Morgunblaðið - 23.01.2014, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 23.01.2014, Qupperneq 52
Takk hreinlæti ehf, Viðarhöfða 2, 110 Reykjavík - Sími 577 6500 - Fax 577 6505 Geymslubox Ýmsarstærðirog gerðir 52 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 Svona hljóðar 65. grein Stjórnar- skrár Íslands: „Allir skulu vera jafn- ir fyrir lögum og njóta mannrétt- inda án tillits til kynferðis, trúar- bragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Kon- ur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.“ Samkvæmt þessari stjórnar- skrárgrein er ljóst að ekki má mis- muna fólki á grundvelli kynferðis. Þetta þýðir að ekki megi gera betur við annað kynið en hitt á grundvelli einhverrar lagasetn- ingar og lagasetning má ekki hafa í för með sér mismunun á milli kynja á vegum þeirra sem sýsla með hag fólks. Það er algjörlega ómögulegt að hægt sé að setja á einhverja kynjakvóta, þar sem tryggt er að útkoma kynjanna samkvæmt einhverjum mæli- kvarða verði á ákveð- inn hátt, án þess að þar með sé beitt mismunun á grundvelli kyns. Ef engin slík mismunun færi fram þýð- ir það að útkoma kynjanna væri ná- kvæmlega eins án kynjakvótans og með kynjakvótanum, og væri þá til- gangslaust að beita kynjakvóta. Það er enginn vandi fyrir dómara að skera úr um hvar mismunun af þessu tagi hefur verið beitt vegna lagasetningar. Hann þarf aðeins að ákvarða hvaða athafnir hafa átt sér stað vegna hinnar mismununarvald- andi löggjafar (t.d. einstaklingur A var skipaður í einhverja stöðu vegna löggjafarinnar) og krefjast þess að ákvarðanaferlið sé endur- tekið án slíkrar mismununar. Hins vegar verða menn að gera sér grein fyrir að mismunur er ekki alltaf rekjanlegur til mismununar. T.d. er mismunur á fjölda kvenna og karla sem sitja í stjórnum fyrir- tækja sennilega ekki vegna mis- mununar (þótt enginn geti vitað slíkt með vissu án þess að skoða í smáatriðum sérhverja einstaka skipun í stjórn fyrirtækja). Hann byggist á því að þegar menn skipa í stjórn fyrirtækja vilja menn forðast að velja einstaklinga sem eru hættulega heimskir, eða fljótfærir, hættulega siðblindir og óheiðarlegir eða sýnt er að ekki sé hægt að treysta þeim. Að auki vilja menn helst ekki hvatyrta, eða hvassyrta svo ekki sé talað um ógæfumenn, inn á stjórnarfundi þar sem örlög og gæfa fyrirtækja er ákveðin. Ýmsir ótaldir eiginleikar svo sem skraf- girni bætast við þessa upptalningu og getur það verið misjafnt eftir því hver er að skipa stjórnarmenn. Fólk er því gjarnt á að velja ein- hverjar persónur sem það þekkir og þekkir þannig að það beri eitthvert traust til þeirra. Úr leik dæmast all- ir þeir sem fólk þekkir lítið eða ekki. Ekkert bendir til þess að mis- munun á grundvelli kyns leiki þarna hlut- verk, þótt líklegt sé að fólk sem ræður í fyrir- tækjastjórnir þekki al- mennt betur til hegð- unar og fortíðar ýmissa karlmanna þegar kem- ur að rekstri og við- skiptum stofnana og fyrirtækja. Sú hugmynd að leiðrétta ein- hverja ímyndaða kynjamismunun með kynjakvóta er því ekki bara yf- irgengilega heimskuleg (ætla mætti að hún sé upprunnin hjá örvitadeild femínista) og þar að auki hugsan- lega hættuleg farsælum fyrirtækja- rekstri í landinu. Það sem er miklu alvarlegra er að hún er beint og augljóst brot á Stjórnarskrá Ís- lands. Fjöldi málaferla mun því lík- legast hljótast af kynjakvótanum. Það eitt og án frekari