Morgunblaðið - 23.11.2013, Blaðsíða 34
KÓPAVOGUR
DAGA
HRINGFERÐ
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2013
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Félagar í Hjálparsveit skáta í Kópa-
vogi eru ávallt reiðubúnir í hvaða
aðstæðum sem er að leggja allt til
hliðar til að koma öðrum til bjargar
eða hjálpar. Þeir rjúka fram úr
hlýju rúmi um miðja nótt, hlaupa af
mikilvægum fundi í vinnunni eða
leggja frá sér hnífapörin þegar verið
er að snæða jólasteikina á að-
fangadagskvöld. Það er aldrei spurt
um stund né stað þegar kemur að
útköllum.
Hjálparsveit skáta í Kópavogi
var stofnuð árið 1969, þar eru um
400 skráðir félagar, þar af eru um
120 sem sinna stærsta hluta starfs-
ins og um 40% félagsmanna eru
konur. Sveitin fer í 50-55 útköll á ári
hverju. Enginn veit hvenær næsta
útkall berst og því er ekki nóg að fé-
lagar í sveitinni séu ávallt viðbúnir
því að vera kallaðir út, tækjabún-
aður þarf einnig að vera í fullkomnu
standi öllum stundum.
6.000 tímar á ári í viðhald
„Við verjum um 6.000 vinnu-
stundum á ári í viðhald á tækjum
þannig að þau séu alltaf útkallshæf,“
segir Stefán Jökull Jakobsson, einn
félaga sveitarinnar. Um 120 félagar
skipta með sér þessari vinnu og
tækin sem Stefán vísar til eru fimm
jeppar, snjóbíll og vörubíll til að
flytja hann, fjórir vélsleðar, sér-
útbúinn rústagámur til að skipu-
leggja aðgerðir ef jarðskjálfti ríður
yfir og tveir bátar, annar harðbotna
og hinn slöngubátur.
Tækjabúnaður er bæði sér-
hæfður og dýr. Snjóbíl sinn fékk
sveitin t.d. frá sænska hernum og
síðan var hann lagaður að þörfum
sveitarinnar.
Hjálparsveitin hefur aðsetur
sitt í nýrri björgunarmiðstöð við
höfnina í Kópavogi. Sveitin hefur
reyndar verið í þessu sama húsi
nánast frá stofnun og hefur smám
saman eignast stærri hluta af hús-
næðinu. Undanfarin tvö ár hefur
verið unnið að því hörðum höndum
að endurgera húsnæðið og var það
vígt formlega fyrr í þessum mánuði.
Ein af ástæðunum fyrir staðsetning-
unni við sjóinn er 20 manna öflugur
bátaflokkur sveitarinnar, en björg-
unarsveitarmenn í þeim hópi þurfa
að geta brugðist skjótt við þegar
þeirra er þörf. Stefán sýnir blaða-
manni og ljósmyndara Morgun-
blaðsins annan af bátunum sem er
níu metra langur og harðbotna. „Við
sjósetjum bátinn á skömmum tíma,
það tekur 10-15 mínútur að manna
svona bát, koma honum í höfnina og
út. Útkallstími í sjó er mjög skamm-
ur, því lífstími fólks þar er stuttur
og voðinn vís,“ segir Stefán.
Fyrir utan það að sinna útköll-
um, hvað felur það í sér að vera fé-
lagi í björgunarsveit? „Það er ým-
islegt. Það er starfsemi í gangi í
húsinu alla daga vikunnar. Við erum
t.d. með vinnukvöld einu sinni í viku
og förum á reglulegar æfingar og
námskeið.“
Um 25 í þjálfun á hverju ári
Til þess að verða fullgildur fé-
lagi í sveitinni þarf að gangast undir
18 mánaða þjálfun og lágmarksaldur
er 18 ára. Margir félaganna eiga
bakgrunn úr skátastarfi og Stefán
segir mjög vel ganga að fá nýtt fólk
til liðs. „Á hverju ári hefja um 25
þjálfunarferli og fimm árum síðar
eru yfirleitt um tíu þeirra ennþá
starfandi.“ Er það nægileg endur-
nýjun? Já, það er það.“ Hafa nýlið-
arnir raunsanna mynd af starfi
björgunarsveita í byrjun? „Það er
Enginn veit hvenær
næsta útkall berst
„Þú mátt aldrei gleyma að þú ert að gera þetta af kærleik“
Björgunarmiðstöð Undanfarin tvö ár hefur sveitin unnið að endurgerð
húsnæðisins, en fyrst hafði hún aðsetur í litlum hluta þess.
