Morgunblaðið - 23.11.2013, Síða 59
ÍSLENDINGAR 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2013
fararstjóri í nokkur sumur á Grikk-
landi, einkum í Aþenu og á Krít, og á
Ítalíu, á Rimini og Riccione.
Hlín rak sitt eigið leikhús, Al-
heimsleikhúsið, og starfrækti eigið
námskeiðahald í leiklist, Drama-
smiðjuna. Hún var fastráðinn leik-
stjóri við Borgarleikhúsið 1993-96,
var listrænn ráðunautur við Þjóðleik-
húsið 2004-2008 og er sérfræðinngur
í leiklist fyrir Norræna menning-
arsjóðinn frá 2010-2014.
Á undanförnum árum hefur Hlín
sinnt kennslu í ritlist, einkum við rit-
un leikrita við HÍ og LHÍ.
Hlín skrifaði leiklistargagnrýni í
Helgarpóstinn 1984-85 og fyrir RÚV
um skeið. Þá skrifaði hún um leiklist
fyrir Morgunblaðið 1989-91 og var
pistlahöfundur við Dag-Tímann.
Hlín hefur skrifað á annan tug
leikrita en þekktast þeirra er líklega
Konur skelfa, sem var sýnt lengi í
Borgarleikhúsinu og tekið upp fyrir
sjónvarp. Þá hefur hún einnig skrifað
fyrir útvarp og sjónvarp.
Bækur eftir Hlín eru skáldsög-
urnar Hátt uppi við Norðurbrún, útg.
2001, og Blómin frá Maó, útg. 2009,
og sjálfsævisögulega bókin, Að láta
lífið rætast, útg. 2003, sem var til-
nefnd til Íslensku bókmenntaverð-
launanna í flokki fræðibóka og bóka
almenns eðlis.
Hlín sat í stjórn Félags íslenskra
leikstjóra 1992-94 og í stjórn Félags
leikskálda og handritshöfunda 1999-
2004. Hún hlaut fyrstu verðlaun í
leikritasamkeppni Landlæknisemb-
ættisins um leikrit sem fjölluðu um
alnæmi, árið 1993 (Alheimsferðir,
Erna).
Sérlegur Grikklandsvinur
En á Hlín einhver önnur áhugamál
en leikhúsið?
„Já, já. En leikhúsið hefur alltaf
verið stóra málið í mínu lífi. Það hafa
því verið forréttindi að sinna því á
margvíslegan hátt í gegnum tíðina.
Ég hef verið að skrifa fyrir leikhús,
leikstýra, verið ráðunautur og gagn-
rýnandi og stunda nú kennslu á
þessu sviði. Þetta er eitt af því sem
gefur leikhúsinu gildi. Það er heill
heimur út af fyrir sig sem má nálgast
á margvíslegan hátt.
Ég hef líka alltaf haft mikinn
áhuga á bókmenntum almennt –
skáldsögum, smásögum og ljóðum.
Þá hef ég alltaf lagt mig mikið eftir
tónlist og myndlist. Ég hef líka
ferðast mikið, innanlands og utan og
hef sérstaklega lagt mig eftir að
kynna mér sögu, menningu og tungu-
mál Grikkja. Þar stóð menningar-
vagga Evrópubúa fyrir 2.500 árum.
Loks hefur blundað með mér áhugi á
arkitektúr og hönnun.“
Fjölskylda
Sambýlismaður Hlínar á árunum
1974-79 var Haraldur Arngrímsson,
f. 11.7. 1948, tannlæknir.
Sambýlismaður Hlínar á árunum
1984-94 var Þorvaldur Ragnarsson, f.
6.2. 1953, d. 11.1 1998, lögfræðingur.
Systkini Hlínar eru Edda, f. 13.5.
1950, kennari á Akranesi; Kjartan, f.
18.7. 1951, sjómaður á Seyðisfirði;
Kolbeinn, f. 18.7. 1951, sjómaður á
Seyðisfirði; Gyða, f. 10.3. 1955, skóla-
ritari í Háteigsskóla; Ari, f. 29.9.
1960, tónlistarmaður.
Foreldrar Hlínar: Jensey (Eyja)
Stefánsdóttir, f. 19.2. 1929, húsfreyja
í Reykjavík, og Agnar Jörgensson, f.
15.12. 1925, f. 15.1. 2009, sölumaður
og bridsari.
