Morgunblaðið - 06.12.2013, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.12.2013, Blaðsíða 21
SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Margt bendir til þess að þau börn sem búa við heimilisofbeldi en hafa aðgang að fullorðinni manneskju utan heimilisins sem þau treysta og er þeim fyrirmynd, eins og kennarar eða ættingjar, þrói frekar með sér seiglu sem yf- irstígur áhættuþætti sem heimilisofbeldi get- ur kveikt. Er þetta niðurstaða ritgerðar Lindu Bjarkar Huldarsdóttur til meistara- prófs í menntunar- og kennslufræðum við Há- skóla Íslands haustið 2013. Rannsóknarspurn- ing Lindu var: „Hvað veldur því að sum börn sem búa við heimilisof- beldi hafa seiglu til að komast í gegnum þá reynslu sem brýtur önnur börn niður?“ Linda byggir ritgerðina á heimildum, skýrslum, erlendum og innlend- um rannsóknum. „Ég skoðaði aðallega börn sem komast þokkalega í gegnum þessa lífs- reynslu þrátt fyrir að búa við erfiðar að- stæður. Ég er að horfa á seiglu börnin,“ segir Linda. „Verndandi þættir í lífi þessara barna er mjög sterkur þáttur sem kemur þeim í gegn- um þessa erfiðu reynslu sem ofbeldi á heimili er. Verndandi þættir eru þeir þættir sem styrkja barnið og vernda það frá áhættuþátt- um eins og t.d. heimilisofbeldi. Þessir tilteknu þættir draga úr líkum á neikvæðri útkomu í lífi einstaklings. Það hefur mikil áhrif á börn að búa við slíkar aðstæður og getur haft mjög neikvæð áhrif, skammtíma- og langtímaáhrif. Sumir af þessum þáttum koma ekki í ljós fyrr en á fullorðinsárum. Þessi verndandi þáttur er lykilpersóna sem að börnin stóla svolítið á.“ Linda skoðaði fyrst og fremst börn sem hafa orðið vitni að heimilisofbeldi, án þess að vera fórnarlömb sjálf. En að verða vitni að slíkum atburðum má flokka sem andlegt of- beldi. „Að búa við heimilisofbeldi er rosalega erfitt og sérstaklega þar sem það er oftast á milli foreldra barnsins sem verður vitni að því. Erfiðara er fyrir barnið að leita til foreldr- anna í þessum aðstæðum, frekar fara þau þá eitthvað annað og leita sér að þessari lyk- ilpersónu, verndara, það er oft á tíðum kenn- ari, þjálfari, systkini eða önnur skyldmenni, aðrir en foreldrar.“ Lykilpersónurnar gera sér ekki endilega grein fyrir heimilisástandinu þó að þær njóti trausts barnsins. „Börnin segja ekki beint frá heimilisaðstæðum. Þau þjást í hljóði, öskra eftir aðstoðinni, en þora ekki að taka af skarið og segja beint frá. Stuðningsaðilinn hefur ekki alltaf hugmynd um aðstæðurnar heima fyrir, hefur kannski grun um einhverja erfiðleika og þá er mikilvægt að hann hafi skilning á að- stæðum heima fyrir og geti brugðist rétt við.“ Því segir Linda það ofboðslega mikilvægt að fullorðnir einstaklingar sem vinna með börnum séu meðvitaðir um þau einkenni sem benda til að ofbeldi eigi sér stað á heimilinu. Upp á það vanti gjarnan. „Það vantar oft töluvert upp á þekkingu fólks til að geta tekið á þessu á faglegan hátt og brugðist rétt við, þeir sem vinna með börn- um eru ekki með sérhæfða þekkingu í þessum málum. Það er mikilvægt að það fólk sem starfar með börnum dags daglega fái meiri sérhæfingu og leiti sér þekkingar um ofbeldi gegn börnum,“ segir Linda. Einkennin misjöfn eftir aldri Linda segir misjafnt hver einkennin eru eftir því á hvaða aldri barnið er þegar það býr við heimilisofbeldi. „Leikskólabörn eru lík- legri til að eiga við hegðunarvandamál að stríða ef þau búa við heimilisofbeldi, einnig gætu þau verið árásargjörn, sýnt slaka fé- lagsfærni og sum hver bera merki um áfalla- streituröskun og eru veik oftar en þau börn sem búa ekki við ofbeldi. Grunnskólabörn fara að hugleiða hvaða áhrif ofbeldið hefur á fórnarlambið á heim- ilinu, þau eru farin að greina ástæður fyrir því af hverju ofbeldi á sér stað. Þau leita eftir nýj- um fyrirmyndum út fyrir veggi heimilisins vegna neikvæðrar myndar sem þau hafa feng- ið af eigin fjölskyldu og þau eru farin að forð- ast ofbeldisaðstæðurnar heima. Unglingar sem upplifa heimilisofbeldi sýna stundum árásargirni í samskiptum við aðra auk þess að vera líklegri til að vera gerendur í eineltismálum, öfugt við yngri börnin þar sem þau eru líklegri til að verða þolendur eineltis. Á heildina litið eru algeng viðbrögð barna við reynslu af heimilisofbeldi að þau forðast aðra, eru félagslega einangruð, glíma við námsörðu- leika, pissa undir, fá martraðir, borða illa, eru árásargjörn, skaða sig, eru þunglynd og í sjálfsmorðshugleiðingum og hafa jafnvel gert tilraun til sjálfsmorðs,“ útskýrir Linda. Börnin leita sér að lykilpersónu  Ef börn sem búa við heimilisofbeldi hafa aðgang að fullorðinni manneskju utan heimilis sem þau treysta geta þau frekar þróað með sér seiglu til að komast yfir áhættuþætti sem ofbeldið getur kveikt Linda Björk Huldarsdóttir Heimilisofbeldi » Árið 2007 var skoðuð þekking barna á Íslandi á heimilisofbeldi, hvort þau þekktu hugtakið heimilisofbeldi. Í ljós kom að 70% barna og 94% unglinga þekktu hugtakið heimilisofbeldi. » Á Íslandi verða 2.000 til 4.000 börn árlega annaðhvort fyrir ofbeldi á heim- ilum eða upplifa slíkt. „Því er mikilvægt að aðstoða börn sem eru að takast á við erfiðleika heima fyrir. Um leið og ofbeld- ismaðurinn lokar á eftir sér dyrum heim- ilisins vitum við hin ekkert hvað gengur þar á. Með áframhaldandi þekkingarleit, rannsóknum, umræðum og forvörnum gerum við ofbeldismanninum erfiðara fyrir,“ segir Linda. Linda Björk Huldarsdóttir: „Ég skoðaði aðallega börn sem komast þokkalega í gegnum þessa lífsreynslu þrátt fyrir að búa við erfiðar aðstæður. Ég er að horfa á seiglu börnin.“ FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2013 Nýr fjórhjóladrifinn Mitsubishi Outlander er ríkulega búinn staðal- og þægindabúnaði sem ásamt nýrri tækni eykur öryggi og veitir þér nýja akstursupplifun. Má þar nefna hraðastilli með fjarlægðarskynjara, akreinavara og árekstrarvörn sem allt er staðalbúnaður í grunngerðinni Intense. Outlander kostar frá 5.590.000 kr. Intense 4x4, bensín, sjálfskiptur MITSUBISHI OUTLANDER Rúmbetri, sparneytnari og betur búinn mitsubishi.is Eyðsla aðeins frá 5,5 l/100 km. Nú á enn betra verði frá 5.590.000kr.Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.