Morgunblaðið - 06.12.2013, Blaðsíða 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2013
Smáauglýsingar
Hljóðfæri
Þjóðlagagítarpakki:
kr. 23.900. Gítar, poki, ól, auka-
strengir, stilliflauta og kennslu-
forrit.
Gítarinn ehf., Stórhöfða 27,
s. 552 2125.
www.gitarinn.is,
gitarinn@gitarinn.is
Atvinnuhúsnæði
Skrifstofuherbergi til leigu
Lítil og meðalstór skrifstofuherbergi
með aðgangi að interneti, kaffistofu
og wc, miðsvæðis í Reykjavík.
Upplýsingar í síma: 899-3760.
Til sölu
Kristal ljósakrónur, kristal glös
og vasar.
Sérpöntum ljósakrónur
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi. fannar@fannar.is
s. 551-6488.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
Hringtreflar
Gulur hringtrefill. Verð kr. 4990
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 44.
Sími 562 2466.
!
Silki silki silki
Pasmínur í 12 litum
úr silki og ull.
Verð kr. 2.900.
Skarthúsið,
Laugavegi 44.
Sími 562 2466.
Teg. Florida. Nýkomnir hinir frá-
bæru inniskór frá BIRKENSTOCK
Litir: Svart lakk, rautt og silfrað.
Stærðir: 36-42. Verð: 12.885.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - föst. 10 - 18.
Opið laugard. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
Citroen Berlingo 1,6 Diesel
2/2008, ekinn 89 þús. km. VSK-bíll í
fínu standi. Þessir sjást varla á sölum
svo nú er að vera snöggur.
Verð án vsk. 1.480.000, með vsk.
á 1.857.000.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Opið kl. 12-18 virka daga.
Bílaþjónusta
Húsviðhald
Tek að mér ýmis verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Glerjun og gluggaviðgerðir
Lása- og hurðaviðgerðir ásamt öðrum
smíðaverkefnum.
Kortaaðgangskerfi fyrir húsfélög/
sameignir - engir lyklar.
Glugga- og hurðaþjónustan,
s. 895 5511, smidi.is
Teg. 23001: Vandaðir þýskir herra-
skór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
40–77. Verð: 17.885.
Teg. 204202: Vandaðir þýskir herra-
skór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
39–48. Verð: 17.985.
Teg. 204205: Vandaðir þýskir herra-
skór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
40–45. Verð: 16.975.
Teg. 48006. Sérlega mjúkir og vand-
aðir þýskir herraskór úr leðri, skinn-
fóðraðir. Stærðir: 40–47.
Verð: 21.600.
Teg. 406201. Vandaðir þýskir herra-
skór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
39–48. Verð: 15.975.
Teg. 305301. Vandaðir þýskir herra-
skór úr leðri, fóðraðir. Stærðir:
40–47. Verð: 15.885.
Teg. 419209. Vandaðir þýskir herra-
skór úr leðri, skinnfóðraðir. Stærðir:
41–47. Verð: 16.585.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Verslunin verður opin í
desember sem hér segir:
Mán. - föst. 10–18
lau. 7. des. 10–16
lau. 14. des. 10–16
lau. 21. des 10–18
Þorláksmessu: 10–20
Aðfangadag: 10–12
Lokað á sunnudögum.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Elskuleg amma mín er fallin
frá á fallegum snjódegi 95 ára.
Fyrstu minningar mínar af
ömmu eru allar frá Siglufirði,
fékk ég margt að bralla þar í öll-
um mínum heimsóknum ásamt
hinum systkinabörnunum þótt að
sum prakkarastrikin hafi ekki
alltaf fallið í kramið var alltaf
Sigríður Þórdís
Þorláksdóttir
✝ Sigríður Þór-dís Þorláks-
dóttir, fæddist í
Háagerði í Svarf-
aðardal 11. febrúar
1918. Hún lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Grund 16. nóv-
ember 2013.
Útför Sigríðar
fór fram frá Graf-
arvogskirkju 27.
nóvember 2013.
stutt í að hún hlægi
með okkur. Minn
besti tími var þó
sumarið sem ég
vann í fiski og
bjuggum við tvær
saman allt sumarið
og fékk ég ömmu út
af fyrir mig, þetta
sumar gerði það að
verkum að við vor-
um alltaf nánar og
hef ég alltaf getað
sagt henni frá öllu, kom hún alltaf
með góð og hlý ráð. Aldrei heyrði
ég hana kvarta var alltaf jákvæð
og hreif hún fólk með sér alveg
sama hvert hún fór til dauðadags.
