Morgunblaðið - 23.11.2013, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2013
Við sérhæfum okkur í
vatnskössum og bensíntönkum.
Gerum við og eigum nýja til á lager.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mikil uppbygging er á gistiaðstöðu í
sveitarfélaginu Hornafirði. Reiknað
er með að um 200 gistirúm bætist við
á næsta ári og enn fleiri á næstu ár-
um „Aukin eftirspurn kallar á aukna
þjónustu,“ segir Árdís Erna Hall-
dórsdóttir, framkvæmdastjóri Ríkis
Vatnajökuls sem er ferðaþjónustu-
klasi í Austur-Skaftafellssýslu.
Í könnun sem Guðrún Sigurðar-
dóttir gerði kemur fram að 46 gisti-
staðir eru í sýslunni með samtals
1.564 gistirúm. Mikið hefur verið að
gera hjá flestum eða öllum hótelum
og gistiheimilinu á sumrin og mörg-
um þurft að vísa frá og nú er unnið að
stórfelldri uppbyggingu. Margir eru
að bæta við herbergjum og bæta að-
stöðuna eða koma upp nýjum gisti-
stöðum.
Fosshótel Vatnajökull á Lindar-
bakka er að endurnýja hótelið frá
grunni, bæta við 40 herbergjum og
stækka aðra aðstöðu. Hótel Jökull er
að stækka, einnig gistiheimilið í
Árnanesi og nýtt gistihús er að rísa á
Seljavöllum. Öll þessi gistihús eru í
Nesjum í Hornafirði. Gistiheimilið
Hali í Suðursveit er að stækka sem
og sveitahótelið á Smyrlabjörgum.
Þá undirbúa Fosshótel byggingu
nýs 116 herbergja glæsihótels rétt
austan við Hnappavelli í Öræfum.
Það gæti komist í gagnið á árinu
2016.
Bráðvantar fleiri herbergi
„Það hefur verið stöðug aukning í
mörg ár og frá árinu 2009 hefur bráð-
vantað fleiri herbergi,“ segir Stefán
Þór Arnarsson, hótelstjóri á Fosshót-
eli Vatnajökli. „Við erum ekki aðeins
að stækka heldur að taka alla aðstöð-
una í gegn. Það var orðið tímabært
svo við gætum verið samkeppnisfær-
ir við það besta sem gerist í Evrópu.“
Stefán segir að Fosshótel sjái
tækifæri í því að leggja meira í að-
stöðuna og koma þannig með eitt-
hvað nýtt inn á ferðaþjónustumark-
aðinn í Hornafirði. „Við höfum
náttúruna og margt annað upp á að
bjóða en ef við getum ekki boðið upp
á úrvals gistingu og þjónustu gæti
farið að hægja á fjölguninni. Fram-
vindan er undir okkur sjálfum komin.
Við þurfum að standa undir vænting-
um gestanna svo þeir fari ánægðir,“
segir Stefán.
Meirihluti opinn allt árið
Áætlað er að 90 herbergi bætist
við fyrir næsta sumar og að gistirúm
verði 1.770 sem er rúmlega 200 rúma
fjölgun frá þessu ári.
Í könnun Guðrúnar kemur fram
að um tveir þriðju gistihúsanna eru
opnir allt árið en einn þriðji er aðeins
opinn yfir sumarið. Sömu sögu er að
segja um afþreyingarfyrirtækin.
Sumarvertíðin er alltaf að lengjast,
að sögn Árdísar, og stendur frá byrj-
un maí og fram í október. „Það eru
samt sem áður miklar árstíðasveifl-
ur. Við erum að vinna að því að fá
meiri stöðugleika í greinina með því
að byggja upp í vetrarferðaþjón-
ustu,“ segir Árdís og tekur fram
að það hafi gengið vel. Mikil
umferð hafi til dæmis verið í
vetur, ekki síst að Jökuls-
árlóni. Það þýðir að fleiri
geta treyst á ferðaþjón-
ustuna sem heils árs vinnu.
Samkvæmt könnun Guð-
rúnar eru 700 störf við ferða-
þjónustu í Austur-Skafta-
fellssýslu, mest á
sumrin en umreikað
til heils árs eru
stöðugildin 312.
Hótelbygging Sex bursta viðbygging er byggð við Fosshótel Vatnajökul á Lindarbakka og eldri byggingar jafnframt teknar í gegn. 40 herbergi bætast við
og öll aðstaða verður bætt. Áformað er að opna hótelið að nýju um miðjan maí. Tölvumyndin sýnir hvernig nýja húsið mun líta út.
