Morgunblaðið - 07.12.2013, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það er mikil eftirspurn eftir leigu-
húsnæði. Fólk í leigumiðlun segir
mér að það vanti stórlega íbúðir á
markaðinn, m.a. fyrir fólk sem er að
missa húsnæði á nauðungaruppboð-
um,“ segir Gunnar Þórarinsson,
varaformaður Sambands sveitar-
félaga á Suðurnesjum og formaður
bæjarráðs í Reykjanesbæ.
Gunnar er jafnframt formaður
stjórnar fasteignafélags í Reykja-
nesbæ sem er í eigu bæjarins. Hann
segir að á sama tíma og margir leiti
að húsnæði standi fjölmargar íbúðir
auðar og safni ryki. „Það er ekki að-
eins þetta fólk sem sækist eftir leigu.
Það vantar stórlega íbúðir á mark-
aðinn og það eru meðal annars íbúð-
ir frá Íbúðalánasjóði og bönkunum
sem standa auðar, engum til gagns.“
„Varla af mannvonsku“
– Nú er fólk að missa húsnæðið á
tímum þegar það er offramboð og
hægur markaður. Sjá þá eigendur,
þeir sem eiga kröfurnar, ekki hag í
því að leigja eignirnar til viðkomandi
einstaklinga áfram, í stað þess að
fara með þær á nauðungarsölu?
„Nú verða þeir að svara fyrir það.
Ég get ekki svarað fyrir bankana og
íbúðalánasjóð. Það eru væntanlega
einhver hagræn öfl sem ráða vegferð
þeirra. Varla er það af einhverri
mannvonsku. Ég trúi því ekki.“
Eins og sjá má á grafinu hér á síð-
unni hafa kröfuhafar fengið lítið út
úr nauðungaruppboðum síðustu ára.
Eru tölurnar sóttar í skýrsluna
Nauðungarsala íbúðarhúsnæðis á
Suðurnesjum 2001-2011.
Ásbrú hefur bjargað miklu
Gunnar víkur að Ásbrú.
„Sem betur fer hefur verið í boði
húsnæði á Ásbrú. Það hefur auðvitað
bjargað heilmiklu, ekki aðeins hér á
svæðinu heldur hafa margir af höf-
uðborgarsvæðinu flutt upp á Ásbrú.
Atvinnuástandið er slæmt og fólk er
ekki með sömu tekjur og áður. Það
bitnar á tekjum sveitarfélaganna.“
– Samkvæmt Vinnumálastofnun
var atvinnuleysi á Suðurnesjum
5,7% í október. Er atvinnuástandið
ekki að glæðast, m.a. vegna aukinna
umsvifa á Keflavíkurflugvelli?
„Ferðaþjónustan hefur vaxið tals-
vert og þar með hefur framboð á at-
vinnu aukist í kringum það, sérstak-
lega í flugstöðinni. Það eru reyndar
sum hver aðeins tímabundin störf.
Þótt ferðamannastraumurinn sé að
aukast yfir vetrarmánuðina er það
ekki nóg til þess að halda í við alla þá
starfsemi sem er þar á sumrin,
þannig að margir falla út af launa-
skrá á haustin og koma ekki aftur til
starfa fyrr en á vorin.“
– Eru tekjur lægri en þær voru?
„Varnarliðið borgaði almennt
miklu hærri laun en eru í boði núna.
Ég þekki það, enda kenndi ég í
gamla daga í Fjölbrautaskóla Suður-
nesja. Nemendur mínir í viðskipta-
fræði hættu margir eftir tvö ár í
námi af því þeim buðust vel launuð
störf hjá Varnarliðinu. Launin voru
talsvert hærri en kennaralaunin.“
Láglaunastörf í ferðaþjónustu
– Hvað með laun í ferðaþjónustu?
„Störfin við ferðaþjónustu eru
auðvitað láglaunastörf. Við höfum
barist fyrir því að fá álver í Helgu-
vík. Það myndi reisa við atvinnulíf
hér á svæðinu ef álver risi og í boði
yrðu mjög vel launuð störf.“
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, segir að á fjórða
hundrað manns hafi verið að missa
bótarétt að undanförnu hjá Vinnu-
málastofnun og því leitað fjárhags-
aðstoðar hjá Reykjanesbæ.
„Álagið á félagsþjónustuna er að
minnka hvað varðar atvinnulausa.
