Morgunblaðið - 07.12.2013, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2013
www.holabok.is/holar@holabok.is
Í dag klukkan 14 kynna
Amal Tamimi og Kristjana
Guðbrandsdóttir bók sína
Von - Saga Amal Tamimi
í Eymundsson við Strandgötu
í Hafnarfirði.
Þetta er bókin um stúlkuna sem
var fangelsuð af Ísraelsmönnum
og flýði síðar á ævintýralegan
hátt til Íslands.
Allir velkomnir,
ÚTGÁFUTEITI
KAFFI OG KONFEKT!
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
sunnudaginn 8. desember kl. 16
og mánudaginn 9. desember kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
N
ína
Tryggvadóttir
N
ína
Tryggvadóttir
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna
svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Jólauppboð
í Gallerí Fold
Forsýning alla helgina í Gallerí Fold
laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–15,
mánudag kl. 10–17
(einungis þau verk sem boðin eru upp á mánudag)
Hægt er að skoða
uppboðsskrána á
myndlist.is
BAKSVIÐ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Mér finnst stundum vanta aukna
virðingu fyrir námi barna. Of marg-
ir líta á skólagöngu sem sjálfsagðan
hlut og að hún sé fyrst og fremst á
ábyrgð skóla. En þegar litið er til
annarra landa, svo sem þeirra sem
skora hátt í rannsókn Pisa, er skóla-
starf þar gjarnan haft í hávegum og
þátttaka foreldra í því er mun meiri
en tíðkast hér. Skólinn þarf þó að
sjálfsögðu líka að líta í eigin barm
og skoða hvernig bæta megi starfið
svo árangur verði betri,“ segir Ólöf
Sigurðardóttir, skólastjóri í Flata-
skóla í Garðabæ.
Árangri hrakað um hálft ár
Niðurstöður svonefndar Pisa-
rannsóknar á færni nemenda í
grunnskólum í 65 löndum þykja slá-
andi og hafa verið í umræðunni alla
vikuna. Hvað Ísland áhrærir þá
versnar frammistaða skólabarna
verulega frá 2009 og séu tíu ár und-
ir hefur árangri hrakað sem nemur
hálfu skólaári. Afturför þessi nær
bæði til höfuðborgarsvæðis og
landsbyggðar, þó sýnu meira til síð-
arnefnda svæðisins. Piltar standa
verr að vígi en stúlkur. Um 30%
þeirra eru á tveimur neðstu þrepum
lesskilnings og um 20% nálægt
botni í stærðfræðilæsi.
Hér verður sjónum beint sér-
staklega að lestrarkunnáttu. Ólöf
segir að í Flataskóla, þar sem eru
nemendur í fimm ára deild og svo
1.-7. bekk, sé fjöldi barna vel læs
eða vel undirbúinn til lestrarnáms
þegar námið hefst. Undirbúningur
úr leikskóla skipti miklu máli.
Upplifa heiminn á skjá
Skóladagur barna hefst á níunda
tímanum á morgnana og stendur
fram á eftirmiðdaginn. Þá taka við
frístundaheimili, íþróttir, tónlist og
svo framvegis. Vinnudagur
barnanna er því oft ámóta langur og
foreldra. Og þegar allir koma dauð-
þreyttir heim undir kvöldmat má
ætla að fólk – á hvaða aldri sem það
er – hafi ekki mikla orku í nám eða
lestur. Þetta leiðir af sér þá spurn-
ingu hvort afturförin liggi í þjóð-
félagsgerðinni. Er einhver tími?
„Ein af forsendum fyrir góðum
námsárangri er að nemendur búi
við góðar aðstæður til náms. Þó
formleg menntun fari fram að miklu
leyti í skólunum, undir handleiðslu
kennara og fagfólks, þá ræðst
námsárangur þeirra líka að miklu
leyti af öðrum þáttum og þá ekki
síst áhuga og hvatningu foreldra,“
segir Ólöf.
„Innan veggja heimilisins er
grunnurinn lagður að færni og við-
horfum barna og þau hafa mikið að
segja varðandi framtíð þeirra í
námi. Íslenskar fjölskyldur vinna
mikið og við vitum líka að foreldrar
verja löngum stundum í tómstundir
og áhugamál sín, án barnanna sinna
sem gjalda þess í mörgum tilvikum.
Tíminn sem foreldrar eiga með
börnunum er aðeins örfá ár sem þó
skipta sköpum í lífi þeirra. Ég hef
líka áhyggjur af því að þegar fjöl-
skyldan hefur tækifæri til að vera
saman þá bætist við andleg fjarvera
foreldra og barna með tilkomu
snjalltækjanna þar sem hver situr
með sitt tæki og upplifir heiminn á
skjá.“
Samningar gegn breytingum
Ólöf segir ennfremur að mörg
börn séu önnum kafin í tómstunda-
starfi, svo sem íþróttum og tónlist
sem er vissulega af hinu góða. Hún
hafi þó stundum áhyggjur af því að
markmiðið með æfingum þessum sé
ekki endilega barnvænt, þ.e. að
áhersla sé lögð á markmiðið að ná í
fremstu röð fremur en að ala upp
heilbrigðan einstakling. „Þegar
barn kvartar yfir álagi og kvíða í
tengslum við íþróttaiðkun og aðrar
tómstundir eða nær ekki að sinna
kröfum námsins erum við að missa
sjónar á því að skólinn á að vera í
fyrsta sæti.“
Þegar niðurstöður könnunar voru
kunngerðar í vikunni sögðu fulltrú-
ar Kennarasambands Íslands að út-
koman helgaðist meðal annars af
niðurskurði til skólamála. Ólöf segir
þetta sjónarmið eiga rétt á sér.