Bæta við 200 gistirúmum
Mikil uppbygging hótela og gistiheimila í Austur-Skaftafellssýslu
Stöðugri fjölgun ferðafólks fylgt eftir 700 starfsmenn í ferðaþjónustunni
Í tilefni af
væntanlegri
ferð skák-
félagsins
Hróksins til
Upernavik á
Grænlandi í
næstu viku
verður haldinn
Grænlands-
dagur í Kringl-
unni á sunnu-
dag milli
klukkan 14 og
16. Þar munu liðsmenn Hróksins
kynna starf sitt á Grænlandi og
taka við gjöfum til grænlenskra
barna.
Hróksmenn biðja almenning að
mæta í Kringluna á sunnudag, bæði
til að kynnast starfi félagsins á
Grænlandi og eins að færa börn-
unum þar gjafir í tilefni jólanna.
Sérstaklega er óskað eftir gjöfum
sem hvorki eru plássfrekar né
þungar, til dæmis vettlingum, trefl-
um, húfum, litabókum, litum og
öðru skemmtilegu dóti.
Grænlandsdagur
Hróksins á sunnudag
Grænlensk börn
að tafli.
Töluvert hefur verið kvartað undan
ógætilegum akstri ökumanna í
Ánanaustum í Vesturbæ Reykjavík-
ur undanfarin misseri og ár. Lög-
reglan hefur oft verið kölluð þarna
til vegna þessa og haft afskipti af
ökumönnum sem erfitt eiga með að
virða lög og reglur.
„Lögreglan mun áfram fylgjast
vel með umferðinni á þessum stað
auk þess sem eftirlitsmyndavél hef-
ur nú verið komið upp til að fylgjast
sérstaklega með ökumönnum sem
fara þarna um. Aksturslag sumra
þeirra hefur skapað bæði hættu og
óþægindi fyrir aðra og hvetur lög-
regla þá sem þannig haga sér til að
láta af slíkri hegðun,“ segir í til-
kynningu frá lögreglunni.
Hert eftirlit með
akstri í Ánanaustum
Hlutfall nagladekkja í Reykjavík
reyndist 28% á móti 72% naglalaus-
um í talningu sem gerð var 14. nóv-
ember sl. Í fyrra var hlutfallið svip-
að eða 26% á móti 74%, samkvæmt
upplýsingum frá Reykjavíkurborg.
Borgin lætur reglulega kanna
hlutfallið milli negldra og ónegldra
hjólbarða. Undanfarna vetur hefur
hlutfall negldra dekkja hæst farið í
34-36% í febrúar og mars en slík
dekk eru aðeins leyfileg í borginni
á tímabilinu 1. nóvember til 15. apr-
íl.
Í tilkynningu frá Reykjavík segir
að ókostir við nagladekk í borgum
séu að þau spæna malbik upp
hundraðfalt meira en önnur dekk
og það valdi svifryksmengun í lofti,
margfaldi kostnað við viðhald
gatna auk hávaðamengunar.
Ný rannsókn Vegagerðarinnar á
samsetningu svifryks í lofti sýnir að
hlutfall malbiks í svifryki hefur
lækkað úr 55% í 17% en aftur á móti
hefur hlutfall sóts farið úr 7% í 30%.
Skýringin er talin geta verið sú, að
bílaflotinn á höfuðborgarsvæðinu
hafi frá árunum 1999-2002 til upp-
hafs árs 2013 stækkað um 27,8%.
Þá hafi hlutfall dísilbíla einnig auk-
ist en sótmengun frá dísilbílum er
meiri en frá bensínbílum. Svifryk í
Reykjavík hefur farið níu sinnum á
þessu ári yfir sólarhrings-
heilsuverndarmörk.
Hljólbarðar Rúmur fjórðungur bíla á höf-
uðborgarsvæðinu er á nagladekkjum.
Rúmur fjórðungur
bíla á nagladekkjum
Hótelið sem Fosshótel hyggj-
ast byggja á Hnappavöllum í
Öræfasveit verður 116 her-
bergja glæsihótel. Mikið verð-
ur lagt í útlit og á húsið að
hafa svipmót bæjartorfanna í
sveitinni. Fosshótel leggja
rúma tvo milljarða í nýbygg-
inguna og endurnýjun hótels-
ins í Hornafirði. „Við erum
að nýta gott gengi að
undanförnu og þann
hagnað sem af því hefur
hlotist til að fjárfesta
til framtíðar í greininni.
Þessar metnaðarfullu
framkvæmdir í Austur-
skaftafellssýslu eru liður
í því,“ segir Stefán
Þór Arnarsson.
Glæsihótel í
Öræfasveit
FJÁRFEST TIL FRAMTÍÐAR
Árdís Erna
Halldórsdóttir