Það er samhengi milli atvinnuleysis
og fjárhagsaðstoðar. Hún gæti hins
vegar farið hægar niður hjá okkur
vegna þess að það er stór hópur að
fara yfir á bæinn, er að missa bæt-
urnar. Við munum aðstoða þetta fólk
við leit að vinnu og gerum okkur
góðar vonir um að það muni ganga
vel, enda er atvinnuástandið að
glæðast,“ segir Árni og tekur fram
að það sé ekki sjálfgefið að fólk sem
misst hafi húsnæði á nauðungarsöl-
ur eigi rétt á fjárhagsaðstoð.
Aðspurður hvort margir þeirra
sem misstu húsnæði sitt á nauðung-
arsölu á Suðurnesjum, á árunum
fyrir og eftir hrunið, hafi sótt í leigu-
húsnæði á Ásbrú segir Árni að svæð-
ið hafi fram til ársins 2011 eingöngu
verið opið námsmönnum. Frá og
með 2011 hafi fjölskyldufólki verið
heimilað að sækja um leiguhúsnæði
á Ásbrú. Það sé ekki vitað hversu
stór hluti þess fólks hafi leitað þang-
að í kjölfar nauðungarsölu.
„Biðlistar eftir félagslegu húsnæði
í Reykjanesbæ og á Ásbrú hafa
lengst. Umsækjendurnir hafa ekki
verið greindir eftir fjárhagslegri
stöðu. Það er auðvelt að leiða líkur
að því að þetta sé tengt,“ segir Árni
um mögulegt samhengi þarna á
milli. Samkvæmt Hagstofu Íslands
náði samanlagður íbúafjöldi í
Reykjanesbæ, Grindavík, Sand-
gerði, Garði og Vogum hámarki árið
2009 þegar þar bjuggu 21.544 íbúar,
um 340 fleiri en í byrjun þessa árs.
Íbúar í Reykjanesbæ voru hins veg-
ar fleiri í ársbyrjun 2013 en þeir
voru 2009, eða 14.231. Alls bjuggu
17.110 íbúar í sveitarfélögunum
fimm árið 2005 en 21.206 í byrjun
þessa árs.
Íbúafjöldinn haldist stöðugur
Spurður hvort þróun íbúafjöldans
í Reykjanesbæ bendi til að fólk hafi
flutt þaðan eftir að hafa misst hús-
næði á nauðungarsölu segir Árni að
ekki séu sterkar vísbendingar um
það. Íbúafjöldinn hafi haldist stöð-
ugur. Alls séu 1.650 skráðir með lög-
heimili í Reykjanesbæ á Ásbrú af
alls 2.000 íbúum á svæðinu.
„Það má segja að íbúafjöldinn á
Suðurnesjum hafi haldist stöðugur
en Ásbrú hafi bæst við,“ segir Árni
og bætir því við að dæmi séu um að
fólk sem missti eignir hafi leitað að
ódýrara húsnæði á Ásbrú.
Söluverð íbúða á nauðungarsölu
sem hlutfall af kröfum í íbúðina*
*Fjárhæðirnar eru framreiknaðar til mars 2012 skv. vísitölu neysluverðs. Heimild: Sýslumaðurinn í Keflavík.
62,3 62,8
58,3
43,2
73,8
61,4
36,9
21,6 23,2
16,2
19,1
80
70
60
50
40
30
20
10
0
2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011
Meðalhlutfall söluverðs af kröfum (%)
%
Fjárhæðir söluverðs íbúða
eftir ári nauðungarsölu*
2001 23 264 11,5 62,3
2002 35 451 12,9 62,8
2003 38 347 9,1 58,3
2004 33 333 10,1 43,2
2005 15 238 15,8 73,8
2006 7 124 17,7 61,4
2007 26 284 10,9 36,9
2008 109 906 8,3 21,6
2009 74 575 7,8 23,2
2010 251 1.325 5,3 16,2
2011 229 952 4,2 19,1
Alls 840 5.798 6,9 26,5
Fjöldi mála
Heildarfjárhæð
söluverðs (m.kr.)
Meðalfjárhæð
söluverðs (m.kr.)
Meðalhlutfall
söluverðs af
kröfum (%)
Missa eignir og fá ekki húsnæði
Formaður bæjarráðs í Reykjanesbæ segir skort á leiguhúsnæði þótt fjölmargar eignir standi auðar
Fólk sem hafi farið í nauðungarsölur finni ekki leiguhúsnæði Hundruð að fara á fjárhagsaðstoð
Gunnar
Þórarinsson
Árni
Sigfússon
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Íbúðalánasjóður átti 743 fullnustu-
eignir á Suðurnesjum í ársbyrjun og
hafði þeim fjölgað í 811 eignir í lok
október. Eru það eignir sem sjóð-
urinn hefur eignast á uppboðum.
