Morgunblaðið - 07.02.2014, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
Inside Llewyn Davis
Nýjasta kvikmynd hinna mikils-
virtu Coen-bræðra, Joel og Ethan. Í
henni segir af tónlistar- og hug-
sjónamanninum Llewyn Davis sem
á erfitt með að hasla sér völl í tón-
listarlífi New York-borgar árið
1961. Kaldir vetrarvindar næða um
götur borgarinnar og Davis reynir
að draga fram lífið og yfirstíga
ýmsar hindranir sem verða á vegi
hans. Davis áttar sig fljótlega á því
að hugsanlega er hann sjálfur
stærsta hindrunin á leið til frægðar
og frama. Með aðalhlutverk fara
Oscar Isaac, Carey Mulligan, Gar-
rett Hedlund, John Goodman og
Justin Timberlake.
Metacritic: 92/100
Nurse
Spennutryllir sem segir af Danni,
nýútskrifaðri hjúkrunarkonu sem
ráðin hefur verið til starfa á sjúkra-
húsi og hlakkar mikið til að hefja
störf. Á sjúkrahúsinu kynnist hún
hjúkrunarkonunni Abby sem í
fyrstu virðist bæði hlý, hvetjandi og
hjálpsöm en annað kemur þó á dag-
inn þegar þær bregða sér saman út
á lífið. Abby reynist vera úlfur í
sauðargæru og leikur sér að Danni
eins og köttur að mús. Leikstjóri er
Douglas Aarniokoski og með aðal-
hlutverk fara Paz de la Huerta,
Katrina Bowden, Corbin Bleu og
Niecy Nash. Enga samantekt á
gagnrýni er að finna á Metacritic.
Miele
Kvikmyndin Miele, eða Hunang,
fjallar um líknardráp og hefur hlot-
ið fjölda viðurkenninga og verð-
launa. Aðalpersóna myndarinnar,
Irene, sem kölluð er Hunang, hefur
þann starfa að hlúa að dauðvona
fólks og aðstoða m.a. með lyfjagjöf-
um. Dag einn gefur hún einum sjúk-
linganna, Grimaldi, of stóran lyfja-
skammt og kemst í kjölfarið að því
að hann er ekki veikur. Samband
þeirra verður í kjölfarið þrungið
spennu og gjörbreytir lífi Irene.
Leikstjóri myndarinnar er Valeria
Golino og með aðalhlutverk fara
Jasmine Trinca, Carlo Cecchi og Li-
bero De Rienzo. Enga samantekt á
gagnrýni er að finna.
Lífsleikni Gillz
Fjórir sjónvarpsþættir Egils Ein-
arssonar, Gillz, hafa verið klipptir
saman í kvikmynd sem frumsýnd
verður í dag í Sambíóunum. Í Lífs-
leikni Gillz fræðir Egill áhorfendur
um eitt og annað með gamansömum
dæmisögum og kennir þeim að
haga sér rétt við ýmsar aðstæður.
Meðal þeirra sem leggja Agli lið eru
Pétur Jóhann Sigfússon, Andri
Freyr Viðarsson, Hannes Óli
Ágústsson og Hilmar Guðjónsson.
Strögl Maður og köttur í kvikmynd
Coen-bræðra, Inside Llewyn Davis.
Coen, spennutryllir,
líknardráp og Gillz
Bíófrumsýningar
Breska hljómsveitin Massive Attack
mun koma fram á nýrri tónlistar-
hátíð, Secret Solstice, sem haldin
verður á íþróttasvæði Þróttar í
Laugardal í sum-
ar, 20.-22. júní.
Hljómsveitin
verður aðalatriði
hátíðarinnar enda
stórsveit í tónlist-
arsögunni, braut-
ryðjandi trip hop-
tónlistar. Hljóm-
sveitin var
stofnuð árið 1988
í Bristol og hefur
hlotið fjölda verð-
launa á ferli sínum, m.a. evrópsku
MTV-tónlistarverðlaunin og Q-
verðlaunin ensku. Hún hefur sent
frá sér fimm breiðskífur og hafa þær
selst í yfir ellefu milljónum eintaka á
heimsvísu. Af þekktum smellum
Massive Attack, sem eru æði marg-
ir, má nefna „Protection“, „Mezz-
anine“ og „Teardrop“. Massive At-
tack er skipuð Robert „3D“ Del
Naja og Grant „Daddy G“ Marshall
en á tónleikum kemur fram með
þeim fjöldi tónlistarmanna.
Að hátíðinni standa Friðrik Ólafs-
son og breski tónleikahaldarinn
Jack Robinson en Robinson hefur
m.a. staðið fyrir tónlistarhátíðunum
Outlook og Dimensions í Króatíu.
Friðrik hefur komið að skipulagn-
ingu ýmissa tónleika undanfarin tíu
ár eða þar um bil, hefur haldið tugi
tónleika í Bretlandi og hér heima og
þá m.a. á Nasa og Faktorý.