Salurinn Allt hönnunarferlið miðaði að því að ná fram sem bestum hljómburði í tónleikasalnum.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Á menningartorfunni í Kópavogi er
m.a. að finna Gerðarsafn, Náttúru-
fræðistofu Kópavogs, Bókasafn
Kópavogs, Tónlistarskóla Kópavogs
og Salinn, tónlistarhús Kópavogs. Sal-
urinn var opnaður í janúar 1999 og
var fyrsta sérhannaða tónleikahús Ís-
lendinga. Í upphafi, þegar unnið var
að skipulagi á torfunni, stóð til að Sal-
urinn yrði einfaldlega 100 manna sal-
ur, þar sem tónleikar og fyrirlestrar
gætu farið fram, en að áeggjan Jón-
asar Ingimundarsonar, píanóleikara
og tónlistarráðunautar Kópavogs, og
fleiri var ákveðið að ráðast í byggingu
tónleikahúss. Í dag rúmar Salurinn
300 manns í sæti.
„Í öllu hönnunarferlinu var fyrst
og fremst lögð áhersla á hljómburð-
inn og hvernig hann yrði sem bestur.
Sætin eru t.d. þannig að hljómurinn
breytist ekki hvort sem salurinn er
fullsetinn eða ekki,“ segir Aino
Freyja Järvelä, forstöðumaður Sal-
arins. „Salurinn er hannaður með
klassíska kammertónleika í huga þó
svo rafmagnaðir tónleikar hljómi þar
vel og njóti mikilla vinsælda, meðal
annars vegna þeirrar einstöku ná-
lægðar sem myndast milli flytjenda
og áheyrenda,“ segir hún en fyrstu
tíu árin eða svo var hryggjarstykkið í
starfseminni tónleikaröðin Tíbrá.
Þegar mest var stóð Kópavogs-
bær árlega fyrir allt að 40 tónleikum í
Salnum en Aino Freyja segir að kjöl-
far bankahrunsins 2008 hafi verið
gerðar breytingar á starfseminni og
tónleikasalurinn í auknum mæli
leigður út. Salurinn tók sjálfur yfir
Tíbrá, sem ber nú nafnið Klassík í
Salnum, en lista- og menningarráð
Kópavogs hefur m.a. veitt listamönn-
um styrki í formi niðurgreiddrar
leigu og gerði nýverið þriggja ára
samning við Björn Thoroddsen um
djass- og blúshátíð Kópavogs, sem
mun eiga heimili í Salnum.
20.000-30.000 gestir á ári
Aino Freyja segir tónleikagesti
Salarins hafa talið á milli 20.000 og
30.000 á ári en þar fer fram ýmis önn-
ur starfsemi en tónleikahald. „Tón-
listarskólinn hefur aðgang að salnum
á mánudögum og til að halda sína
nemendatónleika og svo eru haldnar
hér ráðstefnur og fundir og brúðkaup
og erfidrykkjur,“ segir hún. Hún seg-
ist ekki merkja að tilkoma Hörpu hafi
haft teljandi áhrif á rekstur Salarins;
aðsókn hafi a.m.k. ekki minnkað.
Hins vegar hafi orðið vart ákveðinnar
mettunar á markaði í vor, þegar
sprenging varð í framboði tónleika.
Á dagskránni í vetur eru auk
klassísku tónleikaraðarinnar hádeg-
istónleikar og úrval jólatónleika.
„Markmiðið með Klassík í Salnum er
að bjóða upp á bestu tónleikana í
klassíska geiranum og þar eru gæðin
í fyrirrúmi,“ segir Aino Freyja. „Svo
bjóðum við upp á hádegistónleika
einu sinni í mánuði og sú röð vex með
hverjum tónleikum hvað áhorf-
endafjölda viðkemur.“ Hún segir tón-
leikaröð Jóns Ólafssonar, Af fingrum
fram, einnig njóta mikilla vinsælda en
meðal þeirra listamanna sem efna til
jólatónleika í Salnum í ár má nefna
KK og Ellen, Gissur Pál og Árna
Heiðar, Borgardætur og Stefán
Hilmarsson.
Hannaður fyrir klassíska kammertónleika
Fyrsta sérhann-
aða tónleikahús
Íslendinga
Viðburðir Salurinn er leigður út fyrir brúðkaup, erfidrykkjur og ráðstefnur.
„Maður er útkalls-
hæfur og tilbúinn
365 daga ársins, 24
tíma á sólarhring.
Hvenær sem er. Út-
köllin berast á öllum
tímum sólarhrings
og á öllum dögum.
Frá því að ég byrjaði
fyrir 15 árum hefur
tvisvar sinnum verið
kallað út á að-
fangadagskvöld. Í
bæði skiptin var það
leit að fólki. Þá er
ekkert annað að
gera en að leggja frá
sér hnífapörin,“ seg-
ir Stefán Jökull.
Útkall á aðfangadagskvöld
365 DAGAR ÁRSINS - 24 TÍMAR Á SÓLAHRING