rökstuðnings ætti að nægja til að vísa kynjakvót- um út í hafsauga. En ennþá hættulegri og skaðlegri framtíðargjafir bíða okkar frá ör- vitadeild femínista. Þeir vilja leið- rétta útkomu kosninga hvað kynja- fjölda varðar á Alþingi og í ríkis- stjórn með öllum tiltækum og ótiltækum ráðum. Stjórnarskrá, mannréttindi og lýðræði er þar eng- in fyrirstaða. Þeir vilja því afnema lýðræði og meirihlutakosningar og helst með því að fjölga meðlimum frá örvitadeild femínista á Alþingi og í ríkisstjórn. Reynsla okkar af kynjafasisma þeirra er ekki slík, að þetta geti tal- ist björt framtíðarsýn. Þótt sjálfur sé ég ekki í aðdáunarhópi flestra þeirra karlmanna sem á þingi sitja, og sé alveg til í að skipta þeim út fyrir greindar, hófsamar og víðsýn- ar konur, þá er ég ófús að setja hér upp einhver konar „bimbocracy tal- ibanskra femínista“. Kynjakvótar brjóta stjórnarskrána Eftir Árna Thoroddsen » Það er algjörlega ómögulegt að hægt sé að setja á einhverja kynjakvóta. Árni Thoroddsen Höfundur er kerfishönnuður. Þið skiluðuð góðu búi, þið segið það sjálf, en við, vinnufólk- ið á góða býlinu, höfð- um þann lúxus einan að horfa á ykkur, fína fólkið í þinginu, gegn um sjónvarpið og hlusta á ykkur, stjórn- vitringana, ausa af viskubrunni skynsem- innar. Og þá vaknar spurningin: „Hvers vegna fyrirlítið þið okkur svona ?“ Nú, þegar við, sem lækkuðum í launum um helming eða jafnvel misstum vinnuna alveg ásamt því að sjá skuldir okkar vaxa yfir höf- uð, og skattana hækka upp fyrir eyru, sjáum vonarneista kvikna í myrkrinu, einhvern sem vill bæta okkur að einhverju leyti þau áföll, sem við urðum fyrir, þá tryllist þú og þínir flokksfélagar og rifnið hreinlega á límingunum. „Þykjast niðursetningarnir eiga einhvern rétt hér á Góða búinu?“ Það vantar ekki rökin hjá ykkur gegn þessari ósvinnu. „Þetta fólk fer á eyðslu- fyllerí og verðbólgan gleypir okkur, við verðum að hafa vit fyrir þessum lýð sem kann ekkert með peninga að fara.“ Þið, sem allt vissuð, fenguð tvö ár til að búa samfélagið undir kreppuna, þið sögðuð að þetta yrði mjúk lending og séð yrði fyrir öllu. Síðan fenguð þið fjögur ár til enduruppbyggingar eftir mjúku lendinguna, þið fenguð að velja ykkur samstarfsflokk og voruð var- in falli, gegn þremur loforðum – sem að sjálfsögðu voru svikin – og síðan fenguð þið fullt umboð í kosn- ingunum. Þá fengum við orðið að ofan, sem minnti á borðbæn ráðs- mannsins á munaðarleysingjahæl- inu hans Olivers Twist; „Það sem þið nú takið á móti, megi Guð gefa að þið verðið umvafin þakklæti.“ Já, við fengum það og ekki smátt skammtað. Ó, hvað við fengum það! Og við fengum þrjá skriflega samninga um kjara- bætur fyrir milligöngu ASÍ og þið svikuð þá alla líka, þau einu sem fengu eitthvað í malla- kútinn sinn voru litlu svöngu börnin í Bruss- el, að ógleymdum ríf- lega björguðum bönk- um og sparisjóðum. Helstu rök ykkar gegn leiðréttingu á skuldum heimilanna, sem þið höfð- uð engan áhuga á þegar þið voruð í stjórn, eru þau að ef ekki fái allir skuldaleiðréttingu, þá megi enginn fá. Við þessum rökum vil ég segja það, að þegar góður vinur minn datt á hausinn um daginn, þá ók ég honum á slysavarðstofuna. Þar setti hjúkrunarkonan á hann plást- ur og kyssti hann á illtið. Ég fékk engan plástur og því síður koss og það eina sem ég fékk, var stöðu- mælasekt, því eins og Dagur B. segir: „Enginn má fara á slysavarð- stofuna, án þess að fá stöðumæla- sekt.