Morgunblaðið - 07.02.2014, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
VARANLEG
VERÐLÆKKUN
Á HEIMILISTÆKJUM
ALLT FRÁ GRUNNI AÐ GÓÐU HEIMILI
SÍÐAN 1956
HLUTI AF BYGMA
77.900 kr
Ofn
Electrolux ofn
74 ltr
Á Íslandi eru mikil vannýtt tæki-færi til atvinnuuppbyggingar.
Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri
Mannvits, nefndi í viðtali við Morg-
unblaðið í gær að
skattaumhverfið
hér á landi þyrfti að
vera hagstæðara til
að vega upp á móti
því að landið er
langt frá erlendum
mörkuðum og til að
laða að erlenda
fjárfesta.
Vinstri stjórnin steig fjölmörgskref í öfuga átt í þessum efn-
um og flest þeirra á eftir að stíga
til baka. Mikilvægt er að það verði
gert fyrr en síðar til að fjárfestar
fari aftur að horfa til Íslands með
fjárfestingar í huga.
En Ísland þarf að vera móttæki-legt að öðru leyti líka. Eyjólf-
ur Árni bendir á að „annaðhvort
eða“ hugsunarháttur sé óskyn-
samlegur þegar kemur að nýtingu
og verndun náttúruauðlinda. Hann
nefnir að lýsandi dæmi um þetta sé
að „ein mesta uppbygging í orku-
frekum iðnaði hér á landi átti sér
stað á árunum 1995-2008. Oft er nú
talað um að orkuver og verk-
smiðjur spilli fyrir ferðamennsku
en nú blómstrar ferðamannaiðn-
aðurinn sem aldrei fyrr, sem betur
fer, þrátt fyrir hrakspár ýmissa í
aðra átt.“
Þetta eru réttmætar ábendingarog menn hljóta að velta fyrir
sér hvers vegna lítið sem ekkert
hafi gerst í uppbyggingu á orku-
frekum iðnaði árum saman þrátt
fyrir að ýmsu leyti kjöraðstæður.
Og menn hljóta ekki síður aðvelta því fyrir sér hversu
lengi enn þurfi að bíða þess að
fyrrnefnd uppbygging hefjist á
nýjan leik.
Eyjólfur Árni
Rafnsson
Hvenær hefst upp-
byggingin á ný?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 6.2., kl. 18.00
Reykjavík 6 skýjað
Bolungarvík 2 slydda
Akureyri 4 rigning
Nuuk -2 skýjað
Þórshöfn 5 skúrir
Ósló -1 snjókoma
Kaupmannahöfn 3 heiðskírt
Stokkhólmur 1 alskýjað
Helsinki -3 heiðskírt
Lúxemborg 6 léttskýjað
Brussel 5 skúrir
Dublin 6 skýjað
Glasgow 7 alskýjað
London 6 skýjað
París 7 heiðskírt
Amsterdam 7 skúrir
Hamborg 7 léttskýjað
Berlín 7 léttskýjað
Vín 5 þoka
Moskva -5 heiðskírt
Algarve 15 léttskýjað
Madríd 16 skýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 15 skýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 11 skúrir
Winnipeg -18 léttskýjað
Montreal -16 skýjað
New York -3 skýjað
Chicago -16 léttskýjað
Orlando 15 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:49 17:35
ÍSAFJÖRÐUR 10:08 17:27
SIGLUFJÖRÐUR 9:51 17:09
DJÚPIVOGUR 9:22 17:01
Ný skrifstofa innan velferðarsviðs
Reykjavíkur hefur tekið til starfa og
ber hún heitið „skrifstofa þjónustu
heim“. Skrifstofustjórinn sem stýrir
skrifstofunni ber m.a. ábyrgð á
heimaþjónustu Reykjavíkur en alls
ekki eingöngu og því þótti heitið
skrifstofa heimaþjónustu ekki nægi-
lega lýsandi, eftir því sem má ráða af
upplýsingum frá Reykjavíkuborg.
Í svari frá borginni er bent á að
verið sé að breyta skipuriti velferð-
arsviðs. Grunnhugmyndafræðin að
nýju skipuriti byggist á samþættri
þjónustustarfsemi og því að ein-
staklingar fái þjónustu á grundvelli
einstaklingsbundins mats.
Skýringin á titlinum skrifstofa
þjónustu heim felst í því að verksvið
skrifstofunnar er víðara en einungis
heimaþjónusta, segir í svari borg-
arinnar. Undir hana fellur öll ein-
staklingsbundin þjónusta sem vel-
ferðarsvið veitir auk matarþjónustu
og samskipta við Landspítalann fyrir
hönd sviðsins. Undir skrifstofustjóra
skrifstofu þjónustan heim verða
þrjár deildir; deild heimaþjónustu,
deild stuðningsþjónustu og deild hús-
næðis- og búsetuþjónustu.
Þess má geta að þegar Hagvangur
auglýsti laus störf deildarstjóra á
skrifstofuna í janúar var heiti hennar
skrifað „skrifstofa Þjónustu heim“ en
borgin mun skrifa þjónustu með litlu
þorni. runarp@mbl.is
Ný skrifstofa þjónustu heim
Skrifstofa heimaþjónustu þótti ekki nægilega lýsandi Samþætt þjónusta
Borg Veitir þjónustu, ekki Þjónustu.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
sýknað íslenska ríkið af kröfu um
viðurkenningu á bótaskyldu vegna
fæðingaráverka.
Móðir drengs fór fram á það fyrir
hönd ólögráða sonar síns að viður-
kennd yrði með dómi skaðabóta-
skylda íslenska ríkisins vegna tjóns
sem drengurinn varð fyrir í fæðingu,
en um er að ræða áverka á handlegg
og öxl.
Héraðsdómur segir enga sönnun
liggja fyrir í málinu til stuðnings því
að umrædda fæðingaráverka
drengsins sé að rekja til of þröngrar
mjaðmagrindar móður. Engin fag-
leg rök séu fyrir því að senda eigi all-
ar frumbyrjur í grindarmælingu
eins og stefnandi hélt fram.
Það er mat héraðsdóms, að stefn-
andi hafi hvorki fært sönnur á né
leitt líkur að því að umræddan fæð-
ingaráverka drengsins sé að rekja til
vanrækslu eða mistaka starfsmanna
ríkisins, hvorki starfsmanna heilsu-
gæslustöðvarinnar sem önnuðust
skoðun og eftirlit með móðurinni
meðan á meðgöngu stóð, né þeirra
heilbrigðisstarfsmanna LSH sem
komu að og aðstoðuðu við fæð-
inguna.
Mistök við
fæðingu
ekki sönnuð
Sýknað af kröfu
vegna fæðingaráverka