Morgunblaðið - 07.02.2014, Side 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Réttarhöld yfir þremur stjórnend-
um Anglo Irish Bank hófust á mið-
vikudag en þeir eru sakaðir um að
hafa staðið á bak við lánveitingar til
kaupa á hlutabréfum í bankanum
árið 2008. Málið er eitt flóknasta
fjársvikamál í sögu Írlands en til að
tryggja framgang þess ákvað dóm-
arinn að kviðdómurinn yrði skip-
aður 15 einstaklingum í stað 12, ef
vera skyldi að einhverjir heltust úr
lestinni á þeim mánuðum sem rétt-
arhöldin standa yfir.
Ákærðir eru Sean FitzPatrick,
fyrrverandi stjórnarformaður og að-
alframkvæmdastjóri Anglo Irish
Bank, Willie McAteer, yfirmaður
áhættustýringar hjá bankanum, og
Pat Whelan, yfirmaður lánasviðs.
Ákærurnar á hendur þeim eru sex-
tán talsins en Whelan á jafnframt
yfir höfði sér sjö ákærur vegna
skjalafals. Mennirnir þrír hafa allir
neitað sök.
Leynilegar lánveitingar
Á fyrsta degi réttarhaldanna lýsti
saksóknarinn í málinu því hvernig
stjórnendur Anglo Irish Bank hefðu
falast eftir 660 milljónum punda frá
viðskiptavinum bankans í suður-
hluta Frakklands og Portúgals til
að vinda ofan af leynilegum fjárfest-
ingum nokkurra efnuðustu kaup-
sýslumanna Írlands. „Þetta voru
lánveitingar undir afar óvenjulegum
kringumstæðum, sem höfðu ekkert
að gera með hefðbundna starfsemi
bankans,“ hefur Telegraph eftir
saksóknaranum Paul O’Higgins.
Kviðdómendur fengu að heyra
hvernig stjórnendur bankans hefðu
ákveðið að lána fjármuni til Sean
Quinn, sem eitt sinn var ríkasti
maður Írlands, og annarra auð-
manna, sem hafa verið kallaðir
Maple 10, til leynilegra kaupa á
hlutabréfum í bankanum. Tilgangur
lánveitinganna var að halda uppi
verði á hlutabréfum í bankanum.
Upphaflega stóð til að lánveiting-
arnar næmu 660 milljónum punda
en samfara lækkandi verði hluta-
bréfa í bankanum minnkaði umfang
lánveitinganna og að lokum námu
lán til auðmannanna tíu 370 millj-
ónum punda og lán til fjölskyldu
Quinn 145 milljónum.
Tekinn yfir af ríkinu
Samkvæmt Financial Times er
málið það fyrsta sem höfðað er gegn
stjórnendum fjármálafyrirtækis í
tengslum við atburðarásina sem
leiddi til þess að írska efnahags- og
fasteignabólan sprakk. Anglo Irish
Bank var tekinn yfir af írska ríkinu
árið 2009 og endurnefndur Irish
Bank Resolution Corporation í kjöl-
farið.
100 vitni kölluð til
Saksóknarar í málinu segja að
umræddar lánveitingar 2008 hafi
brotið gegn írskum fyrirtækjalög-
um vegna þess að þær voru skipu-
lagðar af bankanum, fyrir bankann.
Tilgangurinn með þeim var m.a. að
vinda ofan af eignarhlut Quinns í
bankanum en hann átti fjórðung
hlutabréfa og stjórnendur bankans
vildu ekki vera bundnir örlögum
eins manns, samkvæmt saksóknara.
Gríðarlegt magn sönnunargagna
hefur verið lagt fram í málinu, þar á
meðal vitnisburður 800 vitna. Þá er
gert ráð fyrir að 100 vitni verði köll-
uð fyrir á meðan málflutningur fer
fram, þeirra á meðal lögreglumenn,
embættismenn frá írska seðlabank-
anum, fyrrverandi starfsmenn
Anglo Irish Bank og bankamenn frá
Morgan Stanley.
Réttað yfir stjórnend-
um Anglo Irish Bank
Lánuðu fyrir
hlutabréfum til að
halda verðinu uppi
AFP
Fjársvikamál Sean FitzPatrick var viðstaddur réttarhöldin á miðvikudag.
Stjórnendurnir eru ákærðir fyrir ólögmætar lánveitingar árið 2008.
Pat
Whelan
Willie
McAteer
Í gær, degi eftir að stjórnvöld í Norð-
ur- og Suður-Kóreu náðu sam-
komulagi um endurfundi fjölskyldu-
meðlima sem voru aðskildir í
Kóreustríðinu 1950-1953, hótuðu
stjórnvöld í Norður-Kóreu að draga
samkomulagið til baka. Þau segja
hneyksli að suðurkóresk stjórnvöld
hyggist taka þátt í fyrirhuguðum ár-
legum heræfingum með Bandaríkj-
unum, á sama tíma og nágrannalönd-
in tvö hafi náð saman um sátt og
samstarf. „Samræður og æfingar ögr-
andi hernaðar geta ekki farið saman,“
sagði í tilkynningu frá norðurkóresku
varnarmálastofnuninni, NDC.
Yfirlýsing Norður-Kóreumanna
kemur ekki á óvart en margir höfðu
spáð því að stjórnvöld í Pyongyang
myndu nota samkomulagið til þess að
reyna að fá stjórnvöld í Seúl til að
gefa eftir í öðrum málum. Talsmaður
varnarmálaráðuneytis Suður-Kóreu,
Kim Min-Seok, sagði hins vegar að
heræfingarnar myndu sannarlega
fara fram.
Norðurkóreska varnarmálaráðu-
neytið gagnrýndi einnig frásagnir
fjölmiðla í Suður-Kóreu af heimsókn
norðurkóreska leiðtogans Kims
Jong-Uns á munaðarleysingjahæli.
Þar náðust myndir af honum þar sem
hann stóð í svefnsal barnanna,
íklæddur skóm, sem hið íhaldssama
suðurkóreska dagblað Chosun Ilbo
kallaði „óhugsandi“ dónaskap. Í til-
kynningu varnarmálaráðuneytisins
sagðist það tilneytt til að endurskoða
áðurnefnt samkomulag, svo lengi sem
vegið væri að virðingu leiðtogans.
AFP
Söknuður Síðustu endurfundir aðskildra fjölskyldna fóru fram 2010.
Hóta að hætta
við endurfundina