Morgunblaðið - 23.01.2014, Page 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
VIÐTAL
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Á þriðja hundrað ferða er á dag-
skrá Útivistar á þessu ári. Svo
margir leiðangrar, lengri sem
skemmri, hafa ekki sést með sama
hætti áður í áætlun félagsins. Þetta
endurspeglar, að
sögn Þórarins
Eyfjörð for-
manns Útivistar,
hve öflug starf-
semin er orðin.
Útivist og ferða-
lög af ýmsu tagi
eru orðin
ríkjandi þáttur í
lífi tuga þúsunda
Íslendinga. „Fólk
er að leita í íslenska náttúru og feg-
urð fjallana. Og þetta er allur pakk-
inn; stuttar kvöldgöngur, nokkurra
daga sumarleyfisferðir og erfiðar
toppaferðir og fleira,“ segir Þórar-
inn.
Lagt upp frá Toppstöðinni
Nefnir þar fyrst Útivistarrækt-
ina: gönguferðir um Elliðaárdal á
mánudögum og miðvikudögum.
Lagt er upp frá Toppstöðinni kl.
18:00 á mánudögum en hálftím-
anum síðar á miðvikudögum. Ekk-
ert þátttökugjald er í þessum göng-
um sem henta vel fólki sem til
dæmis vill komast í þjálfun til þess
að geta farið í meira krefjandi verk-
efni í fyllingu tímans.
„Ferðanefndir Útivistar setja upp
dagskrána en allir félagsmenn geta
komið með tillögur. Nýjar ferðir
eru nær undantekningalaust hug-
myndir úr grasrót félagsins og
þannig ræðst ferðaframboðið af því
hvað félagsmenn vilja. Með þessum
hugmyndapottum koma alltaf fram
ný og spennandi verkefni,“ segir
Þórarinn.
Frá Reykjanestá
Raðgöngur hafa lengi verið áber-
andi þáttur í starfi Útivistar, en þá
eru teknar fyrir lengri leiðir og bút-
ar úr þeim teknir yfir lengri tíma.
Er þá farið um slóðir sem hafa sér-
stöðu, með tilliti til náttúru, sögu
eða annarra þátta. Útivistarfólk
hefur til dæmis nokkrum sinnum
gengið Reykjaveginn svonefnda,
það er frá Reykjanestá og þaðan
svo í norðaustur yfir fjöll og firn-
indi. Er þessi leið einmitt í boði
þetta ár.
Fyrsti leggurinn verður tekinn
um aðra helgi, sunnudaginn 2. febr-
úar. Þá verður gengið frá Valahnúk
á Reykjanesi og þaðan svo fram á
ystu nöf, fram á Öngulbrjótsnef þar
sem brimið ber klettana. Á þessari
leið er náttúrufar um margt ein-
stakt; óvíða sjást ummerki eldvirkni
jafn skýrt.
„Það er ástæða til að velta fyrir
sér hversu lengi verður hægt að
bjóða upp á þessa raðgöngu. Hve-
nær framkvæmdir á svæðinu ná því
marki að þetta hættir að þykja
spennandi?“ segir Þórarinn og held-
ur áfram. „Fyrir nokkrum áratug-
um var þetta eitt helsta útivistar-
svæðið í nágrenni borgarinnar. Enn
má finna óspillta náttúru á Reykja-
nesi og það verður án efa verkefni
næstu missera að verja það land-
svæði sem enn hefur ekki orðið
náttúruvígvélunum að bráð. Þetta á
einnig við um ýmsar náttúruperlur
á hálendi Íslands.“
Fimmvörðuháls
um hverja helgi
Í sumar er á vegum Útivistar
gengið nánast um hverja helgi yfir
Fimmvörðuháls, sem mörgum er
hugleikinn eftir jarðeldana fyrir
fjórum árum. Þar á Útivist skála og
í raun er þessi leið milli jökla eitt af
kjörlendum félagsins. Auk þess
stendur félagið að afar fjölbreyttum
ferðum, dagsferðum, helgarferðum,
lengri gönguferðum svo og skíða-,
hjóla- og jeppaferðum. Auk þessa
eru mjög öflugir hópar starfandi
innan félagsins, en það eru Everest-
hópurinn, Fjallarefir og kvennahóp-
ur og starfa þeir hver eftir sinni
dagskránni.
Gönguferðirnar úr grasrótinni
Margt á döfinni hjá Útivist og fjölbreytt ferðaáætlun Þjálfun fyrir krefjandi verkefni Hugmynda-
pottar og spennandi verkefni Raðganga um Reykjaveg sem talinn er í hættu vegna framkvæmda
Þórarinn
Eyfjörð
Ljósmynd/Kristinn Atlason
Fjöll Útivistarfólk í jökulhelli. Í ferðaáætlun kennir ýmissa grasa og leiðangrarnir eru fyrir byrjendur sem aðra.