Elsku amma minning um hlýja
og sterka konu fylgja okkur öll-
um um ókomna tíð.
Sigríður Herdís
Ásgeirsdóttir.
Þegar fólk sem við höfum orðið
samferða mislangan spöl á lífsleið-
inni hverfur á undan bakvið næsta
leiti, sem skyggir fyrir sjón, nem-
um við ósjálfrátt staðar um stund
og lítum um öxl. Svo fór mér fyrir
viku þegar ég spurði lát Rakelar
Sigurleifsdóttur.
Ekki man ég daginn né stund-
ina en fundum okkar bar fyrst
saman fyrir nær hálfum fimmta
áratug þegar ég hóf störf að marki
hjá Ríkisútvarpinu á Skúlagötu 4.
Rakel vann í auglýsingadeildinni
sem í þá daga var vinnustaður
skipaður konum einum, en gagn-
vegir lágu milli þeirrar deildar og
fréttastofunnar sem voru á sömu
hæð. Stundum rákumst við Rakel
líka hvort á annað og tókum tal
saman í Hagavagninum meðan
bæði áttu heima í Vesturbænum.
Rakel
Sigurleifsdóttir
✝ Rakel Sig-urleifsdóttir
fæddist á Bíldudal
3. mars 1933. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 21. nóv-
ember 2013.
Útför Rakelar
var gerð frá Kópa-
vogskirkju 29. nóv-
ember 2013.
Svo kom til starfa á
fréttastofunni Björn
Ólafur Gíslason sem
ég var lítillega kunn-
ugur áður og varð nú
samstarfsmaður
minn þar og seinna í
dagskrárdeildinni
meðan leiðir lágu
þar saman. Með
Birni og Rakel tók-
ust fljótlega góð
kynni, og gengu þau
í hjónaband er staðið hefur síðan,
en ófrávíkjanlegt lögmál hefur nú
slitið.
Rakel og Björn þóttu mér alltaf
samvalin hjón eins og þau komu
mér fyrir sjónir, þótt aðrir séu
kunnugri einkahögum þeirra,
enda tillitssemi beggja og hóg-
værð í allri umgengni góð fyrir-
mynd um aðgát í nærveru sálar.
Þess vegna er varla ofmælt að
margir hafi hugsað til þeirra
beggja í senn ef annað var nefnt,
og fer hér nú einnig á þá leið. Ég
vissi að Rakel átti ættir að rekja
vestur á Firði og kannast við vel
gert og vel gefið sómafólk úr
frændgarði hennar og Björns,
sem er með öllu laus við að trana
sér fram, en fæddur séntilmaður í
bestu merkingu orðsins, svo vart
er hægt að hugsa sér prúðari og
betri samstarfsmann. Rakel var
allt í senn: fríð kona og gerðarleg
og ákaflega geðþekk í framkomu,
stillt og íhugul, með fallegt bros og
blik í augum, enda gædd eðlislægu
skopskyni og góðum gáfum eins
og bóndi hennar.
Kynni mín af þeim hjónum voru
einkum bundin tilteknum stað og
stund æviskeiðsins. Með árunum
hurfum við frá útvarpinu til ann-
arra starfa, og svo vildi til að við
eignuðumst þá öll heimili í Kópa-
vogi. Þar hélt Rakel áfram í op-
inberri þjónustu og réðst til starfa
á skrifstofum bæjarins. Þangað
áttu margir erindi, og þess veit ég
sönn dæmi að þar nutu sín vel
mannkostir hennar, hlýhugur og
vilji til að greiða götu fólks og
leysa úr vanda þess, sem hún taldi
aldrei eftir sér, jafnvel óbeðin.
Fullyrða má að henni þótti vænt
um fólk og þess vegna var nota-
legt að vera í návist hennar. Það
fann hver maður sem hana þekkti.
Þótt oft yrði langt á milli funda í
seinni tíð líða nú fyrir hugarsjónir
leifturmyndir frá fyrri dögum og
ylja um hjartarætur þegar ljóst er
að komin er kveðjustund. Þá láta
dagarnir lit, en hugur sem einn
veit hvað hjarta býr nær hverfur á
vit minninganna sem enginn getur
frá neinum tekið meðan líf og
heilsa endist. Við Steinunn minn-
umst gamalla og góðra kynna af
Rakel Sigurleifsdóttur og vottum
Birni Ólafi, börnum þeirra og öðr-
um sem hana syrgja samúð okkar
og þökk fyrir það sem var.
