Morgunblaðið - 23.01.2014, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
i d e x . i s – s í m i 4 1 2 1 7 0 0
Með samsettu Larson álklæðningunum frá Alucoil færð
þú það sem þú ert að leita að - slétta álklæðningu sem
lítur ekki út eins og sjórekin olíutunna.
Larson álklæðningarnar sameina styrk, léttleika og
umfram allt eru þær sléttar.
Helstu kostir:
u Eldþolnar
u Léttar og sléttar
u Einstakt veður– og efnaþol
u Burðarkerfi sem henta mismunandi verkefnum
u Hávaða– og hitaeinangrun
u Umhverfisvænar ( endurvinnanlegt efni )
u Fjöldi lita og efnisáferða
u Allt að 20 ára ábyrgð
þegar SLÉTT skal vera SLÉTT
Sigurður Ægisson
Siglufirði
Framkvæmdir hafa staðið yfir
undanfarnar vikur í Múlagöngum,
yst á Tröllaskaga, en þau tengja
saman Ólafsfjörð og Dalvík, eru
3,4 km að lengd, einbreið, voru
tekin í notkun í desember 1990,
vígð 1. mars 1991 og eru um margt
barn síns tíma.
Verið er að endurnýja rafkerfi
þeirra í heild sinni, til að uppfylla
Evrópukröfur, nútíma örygg-
isstaðla um lýsingu, merkingar og
fleira.
Verkið, sem á að vera að fullu
lokið 15. apríl 2014, er í höndum
Rafmanna ehf. á Akureyri, sem sjá
um allt nema það að grafa í vegöxl-
ina norðanverða til að unnt sé að
koma þar niður ídráttarrörum,
fjölpípurörum og aflstrengjum; sá
verkþáttur, jarðvinnan, er í hönd-
um RARIK, í gegnum und-
irverktaka, Smára ehf. á Ólafsfirði.
89 upplýst umferðarskilti
Aðalsteinn Þ. Arnarsson raf-
magnsiðnfræðingur, einn af eig-
endum Raffó ehf. á Siglufirði, er
eftirlitsmaður Vegagerðarinnar.
Segir hann að mjög stífar kröfur
séu gerðar varðandi allt efni, út af
brunavörnum o.s.frv. Alls verði
3.700 metrar settir niður af ídrátt-
arrörum, 3.600 metrar af tvenns
konar blásturs- eða fjölpípurörum
og 15.500 metrar af aflstrengjum,
sem bara eigi að notast í göng-
unum.
Þá verði festir á gangavegginn
23 nýir síma- og slökkvitækjaskáp-
ar, sem muni hver um sig inni-
halda IP neyðarsíma og tvö 6 kg
duftslökkvitæki. Límmiðar með
upplýsingum um notkun síma verði
á fimm tungumálum. Þá verða
upplýst umferðarskilti 89 talsins.
Farsímakerfi í göngunum
Koma á upp búnaði fyrir bæði
GSM og TETRA símakerfi svo
hægt verði að nota farsíma þar
inni. Lokunarslám með skynjunar-
búnaði verður komið fyrir í vegöxl
rétt utan við gangamunna beggja
vegna. Þær eiga að vera 5 metrar
á lengd en búnaðurinn á samt að
gera ráð fyrir þeim lengri eða allt
að 9 metrar. Lyftitími á að vera
4-9 sekúndur og búnaðurinn gerð-
ur fyrir a.m.k. 500 lokanir/opnanir
á dag. Blikkljós verða fyrir utan
göng sem og neyðarstjórnskápar.
Eftirlitsmyndavélar verða settar
upp og hraðaupplýsingaskilti, sem
og mengunarnemar til að mæla CO
(kolsýrling), NO2 (köfnunarefnis-
oxíð) og ryk, veðurnemar, úti og
inni, og umferðargreinir.
Þrjú tæknirými verða í göng-
unum, í hellum. Einn var þar fyrir
en hinir tveir sprengdir inn í berg-
ið síðastliðið haust. Sá verkþáttur
var boðinn út sérstaklega og var
Þórsverk ehf. í Reykjavík verktaki
þar. Eitt tæknirýmanna verður
nærri gangamunnanum Ólafsfjarð-
armegin, nánar tiltekið í útskoti
19, annað í miðjum göngum, í út-
skoti 10, og hið þriðja í útskoti 2,
Dalvíkurmegin. Um er að ræða
gáma með fjarskiptaskápum og
stýringum margs konar, sem hægt
verður að stjórna frá Akureyri eða
annars staðar og fylgjast með
ýmsu, s.s. umferð og mengun.
Slökkvilið Fjallabyggðar og við-
bragðsaðilar á svæðinu hafa þrýst
á Vegagerðina um að setja jafn-
framt upp blásara í Múlagöngum
og er það í skoðun, þótt ekki hafi
verið gert ráð fyrir slíku í útboðs-
gögnum. Að minnsta kosti er ljóst
að nóg rafmagn mun verða til stað-
ar ef út í þetta yrði farið.
Í framhaldi þessa er í deiglunni
að líta á Strákagöng, hugsanlega á
næsta ári, en þau eru mjög komin
til ára sinna, að ekki sé fastar að
orði kveðið, voru formlega opnuð
10. nóvember 1967.
Múlagöngin fá andlitslyftingu
Rafkerfið endurnýjað í heild sinni til að uppfylla nútímaöryggisstaðla um lýsingu, merkingar og
fleira Alls verða 89 upplýst umferðarskilti í göngunum Búnaður fyrir GSM og TETRA símakerfi
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Kapallinn lagður Leggja þarf marga kílómetra af rörum og köplum í göngunum.
Grafið fyrir strengjum Starfsmenn Smára grafa fyrir rafmagnslínunum.
Iðnir Bograð yfir tengikassa í Múlagöngum. Verkinu á að ljúka í apríl.
Tengja Unnið við tengingu rafstrengs í rökkrinu.