auðvitað er
stranglega bannað í venjulegum
spilum, en þetta er ekki alveg
venjulegt spil. Markmiðið með
spilinu er að losa sig við sem flest
af hendi án þess að andstæðing-
arnir taki eftir. Hér reynir því á
kænsku og lymskubrögð. Sá elsti
af leikmönnunum fær það hlut-
verk að vera varðlús. Í því felst
að hann á að fylgjast mjög vel
með hegðun annarra leikmanna.
Spil vikunnar Svindlandi mölur
Spil fyrir þau yngri þar
sem má og á að svindla
Ef hann sér einhvern svindla þá
er að sjálfsögðu refsing við því
eins og í öðrum almennilegum
spilum. En á meðan varðlúsin sér
ekki til er um að gera að nýta
tækifærið vel, annaðhvort með
því að lauma spilunum undir
borðið, henda þeim yfir öxlina
eða fela þau uppi í erminni.
Aldur 7+
Verð frá 2.699 kr.
Kostir Spennandi, fjörugt og
margir geta verið með.
Gallar Það getur verið þreytandi
fyrir þann elsta að gegna alltaf
hlutverki varðlúsarinnar en um
það hlýtur að vera hægt að semja
við aðra leikmenn.
Sölustaðir Hagkaup og
www.nordicgames.is
nazar.is · 519 2777
LÚXUSFRÍ FYRIR ALLA!
ÍSLENSKIR BARNAKLÚBBAR Á 0 KR.
Swim a’hoy!
Hér lærir barnið að
synda í sumarfríinu
Dance Stars
Núna geta bæði þú
og börnin lært að
dansa í fríinu!
Sjóræningja-
klúbbur
Barnaklúbbur með
sjóræningjaskemmtun
Chillout Klúbbur
Griðarstaður Ungling-
anna með allskonar
afþreyingu
20.000kr.
afsláttur á mann,
ef þú bókar fyrir
30 nóv. 2013*
FJÖLSKYLDUPARADÍS
Eitt okkar vinsælasta hótel með 10.000 m2 sundlaug
Á Pegasos World er ein stærsta
sundlaug Miðjarðarhafsins
og einnig glæsilegur
sundlaugargarður með
frábærum vatnsrennibrautum.
Stutt er á ströndina, en íslenskir
barnaklúbbar og íslensk
fararstjórn er á hótelinu. Ís er í
boði allan daginn og úrvalið í
„allt innifalið“ er ótrúlegt.
Allt innifalið frá 155.000,-
Börn undir 16 ára aldri frá 79.000,-
BEINT FLUG FRÁ KEFLAVÍK TIL TYRKLANDS
* Afslátturinn gildir ekki á ódýru barnaverðin okkar