Spurður út í tap sjóðsins af upp-
boðunum kveðst Sigurður Erlings-
son, forstjóri ÍLS, ekki hafa heild-
stæðar tölur yfir það. Hann upplýsir
hins vegar að meðaltap sjóðsins af
hverju uppboði sé á bilinu þrjár til
tólf milljónir. Má af því vera ljóst að
sjóðurinn hefur tapað milljörðum á
eignum sem farið hafa í nauðungar-
sölu á Suðurnesjum síðustu ár.
Milli 1.000 og 1.500 eignir
Spurður hvernig næsta ár líti út
hvað uppboð varðar segist Sigurður
eiga von á því að boðnar verði upp
1.000 til 1.500 eignir í eigu sjóðsins
víðsvegar um landið.
Sigurður vill í þessu samhengi
benda á að Hanna Birna Kristjáns-
dóttir innanríkisráðherra hyggist á
næstu dögum leggja fram frumvarp
sem heimili frestun á nauðungarsöl-
um fram á mitt næsta ár, eða þar til
boðaðar aðgerðir
ríkisstjórnarinn-
ar í skuldamálum
eiga að koma til
framkvæmda.
Vikið er að
uppboðum á eign-
um í eigu Íbúða-
lánasjóðs á Suð-
urnesjum í
skýrslunni
Nauðungarsala
íbúðarhúsnæðis á Suðurnesjum
2001-2011, sem Lára Kristín Sturlu-
dóttir vann fyrir sýslumann í Kefla-
vík. Fram kemur í skýrslunni að
Íbúðalánasjóður keypti um 60% af
840 íbúðum sem voru boðnar upp og
greiddi fyrir það rúmlega 40%
heildarsöluverðs íbúðanna.
Meðalfjárhæð fyrir íbúðirnar 506
sem sjóðurinn keypti var 4,7 millj-
ónir króna og er það lægsta meðal-
söluverð, reiknað eftir kaupanda.
Til samanburðar keyptu lífeyris-
sjóðir alls tuttugu íbúðir á tímabilinu
fyrir samtals 212 milljónir og var
meðalfjárhæð íbúðar því 10,6 millj-
ónir. Minnt er á það í skýrslunni að
hæstbjóðandi þarf ekki að bjóða
nema rétt inn í sinn veðrétt til að
tryggja kröfu sína, ef ekki er boðið á
móti honum.
Ráðstafað eftir veðröð
Við nauðungarsölu er söluverði
ráðstafað upp í kröfur samkvæmt
stöðu þeirra í veðröð, eftir því sem
söluverðið hrekkur til. Um fram-
haldið segir í skýrslunni:
„Sem dæmi má taka að ef lögveðs-
kröfur, s.s. fasteignagjöld, iðgjöld
brunatrygginga og húsgjöld, nema
samtals einni milljón króna og
Íbúðalánasjóður á næstu 20 milljónir
króna þarf Íbúðalánasjóður aðeins
að leggja út eina milljón króna vegna
lögveðanna, auk sölugjalds (1%) af
kaupverðinu í ríkissjóð. Það sem um-
fram er tekur Íbúðalánasjóður und-
an sjálfum sér og þarf ekki að greiða
sýslumanni, hvort sem hann bauð
hæst 1,2 milljónir króna eða 20 millj-
ónir króna,“ segir í skýrslunni.
Spurður um þessa umfjöllun segir
Sigurður að lítið sé að marka það fé
sem sjóðurinn hafi greitt fyrir íbúð-
irnar á uppboðunum, enda sé aðeins
greitt upp í veðrétt. Tap ÍLS komi
fram í lögveðskröfum sem þarf að
greiða og afskriftum, mismun á kröf-
um og söluverði íbúða eftir uppboð.
Tap sjóðsins af hverju uppboði er þrjár til tólf milljónir
Sigurður
Erlingsson
Spáir að ÍLS bjóði upp
allt að 1.500 eignir 2014tofrandi jolagjafir
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com
.. ‘
Jólatilboð: 8.990 kr.
Andvirði: 12.500 kr.
Ilmsápa 100 g - 600 kr. | Ilmpoki 35 g - 1.110 kr.
100% Shea Butter 8ml - 1.280 kr. | Sturtuolía 250 ml - 2.730 kr.
Handkrem 150 ml - 3.390 kr. | Fótakrem 150 ml - 3.390 kr.
BEST OF PROVENCE