Secret Solstice verður stærð-
arinnar útihátíð, 7.000 miðar í boði
og stefnt að því að selja útlendingum
2-3.000 miða. Hátíðin á í samstarfi
við flugfélagið WOW um að flytja þá
til landsins, að sögn Friðriks. Tón-
leikar hátíðarinnar fara fram á fimm
stöðum, tveimur stórum sviðum og
tveimur smærri auk þess sem leikið
verður í stóru tjaldi, að sögn Frið-
riks. Nokkrar hljómsveitir og plötu-
snúðar hafa verið kynnt til leiks, auk
Massive Attack íslensku hljómsveit-
irnar Mammút, Sísí Ey og múm, raf-
tónlistarmaðurinn Skream, lettn-
eska sveitin Solaris og tónlistar-
maðurinn Woodkid. Friðrik segir að
tilkynnt verði um helgina um fleiri
tónlistarmenn sem koma fram á há-
tíðinni og þar verði danstónlist áber-
andi. Í næstu kynningarlotu verði
svo hip hop, rokk og popp í öndvegi.
„Við erum að tala við dúndurstór
nöfn sem eiga eftir að koma á óvart
og munu vekja mikla lukku,“ segir
Friðrik. Frekari upplýsingar má
finna á vefsíðu hátíðarinnar, secret-
solstice.is, og fer miðasala fram á
henni.
helgisnaer@mbl.is
Massive Attack heldur
tónleika í Laugardal
Aðalatriði nýrrar tónlistarhátíðar, Secret Solstice
Ljósmynd/Jezhotwells
Væntanlegir Massive Attack, Robert del Naja og Grant Marshall, á rokkhá-
tíðinni Eurockéennes de Belfort í Frakklandi árið 2008.
Friðrik
Ólafsson
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPARBÍÓ
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
LÍFSLEIKNIGILLZ KL.3:30-5:45-8-10:20-10:50
LÍFSLEIKNIGILLZVIP KL.3:30-5:45-8-10:20
GRUDGEMATCH KL.8-10:30
JACKRYAN KL.8-10:30
LASTVEGAS KL.5:45-8-10:20
AMERICANHUSTLE KL.8
JÓNSI OGRIDDARAREGLAN ÍSLTAL2D KL. 4 - 5 - 6
FROSINN ÍSLTAL2D KL. 3:20 - 5:40 KRINGLUNNI
LÍFSLEIKNIGILLZ KL. 5:45 -8 -10:20
12YEARSASLAVE KL. 6 -9
WOLFOFWALL STREET KL. 5:40 -9:10
LÍFSLEIKNIGILLZ KL. 5:40 -8 -10:20
GRUDGEMATCH KL. 8 -10:25
JÓNSI OGRIDDARAREGLAN ÍSLTAL2D KL. 5:40
JACK RYAN KL. 8
12 YEARS A SLAVE KL. 5:15
LAST VEGAS KL. 8 - 10:20
AMERICAN HUSTLE KL. 5:15 - 10:15
NÚMERUÐ SÆTI
LÍFSLEIKNIGILLZ KL. 8 -10:20
GRUDGEMATCH KL. 10:20
LASTVEGAS KL. 8
JÓNSI OGRIDDARAREGLAN ÍSLTAL2D KL. 6
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM Á KÖFLUM ÍSLTAL3D KL. 5:50
KEFLAVÍK
ITS GOING TO BE LEGENDARY
FRÁBÆR GRÍNMYND MEÐ
ROBERTDENIROOGSYLVESTERSTALLONE
Í AÐALHLUTVERKUM
AKUREYRI
LÍFSLEIKNIGILLZ KL.5:45-8-10:20
GRUDGEMATCH KL. 10:20
LAST VEGAS KL. 8
JÓNSI OGRIDDARAREGLAN ÍSLTAL2D KL. 6
24
Ó
SK
A
RS
TI
LN
EF
N
IN
G
A
R
DREPFYNDIN GAMANMYND MEÐ
BESTU GRÍNLEIKURUM LANDSINS
FRÁBÆR SKEMMTUN
FRÁ FYRSTU MÍNÚTU
12
12
12
L
L
7Hættu að láta þig dreyma og byrjaðu að lifa.
Missið ekki af fyrstu stórmynd ársins.
Mynd sem allir eru að tala um!
31.000 GESTIR
ÍSL TAL
Ævintýrið heldur áfram
6 Óskarstilnefningar
2 Golden Globe verðlaun
Sýnd í 3D 48
ramma
16
Hún er hjúkrunarfræðingur
á daginn, en kaldrifjaður
morðingi á kvöldin!
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
NURSE 3D Sýnd kl. 8 - 10
DALLAS BUYERS CLUB Sýnd kl. 5:45 - 8-10:20
47 RONIN 3D Sýnd kl. 10:30
THE HOBBIT 2 3D (48R) Sýnd kl. 5
SKÝJAÐ M. KJÖTBOLLUM 2 3D Sýnd kl. 3:45
SKÝJAÐ M. KJÖTBOLLUM 2 2D Sýnd kl. 3:45
LIFE OF WALTER MITTY Sýnd kl. 5:45 - 8