Morgunblaðið - 23.11.2013, Side 44

Morgunblaðið - 23.11.2013, Side 44
44 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2013 X E IN N IX 13 11 00 2 Kíktu við að Fosshálsi 1 í Reykjavík og skoðaðu fallega og skemmtilega öðruvísi gjafavöru frá BoConcept. Falleg gjafavara frá BoConcept! Púði „turn me around“ Púði „Sari“ Bollar „Collectors“ Vasi „Owl purple“ verð kr. 10.790,- stk. verð kr. 8.990,- stk. verð kr. 9.690,- 6 í pakka verð kr. 10.190,- stk. Púði „Six assortments“ Teppi „Sari vintage“ Kertastjakar „Japanese Dolls“ Veggklukka „Mega numbers“ verð kr. 9.190,- stk. verð kr. 18.390,- stk. verð kr. 2.995,- stk. verð kr. 9.490,- stk. Lækjargötu og Vesturgötu Í nóvember 1963 fór ég til Bandaríkjanna til þess að ganga frá kaup- um á tveimur tveggja hreyfla Beech- craft-flugvélum sem gátu flutt tíu farþega. Þessar vélar voru svo notaðar næsta áratug- inn hjá einkafyrirtæki mínu á Akureyri, flug- félaginu Norðurflugi, til farþega- og vöruflutninga svo og til sjúkraflugs og reyndust þær vel. Þær komu til Akureyrar og lentu þar 4. júlí árið eftir. Eftir að ég hafði gengið frá kaupunum á vélunum í Tucson í Ari- zona lá leiðin heim á leið. Ég átti pant- að far með Loftleiðaflugvél frá Idle- wild-flugvelli í New York 21. nóvember. Ég var kominn snemma til flugvallarins en flugið til Íslands var ekki áætlað fyrr en seint um kvöldið. Þá var það venjan að flogið var yfir nóttina og komið snemma morguns næsta dag til Íslands. Nú var ekkert fyrir mig að gera nema að bíða. Fór ég því og fékk mér kaffibolla. Var mér þá sagt frá því að þeir sem vildu gætu far- ið upp stiga upp á efstu hæð og setið þar úti á svölum. Ég tók því boði og fór ég upp með minn kaffibolla og settist þar við borð, en veðrið var ljómandi fallegt haustveður. Þegar ég leit yfir svæðið blasti við mér falleg fjögurra hreyfla Boeing 707-flugvél. Var málað á hana með stórum stöfum nafnið United States of America. Ég kannaðist þó ágætlega við þessa vél af myndum sem ég hafði séð svo það var auðvelt að sjá að þarna var kom- in „vél flughersins númer eitt“ en það auðkenni er á einkaflugvél forseta Bandaríkjanna. Vélin var ekki beint fyrir framan svalirnar þar sem ég var, heldur nokkuð til hægri frá mér séð, kannski um tvö hundruð metra eða svo. Vélin snéri eins og byggingin með vinstri hlið að bygging- unni og sá ég því á ská framan á vélina. Dyr framan við vinstri vænginn voru opnar og stigi var upp að hurðinni. Ekki sá ég nokkurn mann á ferli og virtist allt næsta rólegt. Leið nú og beið en allt í einu birtist röð af svörtum fólksbílum, sem komu brunandi fyrir endann á byggingunni, allmikið lengra í burtu frá mér séð. Komu þeir í átt að vélinni og stöðvuðust skammt frá vinstri væng vélarinnar. Menn stigu út úr bílunum og ég sé þá hópast í kring- um mann sem steig út úr fremsta bíln- um. Sá fór greinilega að ræða við þá og gekk þannig góða stund. Þá sé ég að maðurinn kveður þá með handabandi, einn af öðrum. Ég hafði oft séð myndir að forset- anum og sá á augabragði að þetta var enginn annar en John F. Kennedy, for- seti Bandaríkjanna, sem þarna var að kveðja sína menn. Eftir að hann hafði kvatt fór hann að stiganum og hljóp léttilega upp tröppurnar. Á stigapall- inum snerist hann á hæli, leit yfir hóp- inn fyrir neðan sig og veifaði til þeirra í kveðjuskyni. Þá snéri hann sér aftur við og hvarf inn í flugvélina. Dyrnar lokuðust, stiginn var dreginn frá og ég heyrði að hreyflarnir voru að fara í gang. Skömmu síðar lagði flugvélin af stað áleiðis út að flugbrautunum. Þá varð mér ljóst að öll áhöfn vél- arinnar og allt fylgdarlið forsetans hafði beðið um borð í vélinni því eng- inn annar en Kennedy forseti fór um borð meðan ég sá til. Þetta var að sjálfsögðu algjör til- viljun að ég var staddur þarna á þess- um stað og stundu þar sem ég gat séð forseta Bandaríkanna koma út á flug- völl og ganga um borð í flugvél sína. Svona með sjálfum mér var ég mjög hreykinn, upp með mér og ánægður með það, að hafa verið svona heppinn að sjá Kennedy forseta með eigin aug- un þarna á ferð, en ekki bara að sjá hann á myndum eða í sjónvarpi. Ameríkuferð í nóvember 1963 Eftir Tryggva Helgason »Ég sá forsetann hlaupa létt upp stig- ann og veifa síðan til sinna manna. En þetta reyndist vera hans síð- asta kveðja til þjóðar sinnar í þessu lífi. Tryggvi Helgason Haustið kemur, allt breytir um lit. Laufin falla, dagsbirtan dvínar og myrkrið sækir að. Veturinn kemur og það kólnar. Kuldi, myrkur og trekkur taka völdin um stund í lífi okkar, tilveru og jafnvel sál svo það næðir um. Þá hrópa ég einlægu hjarta, jafnvel svolítið kvíðinn, af öllum mætti en veikum rómi þó: Guð minn! Guð minn! Viltu ekki yfirgefa mig. Það mun aftur vora En þótt á móti blási í lífinu um stund munum þá að það mun aftur taka að birta til. Fyrr en varir mun aftur vora, fuglarnir taka að syngja og sum- arið bjóða okkur til fylgdar við sig með feg- urð sinni og tækifær- um, birtu, blómum og yl. Þess vegna er gott að mega halda inn í vet- urinn og njóta hans með vorið vistað í sál- inni og sól og eilíft sum- ar í hjarta. Að skapa ljúfar minningar Í ljósi þess er svo dýrmætt, mik- ilvægt og gefandi eftir allt saman að fá að dvelja í núinu og njóta þess. Njóta þess í ljósi þess sem koma skal. Njóta dagsins í dag og vera ekki sífellt að bíða eftir einhverju sem verður kannski síðar á ævigöng- unni, þegar „rétti“ tíminn rennur upp. Núið er svo dýrmætt og það kemur ekki aftur. Það er því verðugt verkefni dag hvern að leitast við gera núið að góðri stund sem verður síðan að ljúf- um minningum strax daginn eftir. Aðeins forrétturinn Ég er þess nefnilega fullviss að ævinnar ljúfustu og bestu stundir séu aðeins sem forrétturinn að þeirri eftirsóknarverðu, ljúfu og friðsælu veislu sem okkur er boðið til og koma skal í fyllingu tímans. Hugleiðum það, með þakklátu hjarta. Lifi lífið! Dýrmætt að dvelja í núinu Eftir Sigurbjörn Þorkelsson » Þess vegna er svo gott að mega halda inn í veturinn og njóta hans með vorið vistað í sálinni og sól og eilíft sumar í hjarta. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöf- undur. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.