Morgunblaðið - 23.01.2014, Side 72

Morgunblaðið - 23.01.2014, Side 72
72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 REDKENONLY SALON SALONVEH HÁRSNYRTING: RÁÐGJÖF, KLIPPING OG MÓTUN, HÁRLITUN, HÁRÞVOTTUR MEÐ NUDDI EÐA DJÚPNÆRINGU VÖRUR Í VERSLUN: ALLT Í HÁRIÐ, HÁRLENGINGAR OG -KOLLUR, GREIÐUR, BURSTAR, BLÁSARAR HÚSI VERSLUNARINNAR, KRINGLUNNI S. 568 7305 • SALONVEH.IS TÍMAPANTANIR HJÁ SALON VEH Í SÍMA 568-7305 GET THE LOOK! AF LISTUM Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson frá Fagra- skógi er gamalt verk, frumsýnt 1941, en aldeilis ekki gamaldags heldur sígilt. Vel er við hæfi að setja það á svið í vetur; í haust voru 40 ár síðan LA varð atvinnuleikhús og eftir fáeina daga verður liðin hálf öld frá andláti skáldsins, heiðursborgara Akureyrar. Tímamót þarf raunar ekki til; ævintýrið stendur fyrir sínu, umfjöllunarefnið sígilt og vinnubrögðin nyrðra til fyrirmyndar. Uppsetn- ing Egils Heiðars Antons Pálssonar og sam- starfsmanna hjá Leikfélagi Akureyrar er allt í senn skemmtileg, falleg, fyndin og sorgleg – ævintýrið um Jón bónda og kerlinguna, baráttu góðs og ills, fyrirgefninguna, ástina. Ef til vill sjálfstæðisbaráttu manns eða þjóðar. Greinilegt var, frumsýningarkvöldið, að áhorfendum líkaði vel. Þannig var skrafað í hléinu og í leikslok brast á með bravóum og húrrahrópum, mjög verðskuldað. Hversu vondur var hann? „Er hinum illa manni viðbjargandi?“ spurði Hannes Óli Ágústsson í samtali hér í blaðinu á dögunum. Hannes leikur karlfauskinn Jón, þann drykkfellda, synduga bóndadurg. „Margt gott getur verið í hinu illa og margt illt í hinu góða. Við leggjum töluverða áherslu á fyrirgefning- una í verkinu; er hægt að fyrirgefa hið ófyrir- gefanlega? Er hægt að fyrirgefa þessum manni? Hversu vondur var hann í raun og veru?“ spurði Hannes og vangavelta þar um er verðugt verk- efni. Hversu vondur var Jón? Þrátt fyrir allt er ást kerlingar á honum svo heit að hún fórnar eigin sálarheill svo hann megi hljóta eilífa himnavist. Var hann þjófur? Er sjálfsbjargar- viðleitni alltaf þjófnaður? Fer það ekki eftir því hvernig á það er litið? Fólk er misjafnt, sem betur fer og margir ekki jafn slæmir og oft er talið. „Við erum öll breysk, en stilllum okkur misjafnlega vel,“ segir María Pálsdóttir sem kerlingin nafnlausa í verk- inu. María fer sérlega vel með hlutverkið. Kona Jóns er óörugg og undirgefin framan af, en sýn- ir þegar á líður að hún er með bein í nefinu; gefst ekki upp þótt verkefnið sé ærið. Íslenska þjóðin að fornu og nýju? Spyr sá sem ekki veit. Hannes Óli er mjög sannfærandi sem Jón, bæði lifandi og dauður, Aðalbjörg Þóra Árna- dóttir bregður sér í sjö kvikinda líka og Hilmir Jensson annað eins og þau gera bæði vel. Leikararnir fjórir taka allir á honum stóra sínum, bæði í túlkun og líkamlegu erfiði því leið- in til himna er torsótt; helst að Jón karlinn sleppi þokkalega, enda í skjóðu kerlingar. Lík- lega vel við hæfi að hún haldi á karli síðasta spölinn. Þá er ógetið prýðilegrar tónlistar í verkinu. Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir eru hljómsveitin Eva, spila og syngja afar fallega og fara að auki með nokk- „Við erum öll breysk, en stillum okkur misjafnlega vel“ Ljósmynd/Auðunn Níelsson Gullna hliðið Styttra er á milli himnaríkis og helvítis en margur hyggur! Úr sýningunni nyrðra. ur smáhlutverk í verkinu. Ljóðin eru öll eftir skáldið frá Fagraskógi, sum flutt við kunn lög en einnig frumsamin og tónlistin fellur eins og flís við rass. Kemur og fer, nánast án þess að áhorfandinn verði hennar var á stundum. Engla- kór barnahóps er líka fallegur og mikilvægur. Leikmynd Egils Ingibergssonar er sérlega flott. Einföld en flókin í senn, flekinn sem er kot- býlið í byrjun er einnig leiðin til himna og loks grundir við hið gullna hlið. Snilldarlausn. Egill hannaði líka lýsingu og Helga Mjöll Oddsdóttir búningana; þar fékk gamli tíminn að halda sér og hentaði vel. Egill Heiðar Anton Pálsson vakti mikla athygli norðanmanna í fyrra þegar hann leikstýrði Leigumorðingjanum – mjög góðri sýn- ingu sem verðskuldaði mun meiri aðsókn en raunin varð – og ekki kæmi mér á óvart að Gullna hliðið hans verði ein eftirminnilegasta sýning LA í mörg ár. Óhætt er að hvetja fólk til að fjölmenna í leikhúsið. Landinn flykktist norður í leikhús fyr- ir nokkrum árum og nú er það orðið tímabært á ný! Kvöldstund í Samkomuhúsinu er vel varið. » Var Jón þjófur? Er sjálfs-bjargarviðleitni alltaf þjófn- aður? Fer það ekki eftir því hvernig á það er litið? Breska dagblaðið The Guardian birti lista yfir tíu þýddar spennusög- ur sem rithöfundurinn Ann Cleeves mælir sérstaklega með. Hún kemur víða við í valinu en velur að sleppa skandinavískum bókum. Röddin eft- ir Arnald Indriðason kemst þó á listann og það er ekkert svindl, eins og Cleeves tekur fram, því Ísland teljist ekki til Skandinavíu – þótt Norðurlandabúar skilgreini þennan heimshluta á annan hátt. Cleeves segir Arnald skrifa glæpasögur sem eru „álíka svalar og landslagið þar sem þær gerast.“ Hún lýsir efni sögunnar, þar sem maður hefur verið stunginn skömmu fyrir jólin á hóteli þar sem hann starfar, og segir andstæð- urnar milli lífs starfsmannanna og jólaboðanna sem þar eru haldin endurspegla andstæðurnar í sam- félaginu í heild. Hún mælir meðal annars með sögum eftir Georges Simenon, Fred Vargas, Tonino Benacquista, Dom- inigo Villar og Deon Meyer. Spenna Arnaldur á lesendur víða. Röddin eftir Arnald á listanum Bandaríski leik- stjórin Quentin Tarantino kveðst vera hættur við að leikstýra vestra með vinnuheitinu The Hateful Eight, eftir að handrit- inu hafði verið lekið. Hann lét þrjá leikara hafa eintak, Michael Madsen, Bruce Dern og Tim Roth, veit að Roth er saklaus en grunar helst Dern. Í samtali við vefmiðilinn Deadl- ine segist Tarantino æfur verða að blása myndina af, eftir að handritið lak út og komst í umferð. Þess í stað ætlar hann að gefa handritið formlega út á bók og sjá svo til eftir svona fimm ár, hvort hann geri eftir því mynd. Hættir við vegna leka Quentin Tarantino Grégory Cattan- eo heldur erindi um benediktína- klaustrið á Þing- eyrum og völd í héraði í dag, fimmtudag, í stofu 423 í Árna- garði í Háskóla Íslands. Cattaneo er doktorsnemi í sagnfræði við Sor- bonne-háskóla og Háskóla Íslands. Doktorsverkefni hans fjallar um völd í íslensku samfélagi á miðöld- um og rannsóknir hans lúta einkum að hernaðarsögu og lénsveldum. Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvernig benediktínaklaustrið á Þingeyrum beitti áhrifum sínum í héraðinu frá stofnun þess á fyrri hluta 12. aldar fram til miðrar 13. aldar. Þingeyraklaustur er elsta og áhrifamesta benediktínaklaustrið á Íslandi á þessum tíma. Einnig gerir hann grein fyrir rannsóknum á tveimur íslenskum fornbréfum. Fyrirlestur um Þingeyraklaustur Þingeyrakirkja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.