Í dag, fimmtudag, verður dregið um veiðileyfi í
Elliðaánum næsta sumar. Drátturinn fer fram í
húsnæði Stangveiðifélags Reykjavíkur á Raf-
stöðvarvegi 14 og hefst stundvíslega kl. 17.30.
Áhugasömum er boðið að koma og fylgjast með
en einnig verður fjallað ítarlega um útdráttinn
á vef SVFR og á Facebook-síðu félagsins eftir
því sem honum vindur fram, segir í frétt frá fé-
laginu. Eins og við var að búast var töluverð
umframeftirspurn eftir veiðileyfum í Elliðanum
næsta sumar en umsóknir eru hátt í eitt þús-
und. Vegna þessa var brugðið á það ráð að láta
tölvu sjá um útdrátt leyfa líkt og við útdrátt
hreindýraveiðileyfa. Félagsmenn SVFR sóttu í
úthlutun um tiltekna viku sem þeir helst vilja
veiða í. Flestir sóttu um að veiða fyrir hádegi í
vikunni 12.-18. júlí.
Dregið um veiðileyfi í Elliðaánum í beinni
Unnur Brá Kon-
ráðsdóttir alþing-
ismaður hefur
verið kjörin for-
maður þing-
mannanefndar
Hoyvíkursamn-
ingsins. Brandur
Sandoy þingmað-
ur á færeyska
Lögþinginu hef-
ur verið kjörinn
varaformaður nefndarinnar.
Á fundinum var möguleg þátt-
taka Grænlands í Hoyvíkursamn-
ingnum rædd og var ákveðið að
kanna kosti þess og galla frekar.
Málið verður tekið upp að nýju á
fundi nefndarinnar sem haldin verð-
ur í september síðar á þessu ári, seg-
ir í tilkynningu.
Stofnað var til þingnefndar Hoy-
víkusamningsins árið 2011. Alþingi
Íslands og Lögþing Færeyja tilnefna
hvort um sig sex þingmenn í nefnd-
ina. Landsþing Grænlands tilnefnir
sex þingmenn sem eru áheyrna-
fulltrúar í nefndinni með málfrelsi.
Ísland og Færeyjar samþykktu
Hoyvíkursamninginn árið 2006.
Samningurinn tryggir að sam-
kvæmt meginreglu sé frjálst flæði á
vörum, þjónustu, fjármagni og fólki
á milli landanna.
Auk þess tryggir samningurinn
ýmiss konar samstarf landanna, svo
sem á sviði menntunar, rannsókna
og menningar.
Þátttaka Grænlendinga tekin til skoðunar
Unnur Brá
Konráðsdóttir
STUTT
Tvær gönguleiðir á sunnanverðu hálendinu njóta mikilla vin-
sælda; það er Laugavegurinn og svonefndur Strútsstígur. Sú
síðarnefnd er frá Hólaskjóli á Nyrðra-Fjallabaki og norðan Mýr-
dalsjökuls í Hvanngil á Rangárvallaafrétti. Það var Útivistarfólk
sem opnaði þessa leið á sínum tíma og það nam einnig land á
Skaftártunguafrétti á leiðinni Sveinstindur – Skælingar.
„Útivist opnaði þessi svæði í lok 10. áratugarins með því að
gera upp gömul gangnamannahús og reisa nýja skála sem mæta
þörfum gönguhópa. Þessar leiðir þjóna bæði því hlutverki að
kynna fyrir útivistarfólki ný og spennandi svæði. Eitt af því sem
við útivistarfólk verðum að fara að huga að er hæfileg dreifing
ferðamanna um viðkvæmt hálendi. Þessar leiðir koma mjög
sterkt þar inn enda algjör gullkorn. Einstaklega góðir og spenn-
andi valkostir,“ segir Þórarinn Eyfjörð.
Hæfileg dreifing fólks um viðkvæmt svæði
STRÚTSSTÍGUR OG SKÆLINGAR VINSÆLAR SLÓÐIR MEÐAL ÚTIVISTARFÓLKS
Strútsskáli Göngugarpar á góðum degi.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA Fífa salernispappírinn er einstaklega mjúkur þriggja laga pappír, náttúrulega
hvíttur, án klórbleikiefna og viðbættra ilmefna. Þú færð Fífa í næstu verslun.
WWW.PAPCO.IS
FIÐURMJÚK FÍFA