Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 48
48 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Ættingjar og tengdafólk nokkurra af
æðstu ráðamönnum Kína, þeirra á
meðal Xi Jinping forseta, hafa notað
aflandsfélög í skattaskjólum til að fela
auð sinn, samkvæmt niðurstöðum
rannsóknar sem Alþjóðasamtök
rannsóknarblaðamanna (ICIJ) birtu í
gær.
Niðurstöðurnar byggjast á upplýs-
ingum í 2,5 milljónum skjala sem lekið
var í samtökin. Aflandsfélögin geta
verið lögleg og ekkert hefur komið
fram sem bendir til þess að ráða-
mennirnir viti af eignum ættingja
sinna og tengdafólks í skattaskjólum.
Aflandseignirnar vekja hins vegar
spurningar um mögulega hagsmuna-
árekstra og hvort ættingjar og
tengdafólk ráðamannanna noti áhrif
sín til að skara eld að sinni köku.
Segir rökin ósannfærandi
Sama dag og niðurstöður rann-
sóknarinnar voru birtar hófust réttar-
höld í máli kínverska lögfræðingsins
Xu Zhiyong sem var ákærður fyrir
þátttöku í mótmælum gegn spillingu.
Xu hafði m.a. krafist þess að upplýs-
ingar um eignir kínverskra ráða-
manna og skyldmenna þeirra yrðu
gerðar opinberar.
Í rannsóknarskýrslu ICIJ kemur
fram að nær 22.000 íbúar meginlands
Kína og Hong Kong eiga af-
landsfélög. Á meðal þeirra eru mágur
Xi Jinping forseta, sonur og tengda-
sonur Wen Jiabao, fyrrverandi for-
sætisráðherra, tengdasonur Deng
heitins Xiaoping, fyrrverandi leiðtoga
Kína, og dóttir Li Peng, fyrrverandi
forsætisráðherra.
Um 90% þeirra sem nota skatta-
skjólin stofnuðu aflandsfélög á
Bresku Jómfrúaeyjum, oft með að-
stoð vestrænna fyrirtækja á borð við
UBS og PricewaterhouseCoopers, að
sögn rannsóknarmannanna. Sjö af
hundraði Kínverjanna eiga af-
landsfélög á Samóaeyjum og þrjú
prósent í öðrum skattaskjólum.
Deng Jiagui, mágur Xi Jinping for-
seta, á aflandsfélög á Jómfrúaeyjum.
Deng kvæntist systur forsetans árið
1996 og hefur auðgast á byggingu og
sölu fasteigna og fjárfestingum. Að
sögn ICIJ á Deng m.a. 50% hlut í fé-
laginu Excellent Effort Property De-
velopment á Bresku Jómfrúaeyjum.
Alþjóðasamtökin hafa eftir Minxin
Pei, prófessor í stjórnmálafræði við
Claremont McKenna-háskóla í Kali-
forníu, að þótt það væri „strangt til
tekið ekki ólöglegt“ að eiga slík af-
landsfélög þá tengist þau oft „hags-
munaárekstrum og dulinni notkun á
pólitískum völdum“.
Talsmaður kínverska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í gær að rök rann-
sóknarmannanna væru ósannfærandi
og vektu spurningar um hvort annar-
legar hvatir lægju að baki rannsókn-
inni.
Sögð hafa safnað miklum auði
The New York Times skýrði frá því
árið 2012 að fjölskylda Wen Jiabao,
þáverandi forsætisráðherra Kína,
hefði auðgast gríðarlega á valdatíma
hans. Fjárfestingar fjölskyldunnar
voru metnar á jafnvirði 350 milljarða
króna. Kínversk stjórnvöld sögðu að
enginn fótur væri fyrir fréttinni og
lýstu henni sem tilraun til að valda
kínversku stjórninni álitshnekki.
The New York Times sagði í nóv-
ember að bandaríski bankinn
JPMorgan hefði ráðið dóttur Wen
sem ráðgjafa og blaðið sagði það lið í
viðleitni bankans til að auka umsvif
sín í Kína með því að ráða ættingja og
tengdafólk kínverskra ráðamanna.
Blaðið sagði að bankinn hefði greitt
aflandsfélaginu Fullmark Consult-
ants 1,8 milljónir dollara (jafnvirði
209 milljóna króna) fyrir ráðgjöfina.
Gögn ICIJ benda til þess að tengda-
sonur forsætisráðherrans fyrrver-
andi hafi stofnað félagið á Bresku
Jómfrúaeyjum árið 2004 og hann hafi
verið eini skráði eigandi þess til ársins
2006.