Úr frændgarði Hlínar Agnarsdóttur
Hlín
Agnarsdóttir
Guðrún Þorbjörg Jónsdóttir
húsfr. í Hnífsdal
Jóhannes Elíasson
járnsmiður í Hnífsdal
Jensey Jörgína Jóhannesdóttir
húsfr. á Akureyri
Stefán Ásgrímsson
iðnverkam. á Akureyri
Jensey Jörgína Stefánsdóttir
(Eyja) húsfr. í Rvík
Sigurlaug Sigurðardóttir
húsfr. í Fljótum
Ásgrímur Sigurðsson
vinnum. og b. í Fljótum
Agnes Eiríksdóttir
húsfr. á Akranesi
Jón Ásmundsson
húsasmíðam. á Akranesi
Laufey Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Jörgen Guðni Þorbergsson
tollvörður og glímukappi í Rvík
Agnar Jón Jörgensson
sölumaður og bridsari í Rvík
Sigurveig Jónatansdóttir
ljósmóðir á Litlu-Laugum
Þorbergur Davíðsson
b. á Litlu-Laugum í Reykjadal
Leikhúsfræðingurinn Heima í stofu.
Markús Bjarnason, skóla-stjóri Stýrimannaskólans íReykjavik, fæddist á Baul-
húsum við Arnarfjörð 23.11. 1849.
Hann var sonur Bjarna, útvegsb. á
Baulhúsum Símonarsonar, skip-
stjóra á Dynjanda í Arnarfirði Sig-
urðssonar. Móðir Markúsar var Sig-
ríður Markúsdóttir, pr. á Álftamýri í
Arnarfirði Þórðarsonar, af Vig-
urætt.
Eiginkona Markúsar var Björg
Jónsdóttir húsfreyja, dóttir Jóns
Jónssonar, timburmanns á Tjörn á
Skagaströnd, og k.h. Bjargar Þórð-
ardóttur, b. á Kjarna við Eyjafjörð.
Sonur Markúsar og Bjargar var Sig-
urjón stjórnarráðsfulltrúi.
Markús var einn sá merkasti af
brautryðjendum í skipstjórn-
armenntun hér á landi, en skortur á
slíkri menntun varð mjög tilfinn-
anlegur með þilskipaútgerðinni hér
við land. Markús var kominn af
merkum sjósóknurum, vandist sjálf-
ur sjómennsku frá barnsaldri og var
munstraður á þilskip er hann var að-
eins sextán ára. Um það leyti fórst
faðir hans í fiskiróðri, ásamt tveimur
sonum sínum.
Markús flutti til Reykjavíkur um
tvítugt varð fljótlega stýrimaður á
þilskipi í eigu Geirs Zoëga, lærði
stýrimannafræði hjá Eiríki Briem
prestaskólakennara en var síðan
prófaður af sjóliðsforingjum á
danska herskipinu Fyllu með ágæt-
um vitnisburði.
Markús sigldi síðan til Kaup-
mannahafnar og lærði seglasaum
1973-74, enda mikill skortur á slíkri
fagþekkingu við Faxaflóann.
Markús var síðan skipstjóri hjá
Geir Zoëga og stundaði seglasaum
en sigldi aftur til Kaupmannahafnar
og lauk þar hinu minna og hinu
meira stýrimannaprófi 1881.
Markús hóf að kenna stýri-
mannafræði í Reykjavík 1882. Ári
síðar festi hann kaup á Doktorshús-
inu, (síðar Ránargötu 13) þar sem
hann starfrækti skóla sinn.
Stýrimannaskólinn í Reykjavík
var síðan formlega stofnaður 1891
og var Markús skólastjóri hans til
dauðadags.
Markús lést 28. 6. 1900.
Merkir Íslendingar
Markús F.