Hjörtur Pálsson.
Fingurnir stirðna
við lyklaborðið,
munnurinn þornar og augun
vökna. Það er bara svo ótrúlega
ótímabært að rita niður minning-
ar um hana Evu Maríu okkar.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins
blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Við fjölskyldan kynnumst
þessari snoppufríðu kátu stúlku
fyrir um áratug þar sem hesthús
okkar liggja saman. Ótal stund-
um eyddum við með henni og fjöl-
skyldu í hesthúsunum, á stéttinni
og auðvitað saman á útreiðum.
Eva María lífgaði svo sannarlega
upp á tilveru okkar sem í návist
henni voru. Hún var glöð og bros-
mild, uppátækjasöm og það var
sko engin lognmolla þar sem hún
var viðstödd. Öllum líkaði vel við
Evu og var hún hrókur alls fagn-
aðar hvar sem hún kom. Hún var
blátt áfram, ákveðin og bar til-
finningar sínar utan á sér bæði
gleði og sorg. Það fór ekki
framhjá neinum ef svo bar við að
eitthvað var ekki að ganga upp
eins og henni hugnaðist. Tautið
sem vall upp úr henni á þeirri
stundu var oftast óborganlegt,
þannig hún hafði þann eiginleika
að vera einstaklega skemmtileg
þó hún væri aðeins ósátt, sem
breyttist svo snögglega til hins
betra eftir að hún fékk að rasa
aðeins út og endaði yfirleitt í
hlátrasköllum yfir allri vitleys-
unni. Einn af hennar helstu kost-
Eva María
Þorvarðardóttir
✝ Eva María Þor-varðardóttir
fæddist í Reykjavík
22. júlí 1992. Hún
lést 16. nóvember
2013.
Útför Evu Maríu
fór fram frá Graf-
arvogskirkju 29.
nóvember 2013.
um var að hún gerði
aldrei mannamun
og var afar hjálp-
söm við alla sem
leituðu til hennar.
Enda var hún vina-
mörg og komu vin-
irnir af öllum stærð-
um og gerðum.
Hún var mikill
dýravinur og nátt-
úrubarn. Algjörlega
óhrædd og með
góða tilfinningu fyrir hestum.
Hún lagði mikla natni við hesta-
mennskuna, var ofboðslega dug-
leg og áhugasöm. Hestarnir
veittu henni mikla gleði og í
kringum þá held ég að hún hafi
notið sín hvað best, fundið raun-
verulega hamingju og gleði.
Það er stórt skarð höggvið í
lengjuna okkar í C-tröðinni og í
félagið okkar Fák í Víðidal, sár
sem líklegast mun aldrei gróa.
En skarðið er þá dýpst hjá nán-
ustu fjölskyldu hennar og kær-
ustu vinum. Megi guð veita þeim
styrk í sorginni sem nú ríkir í
hjarta þeirra, mátt til að halda
áfram og lifa með sárinu.
Við getum ei breytt því
sem frelsarinn hefur að segja.
Um hver fær að lifa,
og hver á svo næstur að deyja.
Þau örlög sem við höfum hlotið,
það verður að skilja.
Svo auðmjúk og hljóð,
við lútum að frelsarans vilja.
Þó sorgin sé sár,
og erfitt er við hana að una.
Við verðum að skilja,
og alltaf við verðum að muna,
að Guð hann er góður,
og veit hvað er best fyrir sína.
Því treysti ég nú,
að hann geymi vel sálina þína.
Þótt farin þú sért,
og horfin ert burt þessum heimi.
Ég minningu þína,
þá ávallt í hjarta mér geymi.
Ástvini þína, ég bið síðan
Guð minn að styðja,
og þerra burt tárin,
ég ætíð skal fyrir þeim biðja.
(Bryndís Halldóra Jónsdóttir)
Samúðarkveðjur til allra
þeirra sem syrgja og sakna henn-
ar Evu Maríu. Minning um lag-
legt ljóshært stelpuskott lifir.
Hrefna María og fjölskyldan
í C-tröðinni.