Morgunblaðið - 06.12.2013, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 06.12.2013, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2013 Hamraborg 9 | Sími 564 1451 | www.modurast.is Opið 10-18 virka daga og 12-16 laugardaga Mæður með stíl Glæsilegar skiptitöskur Margir litir og gerðir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ekki óttast krefjandi verkefni, lista- gyðjan blæs þeim sem þarfnast uppörv- unar og hvatningar anda í brjóst. Margir ganga í gegnum breytingaskeið þessa dag- ana. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert í þensluham sem gæti bitnað á skuldastöðunni og mittismálinu. Leystu úr þínum málum sjálf/ur og gakktu svo ánægð/ur á fund annarra. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ef þú átt í útistöðum við einhvern skaltu hafa hugfast að þú ert maður að meiri ef þú leggur niður vopnin. Góð sam- skipti eru ómetanleg. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Eitt og annað hefur verið látið reka á reiðanum en nú verður ekki undan því vikist að koma skikki á öll mál. Láttu engan binda þig nauðuga/n í hlekki vanans. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Góðar líkur eru á að þú hljótir vinning í dag. Góð orka er í kringum þig og já- kvæðrar niðurstöðu er að vænta. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér verður stundum hugsað til hjarta sem þú kramdir fyrir margt löngu. Leitaðu að tækifæri til að hjálpa öðrum. Framferði segir allt um hugarástandið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Viðkvæmt vandamál getur vaxið þér yfir höfuð ef þú leitar ekki strax ráða hjá nánum vini. Efldu trúarlíf þitt og leitaðu svara við spurningum þínum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Frumleg nálgun þín í vinnu eykur fágun þess sem hún skilur eftir sig. Fáðu vinina í lið með þér. Ekki vera of blá- eygð/ur í ástamálunum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú gætir freistast til þess að gefa félaga þínum of mikla peninga eða stærri hlut í einhverju en gott þykir. Af þessum sökum skaltu forðast rifrildi sem mest þú mátt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert jákvæð/ur og bjartsýn/n í dag. Leggðu þig fram við að vera sam- stiga þeim sem eru í kringum þig, það verður mikils metið. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Einhver náinn þér finnst hann þurfa að keppa við þig. Kúrðu með ástvini þínum og njóttu þess að vera í fríi, þú átt það alveg skilið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þegar gera þarf áætlanir fram í tím- ann er nauðsynlegt að huga að þörfum heildarinnar. Ef þú tekur að þér verkefni og ert útkeyrð/ur verður þér ekkert úr verki. Í gær birtust hér í Vísnahornistökur fyrrverandi þingmanna, sem gengið höfðu milli þeirra eins og SMS-skilaboð og var þó nokk- urra vant vegna plássleysis. Jón Kristjánsson orti: Eins og Blöndal birtist nú býsna djúpt er sokkinn efasemdir, ónóg trú ætli hann kjósi flokkinn? Sem ég svaraði: Á þingi alltaf þannig gekk það sem betur fer, að ekki traust á Framsókn fékk né Framsókn traust á mér Hjálmar Jónsson orti: Íhaldshjartað enn í mér andstætt kratatetri; Framsókn var og Framsókn er flestum öðrum betri. Og Jón Kristjánsson: Pósturinn oss færir fregn sem finnst mér gott að heyra presturinn er grænn í gegn get ég beðið um meira? Tveir af fyrrverandi þing- mönnum og ráðherrum Fram- sóknarflokksins senda frá sér bækur nú um jólin. Ingvar