Bjarnason
Laugardagur
95 ára
Elín Jónsdóttir
90 ára
Kristján Hjörtur Gíslason
Sveinbjörn Kristjánsson
85 ára
Aldís Albertsdóttir
Kristín Ólafsdóttir
80 ára
Hreiðar Jónsson
Sveinn Klemens Andrésson
75 ára
Andrés Grímólfsson
Auður H. Hagalín
Erla María Andrésdóttir
Guðrún Böðvarsdóttir
Knútur Valmundsson
Ægir Einarsson
70 ára
Gísli R. Sigurðsson
Guðrún Þ. Ólafsdóttir
Herdís Eiríksdóttir
Sif Sigurðardóttir
Sigríður Bogadóttir
Sigurður G. Björgvinsson
Vilborg Guðjónsdóttir
Þórunn G. Pétursdóttir
60 ára
Árni Júlíus Friðbjarnarson
Gísli Jónsson
Guðbjörg Vestmann
Guðný S. Guðlaugsdóttir
Guðríður Katrín
Pétursdóttir
Guðrún Vilhelmsdóttir
Hugrún Ingibjörg
Eggertsdóttir
Jóna Guðný
Alexandersdóttir
Magnús Pálsson
Michael Dean Óðinn
Pollock
50 ára
Ari Grétar Björnsson
Bjarni Gunnlaugur
Bjarnason
Guðni Björn Guðnason
Guðný Jóna Einarsdóttir
Gústaf Vífilsson
Hólmfríður M.
Konráðsdóttir
Hólmfríður Sigríður
Jónsdóttir
Ragnar Þ. Þóroddsson
Steinunn Pétursdóttir
Víðir Leósson
Þórhallur Ingi Hrafnsson
Þórir Bjartmar Harðarson
40 ára
Einar Kristján Jónsson
Eiríkur Magnús Jensson
Elías Rúnar Kristjánsson
Evelin Aracelis Peralta
Friðþóra Arna Sigfúsdóttir
Hafdís Gerður Gísladóttir
Matthías Ásgeirsson
Ragnar Lúðvík Rúnarsson
Særós Tómasdóttir
30 ára
Adam Guzewicz
Einar Hafþór Heiðarsson
Erna Jóhannesdóttir
Gunnar Örn Rögnvaldsson
Halldór Atli Þorsteinsson
Magnús Filip Sævarsson
María Björk Gunnarsdóttir
Marta Kristín Jónsdóttir
Óskar Jónsson
Óskar Örn Arnarson
Steinunn Björg
Gunnarsdóttir
Telma Ýr Friðriksdóttir
Watcharakorn Sophakam
Sunnudagur
90 ára
Árnína Jónsdóttir
Unnur Benediktsdóttir
85 ára
Ásta Guðlaugsdóttir
80 ára
Gunnar Svanur Hafdal
Ingibjörg Pétursdóttir
Kolbrún Valdimarsdóttir
Kristjana Jónsdóttir
Rafn Sigurbergsson
Þóra Júlíusdóttir
75 ára
Ari Hallgrímsson
Ástríður Oddný
Gunnarsdóttir
Einar Jónasson
Sigurdór Sigurdórsson
70 ára
Valdimar Jónsson
60 ára
Árni Stefán Georgsson
Birna Guðjónsdóttir
Björn Halldórsson
Einar Ágústsson
Guðfinna M. Sigurðardóttir
Hrafnhildur Baldursdóttir
Ingveldur Haraldsdóttir
Jón Geir Jónatansson
Oddur Jósep Halldórsson
Sigurður Ingi Geirsson
50 ára
Arnar Einarsson
Elís Kjartansson
Emilía Dröfn Jónsdóttir
Guðrún Gréta
Benjamínsdóttir
Jerzy Klimiuk
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Mowafaq Jawdat Jameel El
Misri
Nalini Swarna Kanthi
Dandunnage
Pétur Steinþór Gunnarsson
Svava Þórhildur Hjaltalín
Sævar Haraldsson
Vignir Júlíusson
Örn Guðlaugur
Guðmundsson
40 ára
Bjarki Birgisson
Guðlaugur Ari Karvelsson
Heiðveig Helgadóttir
Hrafnhildur Heimisdóttir
Margrét Björnsdóttir
Sigríður Jónasdóttir
Steinunn Halldórsdóttir
Valdimar Halldórsson
Þórður Sigfús Ólafsson
30 ára
Genelyn Jane Donguiz
Trinidad
Guðjón Ingi Gunnlaugsson
Jóhannes Haraldsson
Mark Wesley Johnson
Nína Björk Surban Fatalla
Piotr Jan Mrozek
Rakel Magnúsdóttir
Sif Vilhjálmsdóttir
Sigurður Sölvi Svavarsson
Tabitha Rose Jonsson
Til hamingju með daginn
Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af
slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660
Gullhringur
14K, 3 punkta demantur
65.000,-
Gullhringur
14K, 5 punkta demantur
47.000,-
Gullhringur
14K, 3 punkta demantur
48.000,-
Gullhringur
14K, Rubin
98.000,-
Gullhringur
14K, 3 punkta demantur
65.000,-