Morgunblaðið - 23.01.2014, Qupperneq 1
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Felldu Atkvæði talin um kjarasamninga Flóafélaganna sem sömdu fyrir um 20.000 félagsmenn en aðeins 15,3% kusu. Já sögðu 46,6%, nei sögðu 53,1%.
Ómar Friðriksson
Kjartan Kjartansson
„Er ekki rétt að næstu skref
verði bara að ríkið klári sína samn-
inga við sína starfsmenn? Þeir
samningar renna út í lok næstu
viku,“ segir Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ, um þá flóknu stöðu
sem upp er komin eftir að fjöldi
aðildarfélaga ASÍ felldi nýgerða
kjarasamninga. Gylfi segir ASÍ-fé-
lögin nú þurfa tóm til að fara yfir
stöðuna hjá sér.
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri SA, segir að svig-
rúmið til launabreytinga hafi ekk-
ert aukist við þessa niðurstöðu
kosninganna. „Við töldum samn-
inginn í efri mörkum þess sem
ásættanlegt væri og það mat okkar
er óbreytt,“ segir hann.
Mikil óvissa er komin upp í
kjaramálum eftir að meirihluti að-
ildarfélaga ASÍ hafnaði kjara-
samningunum, þ. á m. Flóafélögin
og 11 aðildarfélög Starfsgreina-
sambandsins. VR sem hefur á að
skipa rúmlega 24.600 félagsmönn-
um samþykkti þá hins vegar og
það gerðu fjölmörg önnur félög.
Voru samningarnir samþykktir í
félögum með rétt rúmlega helm-
ingi allra launaþega innan ASÍ sem
atkvæðisrétt áttu. Kosningaþátt-
taka var dræm.
Sigurður Bessason, formaður
Eflingar, kennir aðgerðarleysi rík-
isstjórnarinnar um að félagsmenn
hans hafi fellt samningana. Hún
hafi ekki lagt sitt af mörkum til að
ná stöðugleika og temja verðbólgu.
Óbreytt svigrúm til hækkana
Forseti ASÍ segir næsta skref að ríkið klári samninga við sína starfsmenn
Mikil óvissa um framhald í samningamálum eftir að fjöldi ASÍ félaga-felldi
MFlókin staða » 6
F I M M T U D A G U R 2 3. J A N Ú A R 2 0 1 4
Stofnað 1913 19. tölublað 102. árgangur
MUN ÍSLENSKT
VISKÍ SIGRA
HEIMINN? FLUTTU Í HESTHÚSIÐ
KONA ÍÞRÓTTA-
MAÐUR ÁRSINS
8. SKIPTI Í RÖÐ
REGLUR ÚT Í HÖTT 24 AFREKSMENN Á AKUREYRI 22VIÐSKIPTABLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
Mikil uppbygging Alls verða rúmlega 250
herbergi í hótelinu og 90 íbúðir.
Stefnt er að því að framkvæmdir
við nýtt hótel við hliðina á Hörpu og
íbúðarhúsnæði á nærliggjandi lóð
hefjist á þessu ári og ljúki á fyrri-
hluta ársins 2017. Áformað er að
rúmlega 250 herbergi verði í hót-
elinu og 90 íbúðir auk verslana í
fimm byggingum sem verða reistar
næst hótelinu. Heildarfjárfesting
verkefnisins er áætluð um 14 millj-
arðar króna. Reiknað er með því að
framkvæmdin skapi jafnvel yfir 200
ný störf og að á milli 100 og 150
starfsmenn vinni á hótelinu sjálfu
þegar það er tilbúið. »26
14 milljarða fram-
kvæmd á Hörpureit
Færri reyktu í fyrra en árið þar á
undan. Árið 2012 reyktu 13,8%
landsmanna daglega en samkvæmt
nýrri skýrslu embættis landlæknis
um tíðni reykinga árið 2013 hefur
hlutfallið lækkað nokkuð á milli ára.
Viðar Jensson, verkefnastjóri
tóbaksvarna hjá embætti land-
læknis, segir það ánægjulegt að enn
dragi úr daglegum reykingum en á
móti komi að aðeins aukist fjöldi
þeirra sem segjast reykja öðru
hverju.
Karl Andersen, hjartalæknir á
Landspítalanum, situr m.a í fagráði
í tóbaksvörnum. Hann segir að gott
forvarnastarf á Íslandi sé að skila
sér núna í fækkun daglegra reyk-
ingamanna en hann vill efla for-
varnir enn frekar. Karl vill að síga-
rettupakkinn hækki verulega í
verði, upp í allt að 4000 kr. »16
Reykingamönnum
fækkaði í fyrra
Sigurður Ingi Sigurðsson sem rek-
ur vistheimilið Hamarskot ásamt
Gerði Hreiðarsdóttur, eiginkonu
sinni, segir að kerfið þurfi að geta
fyrr og ákveðnar gripið inn í ef ung-
lingur er augljóslega á kolrangri
braut, kominn á kaf í fíkniefna-
neyslu og innbrot. Bæta þurfi við
einhvers konar unglingameðferð
sem sé lokuð að einhverju leyti.
Gerður tekur undir þetta. Krakkar í
neyslu geti fengið inni á Vogi en þeir
geti líka gengið þaðan út sjálfir,
jafnvel samdægurs. »38-39
Þarf að vera hægt
að grípa fyrr inn í
Batnar Frá vistheimilinu Hamarskoti.
Morgunblaðið/Golli
Danir fóru á kostum gegn Íslendingum í leik liðanna í Evrópumótinu í
handknattleik í gærkvöldi og unnu öruggan sigur, 32:23. Á myndinni er
Björgvin Páll Gústavsson varnarlaus í markinu. Ísland leikur gegn Pól-
landi um fimmta sætið í keppninni klukkan 15 á föstudaginn. » Íþróttir
Leikið um fimmta sætið
AFP
Danir of sterkir fyrir Íslendinga
Hjálmar Sveinsson, stjórnar-
formaður Faxaflóahafna, segir að
stjórn fyrirtækisins muni líklega
flýta stjórnarfundi til að hægt sé að
taka afstöðu til erindis ASÍ vegna
gjaldskrárhækkana fyrirtækisins.
Að meðaltali hækki gjaldskrár
fyrirtækisins um 3,8%.
„Þetta fyrirtæki mun ekki skorast
undan því að fjalla af fullri alvöru um
svona erindi. Fyrirtækið hefur líka
ákveðna ábyrgð í sínum eigin
rekstri. Það þarf að vega þetta og
meta,“ segir Hjálmar.
Sorpa hefur hækkað suma gjald-
flokka um 1,04% og segir Margrét
Gauja Magnúsdóttir, stjórnarfor-
maður Sorpu, að á næsta stjórnar-
fundi verði rætt hvort afturkalla eigi
hækkunina.
Annað hvert fyrirtæki á svörtum
lista ASÍ er hjá hinu opinbera. »6
Faxaflóahafnir munu
endurmeta hækkanir