Morgunblaðið - 23.01.2014, Qupperneq 45
ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA
AF GARDÍNUEFNUM
Á ÚTSÖLU
OG ELDHÚSKÖPPUM
PÚÐAVER ÁTILBOÐI
2.000 kr. stykkið
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
Sími 588 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
Borgið
2 fáið 3
Kosið verður til sveitarstjórna um land allt eftir
fjóra mánuði. Enn er margt óljóst um framboð
einstakra manna og flokka, stefnumál og átakalínur. Ljóst er þó að víða verða miklar breytingar á samsetningu sveitarstjórna
landsins. Skoðanakannanir benda til þess að meirihlutar í nokkrum stærstu sveitarfélögunum séu fallnir. Nýtt fólk sest þá í
valdastóla. Ný framboð, einkum Björt framtíð og Píratar, virðast eiga hljómgrunn og stefnir í að þau eignist sína fyrstu sveit-
arstjórnarmenn. Jón Gnarr hættir í vor og ólíklegt er að borgarbúar eignist að nýju jafn litríkan og óvenjulegan borgarstjóra.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
inn fengi aðeins einn bæjarfulltrúa
kjörinn en hefur nú sex eftir glæsi-
legan og óvæntan stórsigur í kosn-
ingunum 2010.
Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn
stærstur í bænum en þó aðeins með
þrjá fulltrúa. Hann á einn fulltrúa í
núverandi bæjarstjórn og hefur sá
ákveðið að draga sig í hlé. Fyrir
kosningarnar 2010 var Sjálfstæð-
isflokkurinn með fjóra fulltrúa í bæj-
arstjórninni.
Meirihluti í Árborg fallinn
Sjálfstæðisflokkurinn náði hrein-
um meirihluta í bæjarstjórn Árborg-
ar í kosningunum 2010. Hann fellur í
vor samkvæmt könnun sem Morg-
unblaðið birti 26. nóvember. Fengi
flokkurinn fjóra fulltrúa í stað þeirra
fimm sem hann hefur. Eyþór Arn-
alds hefur verið oddviti sjálfstæð-
ismanna á kjörtímabilinu, en hann
verður ekki í framboði í vor. Ásta
Stefánsdóttir framkvæmdastjóri
sveitarfélagsins hefur lýst yfir
áhuga á því að taka sæti Eyþórs á
framboðslistanum.
Framsóknarflokkurinn bætir við
sig manni í Árborg og Björt framtíð
næði inn fulltrúa á kostnað Samfylk-
ingarinnar.
Óvissa í Kópavogi
Í Kópavogi heldur meirihlutinn í
bæjarstjórn velli samkvæmt könnun
sem Morgunblaðið birti í lok nóv-
ember. Einn flokkanna, Y-listi
Kópavogsbúa, þurrkast að vísu út en
á móti vegur að Sjálfstæðisflokk-
urinn bætir við sig manni.
En þrátt fyrir að þetta yrðu úrslit-
in ríkir óvissa um framtíð meirihlut-
ans. Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi
framsóknarmanna til margra ára
verður ekki í framboði. Uppá-
komurnar í Sjálfstæðisflokknum í
Kópavogi að undanförnu þykja hafa
veikt hann sem samstarfskost. Þá er
og óljóst hvort Ármann kr. Ólafsson
bæjarstjóri heldur oddvitasætinu.
Öflugur frambjóðandi, Margrét
Friðriksdóttir skólameistari, sækist
einnig eftir því að leiða listann.
Nokkur þekktustu andlitin í
bæjarstjórn Kópavogs kveðja í vor.
Auk Ómars hætta Gunnar I. Birg-
isson og Samfylkingarfulltrúarnir
Guðríður Arnardóttir og Hafsteinn
Karlsson.
Halda höfuðvígjum
Kannanir benda til þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn haldi meirihluta
sínum í tveimur stórum sveitar-
félögum á höfuðborgarsvæðinu, í
Garðabæ og Mosfellsbæ. Einnig er
hann talinn öruggur með meirihluta
á Seltjarnarnesi. Samkvæmt könnun
sem Morgunblaðið birti 29. nóv-
ember fengi flokkurinn níu af ellefu
bæjarfulltrúum í Garðabæ. Í Mos-
fellsbæ fengi Sjálfstæðisflokkurinn
sex fulltrúa og gæti myndað meiri-
hluta einn samkvæmt könnun bæj-
arblaðsins Mosfellings í desember.
Hann er nú í samstarfi við VG.
Í Reykjanesbæ héldi Sjálfstæð-
isflokkurinn meirihluta sínum sam-
kvæmt könnun 30. nóvember, en
missti einn fulltrúa og væri ekki
lengur með meirihluta kjósenda á
bak við sig. Árni Sigfúson er sem
fyrr sterkur í sessi sem foringi
listans. Tvö ný framboð, Björt fram-
tíð og Píratar, fengju hvor sinn
fulltrúann í bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar.
Morgunblaðið/Ómar
Mosfellsbær Sjálfstæðismenn
hafa byr í seglin og líklegt að
þeir stjórni bæjarfélaginu áfram.