Morgunblaðið - 07.02.2014, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
Ég hlakka til, mér líst ljómandi vel á að verða fertug. Mér líðuralltaf eins og ég sé 25 ára og finnst ekkert breytast þótt ár-unum fjölgi,“ sagði Brynhildur Bjarnadóttir. Hún er doktor
í skógvistfræði og lektor í náttúruvísindum við Háskólann á Akur-
eyri. Maður Brynhildar er Sigurður Ingi Friðleifsson og þau eiga
fjögur börn.
Brynhildur sagði að dagurinn yrði hefðbundinn, rólegur og nota-
legur afmælisdagur með fjölskyldunni. Frekara tilstand bíður þar
til síðar. En eru einhver afmæli henni eftirminnileg?
„Í minningunni er alltaf brjálað veður á Norðurlandi á þessum
degi, yfirleitt stórhríð og læti. Annars held ég að spái ágætlega
núna,“ sagði Brynhildur sem ólst upp á Möðruvöllum í Hörgárdal.
„Þegar ég varð þrítug bjó ég úti í Svíþjóð. Vinkonur mínar komu
óvænt til mín. Það var mjög ánægjulegt.“
Brynhildur lærði skógvistfræði í Lundi og lauk doktorsprófi 2009.
„Skógvistfræðingar skoða skóginn út frá vistkerfinu, þ.e. samspili
allra lífvera í skóginum. Hvernig vistkerfið vinnur, hvaða ferlar
eiga sér stað, hvað breytist þegar skógur vex upp á skóglausu landi,
hvaða áhrif það hefur á fuglalíf, dýralíf, jarðveg og svo framvegis.
Ég hef einkum fengist við rannsóknir á kolefnisbindingu trjáa,“
sagði Brynhildur. Hún sagði íslenska skóga vaxa alveg jafn vel og
skóga í öðrum löndum á svipaðri breiddargráðu. gudni@mbl.is
Brynhildur Bjarnadóttir Ph.D., 40 ára
Fjölskylda Brynhildar F.v.: Sindri, Katrín, hjónin Brynhildur Bjarna-
dóttir og Sigurður Ingi Friðleifsson, Sölvi (fyrir framan) og Valdís.
Stórhríð og læti á
bernskuafmælum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Þessir krakkar í Hrísey
héldu tombólu 23. nóv-
ember 2013. Þau söfnuðu
5.617 krónum sem þau
styrktu Rauða krossinn
með. Þau heita: Dísella
Carmen Hermannsdóttir
(9 ára), Christian Freyr
Hermannsson (7 ára),
Victoría Líf Her-
mannsdóttir (5 ára), Tara
Naomí Hermannsdóttir
(5 ára), Guðný Ösp
Hrafnhildardóttir (9 ára)
og Guðmar Gísli Þrast-
arson (7 ára).
Hlutavelta
Reykjavík Aría fæddist 14. maí. Hún
vó 3.704 g og var 54 cm löng. For-
eldrar hennar eru Aníta Zogaj og Va-
lon Drea.
Nýir borgarar
Dalvík Einar fæddist 4. maí. Hann vó
3.580 g og var 51 cm langur. Foreldrar
hans eru Júlíana Kristjánsdóttir og
Ísak Einarsson.
P
áll Bragi fæddist í
Reykjavík 7.2. 1944 og
ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR
1964, stundaði laganám
við HÍ til 1967, lauk prófi í við-
skiptafræði frá Viðskiptaháskól-
anum í Árósum 1978 og stundaði
þar nám í alþjóðaviðskiptum 1990-
91.
Páll Bragi var fulltrúi hjá Al-
menna bókafélaginu 1967-72, fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar 1972-74, kerfisfræðingur
og sölumaður hjá IBM á Íslandi
1978-81, framkvæmdastjóri hjá
Hafskip hf. 1981-85, forstjóri Skrif-
stofuvéla hf. 1985-87, fjármálastjóri
auglýsingastofunnar Hvíta hússins
hf. 1989-92, framkvæmdastjóri hjá
Vátryggingafélaginu Skandia Ís-
land 1992-93, framkvæmdastjóri
Þjóðsögu ehf. 1993-2002, jafnframt
Arnar og Örlygs ehf. 1995-98 og
Nýja Bókafélagsins ehf. 1999-2002.
Hjá Eddu útgáfu hf. var hann starf-
andi stjórnarformaður árið 2002,
framkvæmdastjóri 2002-2003, for-
stjóri og útgefandi 2003-2006 og
stjórnarformaður 2007-2008.
Páll Bragi sat í stjórn Vöku 1964-
65 og varaformaður 1966-67, í
stjórn Heimdallar 1965-67 og vara-
formaður 1969-71, í stjórn Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar 1978-82, í
framkvæmdanefnd hennar 1979-80,
var ritari í stjórn Félags viðskipta-
fræðinga og hagfræðinga 1979-81,
sat í undirbúningsnefnd að stofnun
útgáfunnar Skálholts, sat í stjórn
hennar og var formaður fram-
kvæmdanefndar 1981-83, í stjórn
Kaupstefnunnar í Reykjavík hf.
1981-86, sat í samgöngunefnd Sjálf-
stæðisflokksins 1983-85, var for-
Páll Bragi Kristjónsson – fyrrv. forstjóri – 70 ára
Hópurinn Stefanía og Páll Bragi með börnum, tengdabörnum og barnabörnum. Á myndinni er ekki Sigrún og fjölskylda..
Í bókaútgáfu um árabil
Framkvæmdastjórn Hafskips árið 1983 Jón Hákon Magnússon, Björg-
ólfur Guðmundsson, Ragnar Kjartansson og Páll Bragi Kristjónsson.
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
60 ára reynsla á Íslandi
Gæði og falleg hönnun
frá Russell Hobbs
Útsölustaðir:
Verslanir Húsasmiðjunnar um land allt
Verslanir ELKO
Byggt og Búið, Kringlunni