Laun kennara séu sannarlega ekki
nógu góð en kjarasamningar kenn-
ara séu líka að mörgu leyti úrelt
plagg sem vinni jafnvel gegn nauð-
synlegum breytingum á skólakerf-
inu. Með breytingu á kennsluhátt-
um, nýrri uppröðun á skóladeginum
og aukinni áherslu á grunnþætti
námsins megi ná lengra en nú er
raunin. Það hafi líka góð og hvetj-
andi áhrif t.d. í íslenskukennslu
þegar góðir rithöfundar koma í
heimsókn í skólana.
Þarf enga töfra
Góðar bækur geta breytt miklu.
Hefur í þessu sambandi verið sagt
að bækurnar um hinn rammgöldr-
ótta Harry Potter sem hafa notið
mikilla vinsælda hafi styrkt lestr-
arkunnáttu íslenskra barna. En
hvað hefur gerst? „Maður hefði nú
haldið að Potter-kynslóðin væri nú
að skila sér í könnuninni. Harry
Potter er ennþá til. En þarf alltaf
æði til að allir geri eitthvað sam-
tímis? Ég held að það þurfi enga
töfra, bara tíma með þessum krökk-
um, ekki síst strákum,“ segir Andri
Snær Magnason rithöfundur. Hann
hefur á síðustu árum skrifað fjölda
bóka sem ungmenni hafa haft gam-
an af, svo sem Söguna af bláa hnett-
inum.
„Ég hef heyrt margar skýringar
á niðurstöðum könnunar Pisa, jafn-
vel að prófið sé gamaldags. En af
hverju er þá kynjamunurinn svona
mikill? Ef við lítum á sérstaka hópa
– til dæmis börn innflytjenda – þá
er málið enn alvarlegra, þar sem
þau börn hafa sum hver ekki for-
eldra til að hjálpa sér þar sem þeir
skilja ekki íslensku. Þar erum við að
kasta á glæ gríðarmiklum hæfi-
leikum og tækifærum og hugs-
anlega að skapa alvarleg félagsleg
vandamál,“ segir Andri Snær.
„Illa læsri þjóð farnast ekki vel.
Ef skilur svona á milli drengja og
stúlkna gæti það haft ófyrirséðar
afleiðingar; ef spenna vex milli
kynjanna þegar stákarnir enda sem
eftirbátar stelpna. Svona vísar eru
oft notaðir til að spá um hnignun og
jaðarsvæði. Strákarnir verða eftir
en konurnar fara,“ segir Andri.
Hann nefnir einnig það sem Ólöf
Sigurðardóttir segir að þegar börn-
in séu á fullu í ýmsu tómstunda-
starfi sé oft lítill tími til lestrar eða
heimanáms. Betra skipulag til
dæmis á vinnudegi barna myndi
margt auðvelda.
Ásköpuð fötlun
Andri Snær segist þekkja þess
dæmi að skólabókasöfn kaupi ekki
nýjar bækur vegna fjárskorts. „Það
er hrikalegt ef skólar eiga ekki þær
bækur sem helst eru nefndar. Um-
ræða um listamenn sem afætur á
samfélaginu, sem eiga að spjara sig
á frjálsum markaði, er athyglisverð
í ljósi Pisa-könnunarinnar,“ segir
Andri Snær sem telur athyglisvert
að piltar standi talsvert verr að vígi
en stúlkur hvað lesturinn varðar.
„Ég held að andlegt líf, tungumál
og tjáning stráka, sem eyða of mikl-
um tíma í tölvuleikjum og hafa ekki
náð tökum á lestri, sé því miður fá-
tæklegt. Þeir muni ekki nota tölv-
urnar til að opna fyrir sér heiminn.
Geta ekki heldur orðað hugsanir
sínar og líðan, fært rök fyrir máli
sínu eða greint flóknar upplýsingar.
Það er ásköpuð fötlun.“
Illa læsri þjóð farnast ekki vel
Lakur lesskilningur samkvæmt könnun Pisa hreyfir við skólafólki og skáldum Vinnudagur barna
er langur og þreytandi Andleg fjarvera foreldranna Þurfum að verja tíma með krökkunum
Skólastrákar Tölvur eru þarfaþing en óttast er að verði krakkar of háðir þeim dragi úr lestraráhuga og -kunnáttu
þeirra. Strákar í 5. bekk Flataskóla með spjaldtölvurnar sínar. Frá vinstri: Flóki Fannar Halldórsson, Ásgeir Bjarni
Eyþórsson, Sigurþór Kristinsson, Askur Hrafn Hannesson, Kári Rafn Snæbjörnsson og Aron Frank Kristinsson.
Ólöf
Sigurðardóttir
Andri Snær
Magnason
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hugsanlega
þurfa aðferð-
ir í íslensku-
kennslu í
grunnskól-
unum að
vera fjöl-
breyttari,“
segir Olga
Lísa Garð-
arsdóttir,
skólameist-
ari Fjölbrautaskóla Suðurlands á
Selfossi. Vísar hún þar til slakrar
útkomu íslenskra barna í Pisa-
rannsókn.
Í íslenskukennslu þarf að verk-
efnatengja vinnu nemenda í
meira mæli. „Ég held að það ætti
að lesa fyrir krakkana í skólanum
upp úr skemmtilegum og spenn-
andi skáldsögum við hæfi hvers
aldurs, sem er hvati til að þau
langi að lesa meira sjálf. Með
nýrri námskrá á báðum skóla-
stigum mun vægi íslensku
aukast og kennslan breytast. Ég
er viss um að það mun hafa góð
áhrif á lestur og lesskilning.“
Lesið úr spenn-
andi sögum
FJÖLBREYTTARI AÐFERÐIR
Olga Lísa
Garðarsdóttir