Morgunblaðið - 23.11.2013, Síða 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2013
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Það er markmið kínverskra stjórn-
valda að veltan af viðskiptum ESB-
ríkjanna og Kína verði komin í þús-
und milljarða bandaríkjadala 2020.
Li Keqiang, forsætisráðherra
Kína, gerði þetta að umtalsefni í
grein sem hann ritaði í Daily Tele-
graph í tilefni af 16. fundi kínverskra
stjórnvalda og forystumanna ESB í
Peking fyrir helgi.
Ræðir við leiðtoga Evrópu
Var þar m.a. rætt um undirbúning
að samkomulagi sem ætlað er að
stórauka fjárfestingu Kínverja í
Evrópu annars vegar og Evrópu-
manna í Kína hins vegar.
Li fylgir fundinum eftir með heim-
sókn til Evrópu þar sem hann mun
hitta að máli forsætisráðherra 16
ríkja í Austur- og Mið-Evrópu í Búk-
arest.
Fram kemur í frétt Financial Tim-
es að þótt ESB-ríkin hafi verið
stærsti útflutningsmarkaður Kína í
níu ár samfleytt og Kína verið annar
helsti útflutningsmarkaður ESB-
ríkjanna, hafi fjárfesting ESB-
ríkjanna í Kína verið lítil og öfugt.
Segir blaðið að líklega verði gengið
frá samkomulagi sem greiði fyrir
gagnkvæmum fjárfestingum eftir
tvö til þrjú ár. Samkomulagið verði
það fyrsta sinnar tegundar af hálfu
ESB síðan Lissabon-samkomulagið
veitti forystumönnum ESB heimild
til að ráðast í slíka samningsgerð.
Fríverslunarviðræður
eru hins vegar í biðstöðu
Hefur blaðið jafnframt eftir evr-
ópskum diplómötum að forystumenn
ESB séu hins vegar ekki reiðubúnir
til að ganga frá fríverslunarsamningi
að sinni. Koma deilur um meintar
niðurgreiðslur kínverskra stjórn-
valda á sólarsellum þar við sögu.
Aðeins 2-4% af erlendri fjárfest-
ingu ESB-ríkjanna fer til Kína og fer
hlutfallið eftir því hvort Hong Kong
er talið með eða ekki.
Að sögn Financial Times er fjár-
festingarsamkomulaginu ætlað að
auka vægi ESB í augum kínverskra
ráðamanna, þeir kjósi frekar að
semja milliliðalaust við evrópsk ríki.
Hefur blaðið eftir heimildarmanni að
heimsókn Li til Búkarest hafi valdið
titringi meðal forystu ESB. Beinar
viðræður kínverskra stjórnvalda við
evrópsku forsætisráðherranna séu
túlkaðar sem viðleitni til að „deila og
drottna“ í Evrópu.
Kína fjárfesti meira í Evrópu
Forsætisráð-
herra Kína boðar
stóraukin viðskipti
AFP
Evrópsk tækni í Kína Airbus A320 farþegaþota í smíðum í hafnarborginni
Tianjin. Airbus bárust nýverið pantanir frá Kína í 43 slíkar farþegaþotur.
Gufumökkur stígur frá gíg nýrrar
eyju sem risið hefur úr hafinu um
hálfan kílómetra suðaustur af
Nishinoshima-eyju, um 1.000 km
suður af Tókýó.
Nýja eyjan er um 200 metrar í
þvermál og er gígurinn tengdur
eldfjalli í nágrenni Nishinoshima-
eyju. Japanska strandgæslan hvet-
ur sjófarendur til að gæta ýtrustu
varúðar, en fram kemur á vef Jap-
an News að annar gígur gæti
myndast í eldgosi á hafsbotni.
Nishinoshima-eyja er 650 metra
löng og 200 metra breið og er hluti
af Ogasawara-eyjaklasanum. Nýja
eyjan hefur ekki fengið nafn.
Eyja rís úr hafi
JAPAN
AFP
Úr sjó Eyjan hefur ekki fengið nafn.
Baldur Arnarson
Guðmundur Sv. Hermannsson
„Þetta er í skáksögulegu samhengi á
við uppgang til dæmis Mikhaíls Tals
fyrir 1960 og uppkomu Garrís Kasp-
arovs og Anatólís Karpovs. Að sumu
leyti minnir þetta jafnvel á uppgang
Bobby Fischers. Það má segja að
þetta sé með
dramatískustu at-
burðum skáksög-
unnar,“ segir
Helgi Ólafsson
stórmeistari í til-
efni af því að
Norðmaðurinn
Magnus Carlsen
varð í gær heims-
meistari í skák.