Sögð fela
auð í skatta-
skjólum
Aflandseignir ættingja og tengda-
fólks ráðamanna í Kína afhjúpaðar
EPA
Andóf Stuðningsmenn Xu Zhiyong mótmæla réttarhöldum yfir honum í
Peking. Xu var ákærður fyrir að taka þátt í mótmælum gegn spillingu.
Li Xiaolin
dóttir
Zhang Xin
meðstofnandi
byggingarfyrirtækisins
SOHO China
Pony Ma
meðstofnandi
netrisans
Tencent
Zhang Zhidong
meðstofnandi
Tencent
Yang Huiyan
auðugasta
konan í Kína
Li Peng
fyrrv. forsætisráðherra
Hong
Kong
Eignir Kínverja í skattaskjólum rannsakaðar
Heimild: ICIJ/Offshore Leaks Database
ICIJ byggir þetta á upplýsingum
í 2,5 milljónum skjala sem
lekið var í samtökin
Ættingjar æðstu ráðamanna Kína og auðugustu menn landsins hafa notað skattaskjól
í öðrum löndum til að fela auð sinn, að sögn Alþjóðasamtaka rannsóknarblaðamanna (ICIJ
Skattaskjól sem Kínverjar nota:
Á meðal þeirra sem eiga eignir í skattaskjólum:
Ekki hafa komið fram neinar
upplýsingar um að ráðamennirnir
viti um þessar eignir ættingja sinna
Nær 22.000 manns á meginlandi
Kína og í Hong Kong og 16.000
Taívanar eiga aflandseignir
Deng Jiagui
mágur
Ættingjar æðstu ráðamanna
Liu Chunhang
tengdasonur
Wen Yunsong
sonur
Hu Yishi
frændi
Wu Jianchang
tengdasonur
Xi Jinping forseti
Wen Jiabao
fyrrv. forsætisráðherra
Nokkrir af auðugustu mönnum Kína
Hu Jintao
fyrrverandi forseti
Deng Xiaoping
fyrrv. leiðtogi, lést 1997
Taívan Kína
Aflands-
félög
2.000
4.000
6.000
8.000
10.000
12.000
14.000
Bresku-
Jómfrúr-
eyjar
Samóa-
eyjar
Önnur
Réttarhöld hófust í gær í máli kín-
verska lögfræðingsins Xu Zhiyong
sem var saksóttur fyrir að taka
þátt í mótmælum gegn spillingu.
Saksóknarar kröfðust þess að Xu
fengi hámarksrefsingu og yrði
dæmdur í fimm ára fangelsi.
Verjandi Xu Zhiyong sagði að
hann hefði neitað að svara spurn-
ingum dómara og saksóknara.
„Þeir reyndu í tíu mínútur að fá
hann til að tala,“ hafði fréttaveit-
an AFP eftir verjandanum. „Hann
sagði ekki orð allt réttarhaldið.“
Xu hefur bar-
ist fyrir mann-
réttindum í Kína,
m.a. réttindum
fanga sem hafa
verið dæmdir til
dauða. Minnst
fimm aðrir verða
dregnir fyrir rétt
í vikunni fyrir að
taka þátt í mót-
mælunum. Talið er nánast öruggt
að þeir verði sakfelldir og dæmdir
í fangelsi.
Á 5 ára fangelsi yfir höfði sér
SAKSÓTTUR FYRIR AÐ MÓTMÆLA SPILLINGU
Xu Zhiyong
Söludeild Hringhellu 6 • 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2510 • gamar@gamar.is • endurvinnslutunnan.is
m
ag
gi
@
12
og
3.
is
21
.8
51
/0
1.
13
m
ag
gi
@
12
og
3
is
21
85
1/
01
13
Flokkunarílát
til notkunar innan húss
FLOKKUNARBARIR
Eitt hólf 20 l. 2 x 11 l. 3 x 11 l. 1 x 8 l. karfaTvistur (á sleða) Þristur (á sleða)
Fáanlegir í mörgum litum. Mál: 38 x 39/93 cm.
2 x 40 l. á vagni 2 x 90 l. á vagni Ás (á sleða)2 x 60 l. á vagni
2 x 10 l. + karfa. Mál: 25 x 38/35 cm.Mál: 56 x 56/66 cm.Mál: 56 x 56/66 cm.Mál: 38 x 66/66 cm.
Allar upplýsingar
í síma 535 2510
Mál: 31 x 46/36 cm. Mál: 31 x 46/36 cm. Með snerti/pedalopnun. Mál: 26/59 cm. Mál: 25 x 31/44 cm. Mál: 25 x 47/44 cm. Fyrir lífræna söfnun. Mál: 18 x 22/22.