Morgunblaðið - 23.01.2014, Page 8

Morgunblaðið - 23.01.2014, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 Síðasta ríkisstjórn lagðist í her-leiðangra gegn mörgu sem gott er. Eitt af því er íslenskur sjávarútvegur en vinstri stjórnin hafði að sérstöku markmiði að koma honum á kné.    Skilvirkt ogskynsamlegt fiskveiðistjórn- arkerfi, sem ver- ið hefur fyrirmynd annarra þjóða og fært íslenska sjávarútveginn í fremstu röð, skyldi eyðilagt og sjávarútvegurinn nánast þjóðnýtt- ur í gegnum ofurskattheimtu sem á sér engan líka.    Útgerðin neyddist til að kippaað sér höndum í fjárfest- ingum vegna þessara fjand- samlegu aðgerða og neikvæðar af- leiðingar stefnunnar hafa komið fram víða.    Meintar röksemdir fyrir ofur-skattheimtunni voru þær að góð afkoma sjávarútvegsins rétt- lætti að á hann yrðu lagðar slig- andi byrðar. Þá horfðu formæl- endur ofurskattheimtunnar framhjá ýmsu, meðal annars því að í sjávarútvegi skiptast á skin og skúrir. Nú er til að mynda komið fram að mikil verðlækkun hefur að undanförnu orðið á afurðum í uppsjávarveiðinni svo nemur tug- um prósenta.    Deildarstjóri uppsjávarsviðs HBGranda upplýsir hér í blaðinu í gær að 75% af framlegð veiðanna fari nú í veiðigjöld, sem hafi tvö- faldast á milli ára. Hjá Síldar- vinnslunni er staðan þannig að framlegð kolmunnaveiðanna mun ekki standa undir veiðigjöldunum.    Þetta er vitaskuld ástand semengin stjórnvöld geta látið viðgangast. Ofurskattheimtan heldur áfram STAKSTEINAR Veður víða um heim 22.1., kl. 18.00 Reykjavík 0 slydda Bolungarvík 1 rigning Akureyri 2 rigning Nuuk -2 skafrenningur Þórshöfn 6 þoka Ósló -10 snjókoma Kaupmannahöfn -1 skýjað Stokkhólmur -7 heiðskírt Helsinki -15 skýjað Lúxemborg 1 alskýjað Brussel 3 heiðskírt Dublin 7 skýjað Glasgow 7 skýjað London 10 skýjað París 2 skúrir Amsterdam 3 skýjað Hamborg -2 skýjað Berlín -5 snjókoma Vín 3 alskýjað Moskva -16 skýjað Algarve 17 léttskýjað Madríd 11 skúrir Barcelona 7 súld Mallorca 12 léttskýjað Róm 11 léttskýjað Aþena 15 léttskýjað Winnipeg -27 skafrenningur Montreal -22 léttskýjað New York -12 léttskýjað Chicago -13 snjókoma Orlando 8 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 23. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:35 16:46 ÍSAFJÖRÐUR 11:01 16:29 SIGLUFJÖRÐUR 10:45 16:11 DJÚPIVOGUR 10:09 16:10 Í frétt Sky-fréttastofunnar kom fram að 123456 hefur tekið við af lykilorðinu password sem algeng- asta lykilorðið á internetinu. Gögnin voru unnin upp úr tölvugögnum sem hafa lekið af netsíðum víða um heim. Ýmir Vigfússon lektor í tölvunar- fræði við HR og meðstofnandi Synd- is segir að rannsóknir sýni að fólk noti að jafnaði eins einföld lykilorð og það komist upp með. „Það sem er verst í þessu er að fólk notar þessi lykilorð aftur og aftur á ólíkum stöð- um,“ segir Ýmir. Hann segir að þó fyrirtæki reyni að dulkóða lykilorð þá sé það svo að eftir því sem lykil- orðið sé einfaldara reynist það auð- veldara fyrir tölvuþrjóta að finna upprunalegt lykilorð. „Glæpasamtök í heiminum reyna reglulega að komast inn á reikninga með því að notast við allra algeng- ustu lykilorðin, á borð við 123456, svo að notendur slíkra reikninga geta búist við því að brotist sé inn í slíkar þjónustur,“ segir Ýmir. „Það er vont að vera með einfalt lykilorð en það er ekki aðalleiðin að persónu- legum upplýsingum. Algengara er að sýktar síður eða sýkt viðhengi í tölvupósti séu notuð til þess að kom- ast inn á tölvuna og fara þannig að persónulegum upplýsingum. Slíkar árásir eru bæði algengar og sjálf- virkar,“ segir Ýmir. Ekki nota lykilorðið 123456  Notendur geti búist við innbroti Morgunblaðið/Rósa Braga Lykilorð Þeir sem eru með einföld lykilorð geta búist við innbrotum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.