Gísla- son yrkir: Gott er að lynda Guðna við, gull í hjópi manna Villa á Brekku veitir lið að vekja gleði sanna. Bók Vilhjálms, „Allt upp á borð- ið“ ber svipmót hans, ljúf og skemmtileg. Hann segir frá skíða- námskeiði sem haldið var uppi í Mýrarbotni. „Skíðaríma“ er eins- konar sjálfslýsing: Fyrstur skrönglast skíðin á skörungurinn Villi H. – Blöskrar honum brattinn þá byrjar rennsli inn á ská. Ætlar svo að æfðra sið upp á brún að snúa við. Hokið skelfur hraustmennið, hendist flatur út á hlið. Rennur þarna strax af stað, starir fólkið dauðskelkað. „Skyldi hann hafa hálsbrotnað?“ hvísla menn og óttast það. Ofan lengi rann og rann, rispa fönn með klónum vann. „Ég er að deyja,“ hugsar hann og heitir nú á skaparann. Og sem bratti brekkunnar byrjar minnka, harla snar bröltir karl á bífurnar, brunar, sveiflar hér og þar. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Enn af vísum þingmanna Í klípu „VIÐ ÞURFUM AÐ KAFA ENN DÝPRA, ÉG HELD AÐ ÞÚ SÉRT EKKI AÐ TAKAST Á VIÐ HIÐ RAUNVERULEGA VANDAMÁL.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HÁ! FYRIR ÞRJÁTÍU ÁRUM, ÞÚ FERÐAST UM ARISÓNA? ÞÚ TÝNA LITLUM STRÁK?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... hvernig þú sérð hann. JÓN VERÐUR EKKI ÁNÆGÐUR. VÚHÚ! HAHAHAHA! MÝSNAR ERU AÐ LEIKA SÉR Í FRÍMERKJA- SAFNINU HANS. ÉG ER BÓLIVÍA! HRÓLFUR, MÁ BJÓÐA ÞÉR AÐ MÆLA FYRIR SKÁL, ÁÐUR EN VIÐ BORÐUM? VITASKULD, ELSKAN ... SKÁL FYRIR GESTUM OKKAR ... ... MEGI ÞEIR BJÓÐA OKKUR EITTHVAÐ BETRA AÐ BORÐA ÞEGAR ÞEIR BJÓÐA OKKUR Í MAT! Víkverji hefur lesið margar góðarnýjar bækur að undanförnu, þar á meðal nokkrar skemmtisögur. Skagfirskar skemmtisögur í sam- antekt Björns Jóhanns Björnssonar, blaðamanns á Morgunblaðinu, gleðja sem fyrr en þriðja bindið er nýkomið út. x x x Nokkrar sögur eru af Dúdda áSkörðugili í bókinni: „Á einu kór- ferðalagi Heimismanna var stoppað í Staðarskála. Jón Baldvin Hannibals- son var þar inni og Dúddi tók hann tali. Þegar Jón var farinn undruðust kórfélagar þetta samtal og spurðu Dúdda hvort hann þekkti eitthvað Jón Baldvin. „Nei, en hann þekkti mig.““ x x x Álftagerðisbræðurnir Sigfús, Pét-ur, Gísli og Óskar Péturssynir eru gleðigjafar og eðlilega eru nokkr- ar sögur af þeim í Skagfirskum skemmtisögum: „Þeir bræður eru spaugarar miklir og í kynningu fyrir tónleika á Menningarnótt, í troðfullu Ráðhúsi Reykjavíkur, sagði Pétur: „Gaman að sjá hvað margir eru komnir, úr ekki stærra plássi!““ x x x Mörgum tilsvörum Bjarna Har-aldssonar, kaupmanns á Krókn- um, hefur sem betur fer verið haldið til haga: „Kona kom til Bjarna til að kaupa stígvél. Skoðaði hún annað stígvélið en fannst verðið of hátt. „Þú færð hitt líka,“ sagði Bjarni og brosti!“ x x x Minnt er á að Þorkell Halldórsson,Ýtu-Keli, sé eftirminnilegur mörgum Skagfirðingum. „Keli trúði á álfa og það kom berlega í ljós þegar lagður var vegur um bergið í Trölla- skarði í Hegranesi, gegn vilja álfa og huldufólks. Ýtan hans Kela var alltaf að bila og svo fór að sérfræðingar komu frá Caterpillar í Bandaríkj- unum sem rifu ýtuna í sundur og settu hana saman aftur. Þegar Keli síðan startaði ýtunni heyrðist eitt- hvað bank. Klóruðu sérfræðingarnir sér í höfðinu en Keli vissi alveg hvað var að: „Þið hafið lokað einn álfinn inni!““ víkverji@mbl.is Víkverji Daníel tók til máls og sagði: Lofað sé nafn Guðs um aldir alda því að hans er viskan og mátturinn. (Daníel 2:20)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.