Carlsen tryggði
sér titilinn með
því að gera jafntefli við Indverjann
Viswanathan Anand í 10. skák þeirra
um heimsmeistaratitilinn. Endaði
Carlsen með 6,5 vinninga en Anand
3,5 vinninga. Carlsen, sem er 22 ára,
er 20. heimsmeistarinn í skák og
fyrsti Norðurlandabúinn í þeim hópi.
Þetta var í fyrsta skipti frá árinu 1921
sem Rússi eða Sovétmaður var ekki í
úrslitum heimsmeistaramótsins.
Maður óvenjulegra hæfileika
Helgi segir það vera athyglisvert.
„Carlsen kemur úr umhverfi þar
sem skák var ekki jafn mikið í háveg-
um höfð og hjá ýmsum stórþjóðum.
Þetta er því magnað. Ég vil hins veg-
ar taka fram að Norðmenn hafa ávallt
átt marga góða menn í skákinni, sem
héldu merkileg mót, eins og Arnold
Eikrem (1932-96).“ – Er þetta til vitn-
is um að skákheimurinn sé að breyt-
ast?
„Kannski má draga af þessu víð-
tækar ályktanir. Við lifum á allt öðr-
um tímum núna. Skákin er grein sem
snýst um upplýsingar. Að taka á móti
miklum upplýsingum og velja það
besta er sérstakur hæfileiki sem er
greinilega til staðar hjá Magnus Carl-
sen fyrir utan alla aðra hæfileika sem
eru óvenjulegir. Ferill hans er mjög
sérstakur, að hann skuli spretta upp
og leggja heiminn að fótum sér. Þetta
heimsmeistaraeinvígi staðfestir það
sem hefur verið að gerast undanfarin
ár að Carlsen er gjörsamlega að rúlla
mönnum upp.“
– Hvað gerir hann óvenjulegan?
„Carlsen hefur mjög sérstaka
hæfileika. Hann er með frábæra ein-
beitingarhæfni og reiknigetu sem er
mjög mögnuð. Svo er hann líka með
magnað keppnisskap. Þótt hann sé
gerólíkur Fischer er hann líkur hon-
um að því leyti að hann teflir allar
skákir í botn og gerir engar mála-
miðlanir. Þetta hefur einkennt Carl-
sen sérstaklega á síðari árum. Hann
er mikill bardagamaður. Það er engin
spurning.
Anand var engin fyrirstaða. Ég átti
von á að hann yrði miklu öflugri í
þessu einvígi. Hann átti í raun og
veru ekki möguleika.
Carlsen tókst að þröngva sínum
skákstíl upp á Anand og hann komst
aldrei frá því. Ég er sannfærður um
að Carlsen ákvað að velja ekki besta
leikinn í einni stöðu til þess að tryggja
sér stöðu sem hann vissi að hann gæti
ekki tapað.“
Sá langsterkasti í heiminum
Að sögn Helga er kynslóð Anands
víkjandi og önnur kynslóð að taka við
með Carlsen í broddi fylkingar.
Norðmaðurinn sé í sérflokki.
„Það er engin spurning að Carlsen
er langsterkasti skákmaður heims í
dag og ótvíræður heimsmeistari. Það
er sérstaklega ánægjulegt fyrir Nor-
eg að eignast svona afreksmann.“
– Sérðu einhvern sem mun hafa
roð við Carlsen á næstu árum?
„Ég held að fram komi talsvert
ungur maður að fást við Carlsen, ekki
nema Kasparov snúi aftur. Hann hef-
ur boðið sig fram sem forseti Al-
þjóðaskáksambandsins en maður veit
aldrei,“ segir Helgi.
„Með dramatískustu atburðum“
Helgi Ólafsson stórmeistari segir heimsmeistaratitil Magnus Carlsen stórtíðindi í skákheiminum
Carlsen óvenjuhæfileikaríkur Sigurgangan minni á uppgang helstu skáksnillinga sögunnar
AFP
Yfirburðir Anand og Carlsen við skákborðið í gær. Helgi Ólafsson segir Anand ekki hafa átt möguleika.
Helgi
Ólafsson