“ Samt var ég glaður yfir því að vinur minn fengi bót sinna meina. Góða búið ykkar er undarleg samsetning gjaldþrota heilbrigðis- kerfis, ólæsra unglinga, láglauna- fólks, glæsilegra bankastofnana, sem þið standið svo dyggilega vörð um, og örvasa gamalmenna bund- inna á klafa skulda, eða bara í rúm- in sín. Hvers vegna lítið þið svona niður á okkur? Fyrirspurn til formanns Samfylkingarinnar Eftir Kristján Hall » Þykjast niður- setningarnir eiga einhvern rétt hér á Góða búinu? Kristján Hall Höfundur er atvinnulaus eftir- launaþegi. Kæra heilbrigðis- kerfi. Ég trúi því varla að þú sért fallið frá. Í raun er þó ekki hægt að segja það, þú ert eiginlega í dauðadái, viðhaldið af vægum til- raunum til að halda þér gangandi. Gerðar eru tilraunir með smá- skammtameðölum sem duga skammt og koma of seint. Tilraunum sem þú mátt ekki við. Ég man þegar við rugluðum saman reytum okkar, hvað ég var vongóð, hvað þú varst aðdáunarverður máttarstólpi og fyr- irmynd. Ég var svo stolt af því að vera meðlimur þinn, að fá að vera hluti af hjarta þínu, sem við starfs- fólk þitt erum. Þú varst svo sterkt og lifandi þrátt fyrir stöðugt litla næringu og alúð. Þú varst sko að nálgast það að vera fremst meðal jafningja á svo mörgum sviðum, eins og ég segi, þrátt fyrir allt. Ég upp- lifði mig örugga í návist þinni og það var gaman að vera til. Í kjölfar veik- inda systur þinnar, fjármálakerfis- ins, sem bæði voru af andlegum og líkam- legum toga, þá varð strax ljóst að þú mynd- ir þurfa að líða fyrir þau veikindi. Þó að okkur, hjarta þínu, hefði aldrei dottið í hug að fjarlægja líffæri úr veikburða einstaklingi þá þótti þeim er stjórn- uðu þér það ekkert til- tökumál. Þetta var víst nauðsynlegt. Við mót- mæltum og létum þá vita að þetta væri röng stefna að taka í meðhöndlun þinni og ekki var víst að fórnarkostnaðurinn við að reyna að bjarga systur þinni væri forsvaranlegur. Þetta hefur satt að segja verið eins og að horfa á hægfara flugslys. Eftir röð niður- skurða, þar sem snitti af þér hér og þar hafa verið skorin af, stundum smátt og smátt en stundum stórir mikilvægir þættir í þinni tilvist, hef- ur þú nú fallið. Þú ert ekki lengur á góðri leið eða orðið fremst meðal jafningja. Þú hefur bæði stór- skaddað hjarta og heili þinn hefur gjörsamlega aftengst restinni af lík- amanum. Heilmikið af hjarta þínu hefur flúið þig. Við höfum hreinlega ekki verið metin að verðleikum, álag á okkur hefur sífellt aukist og eins og við vitum þá starfar slíkt hjarta ekki ýkja vel og gefst upp að lokum. En það er eins og heili þinn skilji ekki að án hjartans lifir hann ekki né restin af kerfinu. Hjartað heldur þessu öllu saman gangandi. Nú er sú tíð að líða. Nú erum við starfsfólk þitt, hjarta þitt, hætt að vera með- virk. Við höfum sjálfsvirðingu og getum ekki meir. Hvíl í friði, ef þú getur, við erum að pæla í að sækja um hjá systur þinni, þar fær svona hjartans fólk bónusa og jólagjafir í verðlaun fyrir álagsstundir. Deyr fé, deyja frændur, deyr fólk … eða eitthvað þannig. Blessuð sé minning íslenska heil- brigðiskerfisins. Minningargrein um íslenska heilbrigðiskerfið Eftir Guðrúnu Ösp Theodórsdóttur » Gerðar eru tilraunir með smáskammtameðölum sem duga skammt og koma of seint. Guðrún Ösp Theodórsdóttir Höfundur er hjúkrunarfræðingur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.